Skólablaðið - 01.02.1955, Síða 10
HAUKVJR HtLGASOK-
10 -
sofandi
verund mín,
kviknar eldur
í köldu hjarta,
dansar djöfull
í dofnum tám,
bjarmar bros
í brostnum augum,
hugsun í höfði
heilalausu
hendist hringdans
á handahlaupi;
kviknar losti,
læðist hljoðlega,
ljúflega, líflega
um limu mér,
hoppar hjarta,
hitnar bloðið,
örvast önd
og andardráttur,
titra taugar,
tungan lafir,
skjálfa hendur
og hnjáliðir,
er hina mæru
meyju lít
liggja nakta
á ljosum beð,
hyggst sjálfráði
heilum mér
fleygja fúslega
í faðm henni,
lít ég þá
ljóta sjón,
er mín áform
öll hindrar,
ferleg fló
und fögrum lokkum
brunar niður
bjarta vanga,
rennir skeið
yfir rauðar varir,
skríður hvatlega
um hvelfdan barm,
stekkur snarplega
9
geng til salernis
og sel upp„