Skólablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 19
51
orfSin kona til þess að hafa husmóður-
störf á hendi, en skólastúlkurnar fengnar
til að hjálpa henni, ef mikið stendur til.
í salnum sjálfum verða svo borð hringinn
í kring með veggjunum, og þar geta nem-
endur notið þessara veitinga. Á miðju
gólfi verður svo autt svæði, þar sem fá
má sér snuning. Bókaskáparnir með
veggjunum verða fluttir burt. Þarna niðri
verður allt með meiri nýtízku blæ. "
"Hvenær verður þetta tilbóið?"
"Það er nokkurt vafamál. Upphaflega
átti þetta allt að vera tilbúið í haust. En
málinu seinkaði mikið hjá ýmsum aðilum,
og var hafizt handa miklu síðar, en áætl-
að var. Verkið uppi á íþökulofti er langt
komið, en ekkert hefur ennþá verið gert
niðri í salnum. Nú eru fengin mjög á-
kveðin loforð fyrir því, að settur verði
skriður á verkið nú þegar. Ef við þau
loforð verður staðið, verður vonandi hægt
að opna heimilið seinna í vetur. Að vísu
verður loftið líklega tilbúið fyrr, en það
er ákaflega erfitt að opna aðeins uppi til
þess að byrja með. Þar yrði ákaflega
þröngt, og vont að eiga við veitingar þar.
Viljum við helzt geta opnað allt félags-
heimilið í einu í sinni fullkomnu mynd. "
"Verður ekki opið þarna á hverju
kvöldi? "
"Það fer alveg eftir aðsókn. Ef hún
verður góð, er sennilegt, að þarna yrði
opið á hverju kvöldi. Hvernig rekstrinum
verður bezt hagað, kemur í ljós með
reynslunni. Með tímanum hljóta að skap-
ast ýmsar venjur og traditionir. Auk
þess sem það verður opið á kvöldin,
kemur mjög til greina, að á daginn verði
starfræktur þarna leshringur eða lesstofa,
þar sem fólk getur lesið og lært. Þá
yrðu þarna orðabækur og önnur handhæg
gögn. Einnig væri ef til vill unnt að fá
kennara til að koma þarna og útskýra
ýmislegt í sínum námsgreinum. Svo
verður þetta lánað út fyrir félagsstarfs-
semina hér í skólanum. "
"Þetta hlýtur að verða mikil lyfti-
stöng félagslífs í skólanum."
"Já, það er enginn vafi á því, að öll
kynning meðal nemenda og félags starfs -
semi mun aukast mjög mikið. Hægt
verður að fjölga kynningarkvöldum og
bekkjakvöldum. Öll félagsstarfssemi
breytist áreiðanlega mjög mikið. Niðri í
salnum verða málfundir og dansæfingar,
sem margir munu sækja, en uppi á loft-
inu bókmenntakynningar og annað slíkt,
þar sem ekki mjög margir koma. Þetta
léttir mjög á hátíðasalnum, sem sjálf-
sagt er, að sé aðeins notaður við hátíð-
leg tækifæri. Með þessu félagsheimili
er verið að ryðja alveg nýja braut í
skólamálum landsins, og einungis fyrir
stórhug og bjartsýni Menntamálaráð-
herra og skilning og velvild rektors og
annarra aðila verður þessi draumur að
veruleika. "
"Verða mjög strangar umgengnis-
og hegðunarreglur þarna?"
"Það er alveg áreiðanlegt, að nauð-
synlegt verður að ganga mjög strangt
eftir því, strax í upphafi, að öllum regl-
um verði nákvæmlega fylgt. Reglurnar
verða varla mjög strangar, en því meira
gengið eftir því, að þeim verði fylgt.
Taka verður mjög hart á öllum brotum.
Þarna mega ekki komast á neinir van-
kantar né óregla. Nauðsynlegt verður að
taka strax fyrir allan "leka", sem vart
verður við.
Okkur er ljóst, að þessi starfssemi
getur aldrei orðið langlíf, nema nemend-
urnir séu samtaka og skilji, að hér er
mikil ábyrgð lögð þeim á herðar. Ann-
ars er að minnsta kosti hætta á, að
þarna verði lögreglueftirlit af annarra
hálfu, og þá verður allt miklu þvingaðra.
Æskilegast er, að nemendur hafi sjálfir
allt eftirlit með höndum. Ég er viss
um, að með því verður miklu betri
regla á hlutunum. Ábyrgðin verður þá
þeirra og minni tilhneiging til reglu-
brota. Ef kennarar annast eftirlitið,
verður ábyrgðartilfinning nemendanna
miklu minni, auk þess sem reglur kenn-
ara eru yfirleitt óvinsælar, og menn
álíta sér skylt að brjóta þær.
"Er nokkuð, sem þið vilduð taka
fram að lokum?"
"Ekki nema, að við munum leitast
við sem hingað til að gera allt, sem á
okkar valdi er til að hraða fram^angi
þessa máls,þó þannig, að ekki se rasað
um ráð fram, heldur jafnan fengin skyn-
samlegust lausn á hverju vandamáli.
Og núverandi 6.-bekkingar, er telja sig
átt hafa nemenda stærstan hlut að máli,
Frh. á bls. 58.