Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1955, Page 12

Skólablaðið - 01.02.1955, Page 12
- 12 - Þetta mun vera skýringin á ljoðum Halldors, sem öll eru með því leiða marki brennd að vera glorulaust bull, og hefur hann bersýnilega ekki gert neina undantekhingu í þessu blaði. Sólveig nokkur Jónsdóttir rekur síðan lestina, og mun hun eiga að gegna því mikilvæga hlutverki að vera tengiliður milli þessara "guðsleitandi vesalinga" og þess, er þeir telja göfgastan hér á jörðu - og ýmsir fullyrða, að þeir blóti á laun„ - en það er ólafur jónsson. Er þá þessum ættartölum lokið, og má af þeim Ijóst verða, að ekki er ætt- ernið burðugt. Það má hins vegar til sanns vegar færa, að slíkt skipti ekki máli, heldur afkvæmið sjálft. En að þessu sinni eru nánari kynni sízt til þess fallin að auka hróður bleðilsins. Vegna þess að fæstir hér í skóla munu vera svo atorkusamir að hafa nenningu til að pæla í gegnum snepil þennan, skal hér drepið fáeinum orðum á efni hans. Fyrst lætur Magnus jónsson vaða á súðum um knýjandi nauðsyn sjálfstæðis- baráttu busa. Fæstir munu þó hafa orð- ið varir við þá sjálfstæðisbaráttu og allra sízt M. J. Er nú allt útlit fyrir, að íslenzka þjóðin hafi með honum eign^ azt jón Sigurðsson £ vasaútgáfu. Væri Magnús þó sýnu nær að helga sig eigin sjálfstæðisbaráttu, svo vonlítil sem hún virðist þó vera. Þá birtast ljóð H„ B„, og varður vart um þau sagt, að vitleysan ríði þar við einteyming. Þo verður að játa, að við ýtarlega leit má finna votta fyrir hugs- un í tveimur kvæða hans (Stríð og Litli bróðir), en er þó vandlega falin. Því næst fer R. A„ rassaköstum um ritvöllinn, og er það þeim mun undar- legra sem Ragnar hefur ekkert fram að færa nema apakattalangloku eina ferlega. Tilgangur þessa er hulinn flestum, en kunnugir telja, að með þessu leiki Ragn- ari hugur á að halda í heiðri minningu forfeðra sinna og benda jafnframt á, að margt sé líkt með skyldum. Síðan birtir Sólveig jónsdóttir brot úr ævisögu sinni og heldur því þar fram sér til ágætis, að hún sé "ákaflega merkileg persóna samanborið við hund", - og kom ýmsum á óvart. Þo verður að segja það ungfrúnni til verðugt hróss, að greinarmerkin hefur hún fram yfir Magnús jónsson. Hefur þá sorphaugur þessi verið efna- greindur lítillega, og má af því ráða, að heldur er þar ófýsilegt um að litast. Liggur því í augum uppi, að bleðill þessi er meginþorra menntskælinga til ama og leiðinda og aðstandendum sínum til mesta álitshnekkis og háðungar. Hið eina, sem þessir herrar hafa fram að færa sér til málsbóta, er það, að þeir hafi ekki úr háum söðli að detta, að því er álit varðar - og reyndar munu flestir kannast við það, - en hér hafa þeir þó gengið feti of langt í sjálfsáliti sínu og vanmati á dómgreind annarra. Eitt verður þó að viðurkenna, að þeim kumpánum hafi tekizt meistaralega, og það er að gera snepil þennan að mál- gagni hinna misskildu, en flestum mun einmitt bera saman um, að slíkir menn séu allra sízt til þess fallnir að hafa á hendi forystu fyrir sjálfstæðisbaráttu eins né neins og því síður busa. Þá er og leitt til þess að vita, að mönnum slíkum sem þessum, skuli haldast uppi óátalið að misnota prentfrelsið svo herfi- lega sem raun ber vitni með því að klína hinu hefðbundna busaheiti á þessa óþverraframleiðslu sína. Jón Baldvin Hannibalsson. Athugasemd: Það skal að lokum tekið fram, að tilgangur minn með þessum fá- tæklegu línum er einungis sá að reyna af veikum mætti að efla og styrkja "Grallarann" og aðstandendur hans með lítilfjörlegri auglýsingu og forða þeim með því frá að lenda í skuldabasli, svo að þeir geti helgað sig óskiptir bók- mennta- og fræðiiðkunum í næði fyrir rukkurum. Vilji skáldmennin svara þessari hóg- væru grein minni að einhverju, er þeim að fullu heimill aðgangur að fúkyrðasafni því, sem ég hef saman dregið í greinar- korni þessu, svo og því, sem ég varð að sleppa rúmsins vegna og kann að luma á enn þá„ Sami.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.