Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.05.1952, Síða 16

Skólablaðið - 01.05.1952, Síða 16
Aimdlvölítololhl Einn gnæfir steinn ú ströndu starir í blámans firS. Þögull liann þreyir lengi, þreyir við hafsins kyrrS. Hægt rís á hafi Alda, heldur afi landi inn. KveSur hún Ijnð viS kletta, kyssir þá Unnstein sinn. p.p. • UM KOSNINGAR. Sem kunnugt er sigraði Gunnar Jónsson andstæð- ing sinn, Benedikt Bogason í kosningu til insp. scholae. Er það mjög í samræmi við þróun íslenzks þjóðlífs, þar sem hesturinn þokar nú hvarvetna fyrir bílnum. • Árni Björnsson var kjörinn ritstjóri í annað sinn og sýnir það ljóslega íhaldssemi kjósenda. Geir Magnússon var kosinn í ritnefnd. Guð hjálpi kommúnistunum (ef hann er þá ekki í Alþýðuflokkn- um). Ekkert skil ég í því, að Jón Thór skyldi ekki kjörinn skrípa. Hverjum hæfir sá titill betur? SKOLABLAÐIÐ GejiS út í MENNTASKÓLANUM I REYKJAVÍK Ritstjóri: Ámi Björnsson 5. B. Ritnejnd: Einar Þorláksson 5. B. Kristján Árnason 5. B. Markús Þórhallsson 6. Y. Sveinn Einarsson 4. B. A uglýsi ngast jórí: Oddur Thorarensen 5. B. AbyrgSarmaSur: Ingvar Brynjólfsson, kennari. BJARGEYJARÞÁTTUR — (framh, af bls. 13). * vernda oss fyrir Dönum og erum vér þakklátir. En eigi þorum vér að hleypa hér Islendingum inn í land vort sem Einaharjar sagði, áður en hann varð vitlaus, viljum vér eigi týna tungu vorri né ættarböndum. Er það því ráð mitt að þið setjið rammgirt vígi á Horn- strandir, en siglið hingað svo skjótt sem Danir sjást.“ „Vér álitum yður hyggnari en þetta,“ mælti foringi Islendinga, „þar sem þér eruð elzta þjóð í heimi og geymið mestan vísdóm veraldar í fornum þulum.“ Þótti Bjargeyingum lofið gott og voru nú á báðum áttum. íslendingar gáfu eyjarskeggjum hrífusköft, kandíisykur, ljái, rúsínur, epli og góða hluti. Eftir það vildu Bjargeyingar aldrei móðga þessa góðu herra. Og sem þeir standa þarna sást skúta lítil útfrá eyjunni. Stóðu menn við borðstokkinn, klæddir rosabullum og smáköflóttum peysum en röndóttum skotthúfum, voru þeir með línu í höndum og lá hún útaf borðstokknum og í sjóinn, og gerðu þeir ýmist að kippa í línuna eða gefa hana út. „Þarna eru danskir komnir,“ æptu nú Islendingar óttaslegnir og urðu Bjargeyingar nú einnig gripnir felmtri. Vildu þeir umfram allt, að Íslendíngar vernd- uðu sig, og er nú iskjótt af að segja, að hraustustu menn íslands voru sendir þangað upp, byggðu þeir bryggjur og vegi, brostu við Bjargeyingum og klöppuðu þeim á bakið. Og svo góð var vernd þeirra að enginn einasti Dani þorði að koma í námunda við eyna né stísa fæti á land. Lærðu Bjargeyingar marga góða siðu af Is- lendingum og vildu kenna j)eim gotneskar rímur í staðinn en Islendingar hirtu 1 ítt um. Sáu þá Bjargey- ingar að slíkt mundi vera talið dónaskapur á íslandi og ortu ekki meir. Fannst eyjarskeggjum nú að þeir þyrftu að skoða sig um í heiminum, fór ein fjölskylda til Reykjavíkur og var svo hrifin af bíóunum j)ar, að hún kom aldrei aftur. Hinir sem heima voru þótti vist- in góð hjá íslendingum, lærðu börnin íslenzku og voru nú allir ánægðir, því allstaðar var nóg að éta. /. /. ICMElftuiiíp i albsíhroKthiiínm stíl SjöstirniS sprœnir á bíl eilífSarinnar skammarlegt! eilífSin drukknar. Sokkinn bíll, óvátryggSur, þjóSarsorg, eilífS án bíla, bílar án eilíjSar engin eilífS, enginn bíll eilífSarlaus eilífS, bílalaust eilífSarleysi. Eilífi eilífarinnar er hafiS _ 16 SKÖLABLAÐIÐ

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.