Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 11

Skólablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 11
43 - í fegurð sinni. En sálin er auðn eins og Sahara á Spáni eða Sýrakusu. r stað þess að fullyrða, að líkami kon- unnar se eins og laufguð björk, stendur þar : Líkami þinn minnir mig á laufgaða björk. Með því að vera í vafa um, hvort auðnin Sahara sé á Spáni eða Sýrakusu, lýsir skáldið anduð sinni á borgaralegri mennt- un og uppskafningshætti. - Svo mælti Jonas. Meistari ! Vér dáum vizku þína. 6. Þér hafið lengi gert yður grein fyrir, hve alvarleg köllun yðar er og hvílík ábyrgð er yður á herðar lögð. En markmið yðar með ljóðasmíð yðar er að uppfræða lýðinn. Þér eruð ofurmenni. Þér eruð snillingar. Þér eruð ekki eins og fjöldinn. Þér hafnið veraldlegum auðæfum, þér hafnið veraldlegri menntun, þér lítið niður á lýðinn, því að : Sæll er sá, sem ekkert á, því hann verður aldrei rændur. Sæll er sá, sem ekkert veit, því hann verður aldrei sakaður um mennta- hroka. Sæll er sá, sem lítur niður á alla, því hann verður aldrei sakaður um hlut- drægni. Og sólin kom upp yfir fjallsbrúnina, og mannfjöldinn laut spámanninum í lotn- ingu og hvarf á braut. Og þeir tóku til starfa meðal lýðsins. Meistari ! Vér dáum vizku þína. HVERSU oft hefur ekki draumur minn kætt minn þunglynda hug og buið mér gleði með fegurð sinni ? Hversu oft hefur ekki draumur minn staðið ljóslifandi fyrir framan mig, brosað og talað um daginn og veginn. Og hvert orð hljómaði í stefi þess draums. Hversu oft hefur ekki þrá mín valdið mér kvíða en ætíð hefur hun, draumurinn minn, verið sólin í myrkri leiðinda og vonleysis. En nu er ég vaknaður. Heillum horfinn var ég flæktur í ársgamlan draum. En nu er ég vaknaður. En hvað það var bráðskemmtilegt að hitta sinn draum að morgni dags. - Ekki er hún nú morgunfríð. - A SAGA í 3,-C 1955 (nú 5.-X) Þórhallur (dreymandi): "Snæfellsnes er sannkallað Gosenland. Þar eru land- kostir svo góðir að allir fslendingar gætu búið þar, leggja mætti veg eftir miðju nesinu og flytja svo alla Tslendinga þang- að. . . " Oli Pé : "Og látaþá Kanann hafa hitt? !" 24. nóv. 1957.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.