Morgunblaðið - 28.12.2009, Page 15
Fréttir 15VIÐSKIPTI | ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2009
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar auglýsir:
Styrkir til náms
og rannsókna
á sviði umhverfis-
og orkumála
Í boði eru styrkir til nemenda í meistara-
eða doktorsnámi og styrkir til rannsókna
á sviði umhverfis- og orkumála.
Heildarupphæð styrkja að þessu sinni er
allt að 50 m. kr.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu
Landsvirkjunar, www.lv.is.
Fyrirspurnir má senda á netfangið
orkurannsoknasjodur@lv.is.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2010.
Auglýst er eftir umsóknum um námsstyrki og verkefnastyrki
K A K A Á R S I N S 2 0 0 9
Þessi er alveg svakaleg!
Kveðjum árið með köku ársins.
bankinn hefur spáð. Annar vog-
unarsjóðsstjóri, John Paulson, er
að stofna gullsjóð í sama tilgangi.
Bendir á mjög hraða aukningu
peningamagns í bandaríska hag-
kerfinu og segir hana geta leitt til
mikillar verðbólgu á næstu árum.
Tedford spáir nú 3-4 prósenta
verðbólgu í árslok 2010 og 5-6 pró-
senta verðbólgu árið 2011. Hann
varar hins vegar við því að verð-
bólgan gæti orðið mun meiri.
Erfitt aðgengi að
lánsfé í Þýskalandi
Varað við mikilli verðbólgu í Bandaríkjunum á næstu árum
Reuters
Þýska kauphöllin Forsvarsmenn þýskra fyrirtækja kvarta sáran undan
erfiðu aðgengi að lánsfé og vilja að þarlend stjórnvöld leggi þeim lið.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÞÝSK fyrirtæki óttast að takmark-
að aðgengi að lánsfé getið valdið
nýrri lánsfjárkreppu í landinu á
næsta ári, að því er kemur fram í
skoðanakönnun, sem unnin var fyr-
ir Reuters-fréttastofuna.
Stærstu samtök þýskra fyrir-
tækja búast við litlum hagvexti á
næsta ári, en vara við því að hann
geti að engu orðið batni ekki að-
gengi fyrirtækja að lánsfé. Vilja
þau að stjórnvöld hvetji þarlenda
banka til að liðka fyrir um lánveit-
ingar til fyrirtækja.
Á seinni hluta ársins hefur að-
gengi þýskra fyrirtækja að fjár-
magni batnað, en lánsfjármarkaðir
stífnuðu óvænt í desember og hafa
ekki verið erfiðari fyrir fyrirtæki
síðan í júlí.
Varar við verðbólgu
Hans-Peter Keitel, forseti BDI,
samtaka iðnfyrirtækja, segist ótt-
ast að fjármögnun muni enn verða
erfiðari á næsta ári og koma í veg
fyrir efnahagsbata. Segir hann að
botninum hafi verið náð, en langt
sé í að hagkerfið hafi náð bata.
Nokkur ár muni líða þar til hag-
kerfið nái þeim styrkleika sem það
hafði árið 2008.
Fjárfestar í Bandaríkjunum ættu
að festa fé sitt í hrávörum eins og
timbri, olíu, landbúnaðarvörum og
málmum, til að verja sig gegn
óþægilegum afleiðingum verðbólgu,
að sögn Bill Tedford, sérfræðings í
skuldabréfaviðskiptum. Í samtali
við Wall Street Journal, segist
Tedford búast við meiri verðbólgu
á næstu árum en bandaríski seðla-
EFNAHAGSÁÆTLUN japanskra
stjórnvalda gerir ráð fyrir metút-
gjöldum hins opinbera, sem ætlað er
að koma í veg fyrir aðra niðursveiflu
í landinu. Munu útgjöld ríkisins
nema um 125.000 milljörðum króna
og ný skuldabréfaútgáfa um 60.000
milljörðum. Er ætlunin að hvetja til
meiri einkaneyslu, t.d. með stuðningi
við barnafjölskyldur. Skuldir jap-
anska ríkisins eru nú þegar á við tvö-
falda verga landsframleiðslu.
Japanar auka
opinber útgjöld