Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1957, Síða 9

Skólablaðið - 01.12.1957, Síða 9
41 - " ME YJARORÐUM SKYLI MANNGI TRtJA . . . " EINHVER óvenjuherská valkyrja ur hópi bekkjarsystra vorra, er fyrir hæ- verskusakir nefnir sig ungfru B, fer með ærnum pilsaþyt um ritvöllinn í seinasta Skólablaði. Beinir hun skeytum sínum að oss, karlpeningi í VI„ bekk, og sker allan niður við sama trog; er enginn sá löst- ur, sem helzt má óprýða einn karlmann að hun ekki eigni oss, enda gerir hún ráð fyrir, að vér munum beinlínis líða undir lok, eins og aðrar ófullkomnar líf- verur á fyrri söguskeiðum. Og dauða- sökin var svo sem ekkert lítilræði, þar sem nokkrum bekkjarbræðrum varð það a, æsku sinnar vegna og mannlegs breyzk- leika, að renna munaraugum til fagur- limaðra fjórðabekkjarmeyja - og þó eink- um sú, að láta það uppskátt. Mikluðu þeir fyrir sér, hvílíkur munaður það væri, að mega kynnast náttúruundrum í afkimum Surtshellis í slíkri fylgd og sóttu m. a. opinberlega um heimild til framhjá- haldsins, sem er þeim auðvitað til hróss. Maður skyldi ætla, að svo lífsreyndar kvinnur sem þær bekkjarsystur vorar, kynnu að taka slíkum ungæðishætti með brosi á vör, en það er öðru nær. Þær virðast sumsé hafa tileinkað sé frúarlega vandlætingasemi langt fyrir aldur fram. Og satt að segja væri hryggilegt til þess að vita, ef þær vildu, svona í blóma lífs- ins, reyra hina hverfulu æskuást í viðjar þess smáborgaralega hugsunarháttar, sem setur tryggðargloríu ofar ástinni. Slíkt endar oftast með skelfingu, þ.e.a.s. hreinu tilræði við hið síðarnefnda. Samlíkingin með hundinn var vægast sagt óheppileg. Sú skepna er einmitt eins konar persónugerfing tryggðarinnar og eftir flestum sólarmerkjum að dæma ætti því kjölturakkinn að vera ykkar skjaldar- merki, elskulegar. Orvænting ungfrú B. um karlmennsku vora stingur áberandi í stúf við hroll- vekjandi lýsingu, sem skýr og vel upp- alin busi gefur í sama blaði af vörpu- legum líkamsburðum og vasklegri fram- göngu vorri, en hann mátti hvorugt líta SVARTNÆTTI - svartnætti leggur undir sig daginn og leggst að sál minni eins og tjara - biksvört tjara. Og bráðum koma þeir hlaupandi, lesendur ljóða minna og reyta af sér fiður hroka og lágkúru og maka sál mína. Sál, hví felur þú þig ? Þeir koma hlaupandi með tinnuna. Þeir finna ekki fegurð leyndarmála minna og segja að ég sé myrkrið og nú kveikja þeir í sál minni. Ég brenn í rafljósi jólatrjáa. A. óskelfdu hjarta. Þá þykir mér ungfrú B. alltof ósann- gjörn við sjálfa sig og þær bekkjarsyst- ur, er hún heldur því fram fullum fetum, að þær séu bæði "óspennandi og úreltar." Grunur minn er þvert á móti sá, að vor jómfrú blívi; og löngu eftir að spútnikarnir báðir tveir eru úreltir orðn- ir og öllum gleymdir, þyki æskuleitar yngismeyjar ævinlega jafn spennandi og nýtízkar. Naumast þarf að taka fram, að vér fyrirgefum ungfrúnni fúsu hjarta reiði- lesturinn, vitandi það, að sá er einn af erfðaveikleikum hins norræna kvenkyns, að tala þá þvert um hug sér, er það ber á góma, sem því er hugstæðast. Eða hvort skyldu vorar elskulegu bekkjar- systur ekki muna hin fleygu orð Ósvífurs- dóttur: "En þeim var ek verst, er ek unna mest. "

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.