Morgunblaðið - 28.12.2009, Síða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2009
Fjárlaganefnd Alþingis fékk áÞorláksmessu bréf frá breskri
lögmannsstofu, Mishcon de Reya,
sem nefndin hafði leitað til um sér-
fræðiálit. Bréfið er svar við ásök-
unum Steingríms J. Sigfússonar
fjármálaráðherra sem hafði í við-
tölum gert allt til að grafa undan
áliti stofunnar.
Einhvern tím-ann hefði
slík árás ráð-
herra ríkis-
stjórnar á er-
lenda sérfræð-
inga sem starfa
fyrir Alþingi
þótt tíðindum
sæta. Atburða-
rásin í Icesave-
málinu hefur
hins vegar verið
svo ævintýraleg að nú kemur ekk-
ert á óvart.
Það hefði þótt tíðindum sæta aðráðherra reyndi að gera lítið
úr álitinu með því að halda því
fram að lögmannsstofan væri
óþekkt, en hún á sér langa sögu og
nýtur virðingar á Englandi og í
Wales.
Enn sérkennilegra var að ráð-herra skyldi halda því fram að
lögmannsstofan hefði ekki haft að-
gang að tilteknum hliðargögnum,
þegar í svari stofunnar kemur
skýrt fram að svo hafi verið.
Síðast en ekki síst hefði einhverntímann talist alvarlegt að ráð-
herra rangtúlki afstöðu sem fram
kemur í sérfræðiáliti. Mishcon de
Reya þarf sérstaklega að leiðrétta
þá missögn fjármálaráðherra að
stofan telji verra að tefja málið en
að afgreiða það strax frá Alþingi.
Hvernig málstað hefur ráðherraað verja sem kemur fram með
slíkum hætti? Og hvernig má það
vera að slíkur málflutningur ráða-
manna komi ekki lengur á óvart?
Steingrímur J.
Sigfússon
Kemur ekkert á óvart lengur?
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík -5 léttskýjað Lúxemborg 0 slydda Algarve 15 skýjað
Bolungarvík -3 snjókoma Brussel 5 skúrir Madríd 6 skýjað
Akureyri -3 snjókoma Dublin 4 léttskýjað Barcelona 13 heiðskírt
Egilsstaðir -5 snjóél Glasgow 2 skúrir Mallorca 13 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -5 léttskýjað London 7 alskýjað Róm 10 léttskýjað
Nuuk -3 frostrigning París 7 léttskýjað Aþena 18 skýjað
Þórshöfn 1 léttskýjað Amsterdam 5 skýjað Winnipeg -11 alskýjað
Ósló -9 alskýjað Hamborg 5 skýjað Montreal 2 þoka
Kaupmannahöfn 4 alskýjað Berlín 2 heiðskírt New York 9 heiðskírt
Stokkhólmur -5 skýjað Vín 3 skýjað Chicago -7 snjókoma
Helsinki -9 skýjað Moskva 1 snjókoma Orlando 13 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
28. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.10 3,3 9.34 1,3 15.34 3,2 21.50 1,1 11:23 15:37
ÍSAFJÖRÐUR 5.21 1,7 11.46 0,7 17.38 1,6 12:08 15:02
SIGLUFJÖRÐUR 1.07 0,4 7.33 1,1 13.46 0,3 20.09 1,0 11:53 14:43
DJÚPIVOGUR 0.16 1,6 6.39 0,7 12.38 1,4 18.42 0,5 11:01 14:58
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á þriðjudag
Norðan og norðaustan 3-10
m/s og él, en léttskýjað SV-
lands. Frost 2 til 12 stig, mildast
við ströndina, en víða kaldara í
innsveitum.
Á miðvikudag og fimmtudag
(gamlársdagur)
Norðanátt, fremur hæg í fyrstu,
en síðan 5-10 m/s. Víða létt-
skýjað, en él við austurströnd-
ina. Áfram kalt í veðri.
Á föstudag (nýársdagur) og
laugardag
Norðaustanátt og él norðan- og
austantil á landinu. Dregur úr
frosti.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hæg norðlæg eða breytileg átt
og él víða um land. Hvessir og
fer að snjóa NA-lands í kvöld.
Frost 0 til 10 stig, mest í inn-
sveitum, en kólnar á morgun.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
DR. STURLA Friðriksson erfða-
fræðingur gaf nýlega út áttundu
ljóðabók sína og heitir hún Ljóð úr
lífshlaupi. Þar birtir Sturla safn
lausavísna, limra og stuttra kvæða
sem hann hefur ort á ýmsum skeið-
um ævi sinnar. Þar á meðal eru
nokkrar af fyrstu vísum og ljóðum
sem hann orti en Sturla er nú á 88.
aldursári.
„Við góð tækifæri reyni ég að
ríma eitthvað og það hef ég gert í
gegnum ævina,“ sagði Sturla. Hann
kvaðst vera kominn af skáldmæltu
fólki í báðar ættir og voru foreldrar
hans ljóðelskir. Guðný skáldkona á
Klömbrum, fyrsta konan sem gaf út
ljóðabók á Íslandi, er langalang-
amma Sturlu. Jarþrúður Jónsdóttir
föðursystir hans var líka skáld-
mælt. Sem drengur lærði Sturla
ljóð og fór hann snemma að yrkja.
Eftirfarandi sléttubönd orti Sturla
þegar hann var aðeins 12 ára og í
fyrsta bekk Gagnfræðaskóla
Reykjavíkur:
Sáran bítur jörðu jel,
jafnvel skrugga kemur.
Báran fleyi vaggar vel,
veður gluggann lemur.
Sturla hefur lesið mikið af ljóðum
um ævina, nema af ljóðum yngri
skálda. Þau hefur hann sniðgengið.
Hann kveðst hafa alist upp við hefð-
bundna ljóðagerð með ljóðstöfum
og rími, en ekki „einhverja rím-
lausa þvælu“. Auk þess að yrkja
hefur Sturla myndskreytt mörg
ljóðanna í bókinni. „Ég er svolítið
drátthagur og þegar ég hef skrifað
dagbók hef ég stundum sett ein-
hverja teikningu inn í hana.“
Ný fyrir jólin kom út önnur bók
eftir Sturlu og heitir hún Heims-
hornaflakk. Þar eru frásögur af
ferðalögum hans víða um heim.
Sturla kveðst oft hafa notað frí-
stundir á ferðalögum til að yrkja. Í
ljóðabókinni Ljóð úr lífshlaupi birt-
ist m.a. kvæðið Vínlandsför. Það
orti Sturla í lok siglingar vestur um
haf með Goðafossi haustið 1942 en
þá stóð seinni heimsstyrjöldin sem
hæst. Þá var Sturla á leið til fram-
haldsnáms við Cornell-háskóla í
Íþöku. Goðafoss sigldi í skipalest og
stóð sjóferðin í 21 dag. Sturla lýsti
ferðalaginu í bragnum og flutti svo
kvæðið fyrir ferðafélagana í ferð-
arlok.
Ljóðabókina tileinkar Sturla
starfsfélögum sínum. Nokkrar
lausavísnanna eru ortar á vinnu-
stað eða í ferðalögum með starfs-
félögum. „Þá hef ég þurft að ergja
þá með einhverjum vísum,“ sagði
Sturla.
Ljóð sem spanna
langt lífshlaup
Morgunblaðið/Eyþór
Ljóðskáld Dr. Sturla Friðriksson
erfðafræðingur sendi nýlega frá sér
sína áttundu ljóðabók.
Ólst upp við hefð-
bundna ljóðagerð
FJÖLMENNI sótti guðsþjónustur í
kirkjum landsins um hátíðar og er
mat sóknarpresta að kirkjusókn hafi
sjaldan verið meiri. „Í þeim hremm-
ingum sem þjóðin er nú að fara í
gegnum hafa margir snúið vörn í
sókn og taka afstöðu með kirkju og
kristinni trú með því að mæta vel í
messu. Ég hef fundið vel fyrir þessu
að undanförnu,“ sagði sr. Óskar Haf-
steinn Óskarsson, sóknarprestur á
Selfossi, í samtali við Morgunblaðið.
Á Selfossi voru tvær messur á að-
fangadagskvöld, hátíðarguðsþjón-
usta á jóladag og fjölskyldumessa á
öðrum degi jóla auk helgihalds á
sjúkrahúsi. Þá eru tíu börn borin til
skírnar á Selfossi um hátíðar og
tvenn brúðhjón ganga upp að alt-
arinu.
Almennt voru helgiathafnir á höf-
uðborgarsvæðinu fjölsóttar og í tutt-
ugu kirkjum þar voru haldnar fimm-
tíu guðsþjónustur. sbs@mbl.is
Helgiathafnir um allt land
fjölsóttar um hátíðarnar