Skólablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 16
- 48
RITNEFND fór fram á við mig, að ég
gerði örlitla grein fyrir störfum sels-
nefndar, og þar eð selsnefnd hefur ekkert
á móti því að láta Ijós sitt skína annars
staðar en í selinu, verð ég hér við bón
ritnefndar.
Eins og flestum mun kunnugt, fæddist
selsnefnd í fyrravetur eftir skamman
meðgöngutíma og litlar fæðingahríðir.
Mun það hafa verið Ingólfur Babel og
fleiri þáverandi sjöttubekkingar, sem sáu
í hve herfilegu ástandi selið var, skildu
að hér þurfti aðgerðar við og stofnsettu
selsnefnd, og skyldi hun sjá um viðhald
selsins, en vera selsferðir með öllu óvið-
komandi. í vor var svo kjörinn í nefnd-
ina Guðmundur Ölafsson auk mín, en
Inspector Scholae var samkvæmt lögum
formaður hennar yfir sumartímann.
Frétti ég síðan ekkert af störfum
nefndarinnar fyrr en um mitt sumar, en
þá kvaðst inspector loks hafa fengið leyfi
rektors og menntamálaráðherra til þess
að hefja viðgerðir á selinu strax, þótt
kassi nefndarinnar væri ekki enn fenginn,
hvað þá peningar í hann.
Nu þegar hefur Erlingur gert stór-
merkar uppgötvanir, sem hann reisir á
letri því í Keops-pýramídanum, er hann
hefur ráðið. Þar á meðal eru þær upp-
götvanir, að Einar Magnússon verði að
minnsta kosti 105 ára og Magnús G.Jóns-
son nokkru eldri, og mega því menntling-
ar fara að biðja fyrir börnum sínum og
barnabörnum. Einnig hefur hann komizt
að því, að flugskeyti verði send frá ís -
landi til tunglsins árið 1984 og verði með
því sendir óþurftarmenn hins Sovét-fs-
lenzka ríkis, en það verða hinir þrír
þjóðvarnarmenn, er þá verða eftir.
f málvísindum hefur Erlingur tekið
mikinn þátt og styðst þar við rannsóknir
Ég mun ekki fylla blaðsíðurnar á
stagli um viðgerðarferðirnar hverja um
sig, en geta heldur í stuttu máli afrek-
anna.
f sumar voru alls farnar fjórar ferðir,
allar um helgar, og voru í hverri ferð
frá sjö og allt upp í tuttugu og fimm
manns. Fólkið, sem þarna kom af
frjálsum vilja, var nær eingöngu úr nú-
verandi fimmta og sjötta bekk. Misjafn-
lega gekk að fá það til þess að koma,
flestir brugðu skjótt og vel við í fyrstu
upphringingu, en brögð voru að því, að
þeir sem lofuðu að koma, sviku, og er
það verra en að lofa ekki. En öllum
sem komu var það sameiginlegt, að þeir
vildu gera eitthvað gagn og gerðu það.
Ég vil einnig taka fram vegna misskiln-
ings, sem fram kom í ræðu rektors við
skólasetningu í haust, að fjölmargar
stúlkur voru með í ferðum þessum og
unnu þær ekki síður en piltarnir.
Flestir nemendur munu um þetta leyti
hafa farið fyrstu selsferðina í vetur og
séð að nokkur stakkaskipti hafa átt s er
stað á selinu. Það sem unnið var í
á pýramídum. Hefur hann sýnt fram á,
að fornegypzka orðið kiq-nix-ibingó hafi
þróazt í orðið alþýðubandalag á íslenz;ku.
Reyndar segir hann, að fyrst hafi það
þýtt gegn her í landi, en merkingin hafi
breytzt er vinstri stjórn komst él í
Egyptalandi árið 1056 f.Krist, undir for-
sæti hinnar miklu bogskyttu Aremannos,
er nefndur var hinn kollótti.
Margt fleira mætti skrifa um Erling
Bertelsson, en látum vér nú staðar nurn-
ið. Geta má þess, að bekkjarbræður hans
hafa sæmt hann tignarheitinu Scurra class-
is í þakklætis skyni fyrir vel unnin störí í
fortíð, nútíð og framtíð.
Einar Bjarnason frá /.i.spaí’vík.