Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1955, Page 6

Skólablaðið - 01.02.1955, Page 6
6 er svalur og ferskur blær,, - í þeim eru engar áberandi hamfarir, hiti eða ofsi, allt slíkt var vandlega hulið„ Hann er skáld vetrarins, jöklannaj, straumharðra fljota og svalra unna." Þessi orð eru víðtæk lýsing á skáld- skap þessa mæta íslendings. Kvæði hans bera vott um karlmennsku og ró, sem oft einkennir þá menn, er flíka lxtt tilfinningum sínum, Grímur var ávallt fremur seinn að yrkja, en ljóð hans voru heilsteypt og fáguð, er hann let þau frá sér fara„ Kvæðin frá seinustu dvalarárum hans erlendis eru ekki mörg, en þau bera því ótvírætt vitni, að hann var orðinn þreyttur á veru sinni og erfiðleikum erlendis og þráði að komast heim til íslands„ Seinustu æviár Gríms urðu merkasta og frjósamasta tímabil skáldskapar hans. Hann lagði aðaláherzlu á sagnakveðskap °g þýðingar úr forn-grísku. Þýðingar Gríms úr grísku eru eitthvert mesta bókmenntaafrek hans, og gengur hann þar sennilega næst Sveinbirni Egilssyni. Grímur valdi til þýðingar hin ágætustu og sérkennilegustu kvæði úr höfuðritum skáldanna, en því miður þýddi hann ekk- ert heilt stórverk. Alls eru þýðingar Gríms úr grísku um 60 kvæði tuttugu kunnra skálda. örfá ljóðræn kvæði orti Grímur á þessum árum„ Þeirra á meðal var hið gullvæga ljóð, Endurminningin, sem ber langt af öðrum slíkum kvæðum hans um ljóðræna fegurð og listrænt form. BÓNDINN AÐ BESSASTÖÐUM. Árið 1868 fékk Grímur Thomsen Bessastaði í skiptum fyrir Belgsholt í Borgarfirði. Bessastaðir voru æsku- heimili Gríms, og þar undi hann sér ávallt bezt. Grímur var ekki sérlega hneigður til búsýslustarfa, en hann átti því láni að fagna, að kona hans, Jako- bína Jónsdóttir frá Reykjahlíð, var mesta dugnaðarkona og vel að sér í allri býsýslu„ Hún mun hafa átt snaran þátt í að halda búinu í svo góðu horfi sem það var. Grímur lagði mikla alúð við skáld- skapinn og tók einnig virkan þátt í stjórnmálum um tuttugu ára skeið. Grímur Thomsen var mjög vanafastur og lifði venjulega fábreyttu og reglusömu lífi. Þó kunni hann vel að meta góðan mat og góð vín, sem vænta mátti, slík- ur heimsmaður sem hann var ungur, en enginn var hann óhófsmaður. Grímur hafði sérstakar mætur á skyri og bar það jafnan fyrir erlenda gesti sína. Neyddust þeir þá venjulega til þess að Ijúka því, sem þeim var borið, hvernig sem þeim féll það. Hjónin á Bessa- stöðum efndu oft til mannfagnaðar þar, og var þá við brugðið hinni miklu glettni og stríðni Gríms. Hann var hrókur alls fagnaðar meðal vina sinna. En hann var oft hæðinn og hvass í tilsvör- um, og tóku menn því misjafnlega. Bakaði hann sér tíðum óvinsældir að óþörfu á þann hátt. Grímur Thomsen var mikill dýravin- ur, sem sjá má af kvæðum hans um hesta og hunda. Hann átti fallegan hest, sem hét Sóti og var einn mesti góðhest- ur landsins„ En hann var styggur mjög og þýddist ekki aðra en Grím sjálfan. Grímur hafði Sóta hjá sér erlendis og ól hann alltaf á úrvalsfóðri. Sóti var felldur 27 vetra, og kom Grímur þar hvergi nærri. Hann var heygður með öllum reiðtygjum í túninu á Bessastöð- um. Grímur harmaði mjög þennan fagra fák, sem var tryggasti vinur hans. Einnig þótti Grími mjög vænt um hunda, en þá átti hann þrjá í búskapartíð sinni á Bessastöðumj hétu þeir Vambi, Dóni og Bismarcko Ekki er hægt að skilja svo við Grím, að ekki sé minnzt örlítið á skapgerð hans. Henni má lýsa að nokkru leyti með vísu hans um Konráð Gíslason; Hann brann glaðast innra eldur hið ytra virtist sumum kalt 5 við alla var hann fjöl ei felldur, fann ei skyldu sína heldur, að heiðra sama'og aðrir allt. Grímur var maður dulur um tilfinning- ar sínar, en þær voru engu að síður heitar. Um tilfinningalíf hans er fátt eitt vitað. Þó er kunnugt um samband F rh. á bls. 29.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.