Morgunblaðið - 28.12.2009, Síða 16
16 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2009
VÍSINDAMENN í Bandaríkjunum leggja til að flug-
félög minnki orkunotkun farþegavéla með því að láta
þær fara á milli milli áfangastaða í oddaflugi eins og
gæsir, að sögn Guardian. Þýskur fræðimaður, Carl
Wieselsberger, sýndi fram á það með útreikningum
fyrir nær 100 árum að gæsir notuðu oddaflug vegna
þess að fremsta gæsin skapaði með vængjatakinu
uppstreymi lofts sem þýddi að hinar þyrftu minni
orku til að blaka vængjunum og gætu því flogið
lengra.
Franskir vísindamenn hafa gert tilraun með pelík-
ana sem voru þjálfaðir í að fljúga í kjölfar flugvélar
en mælitæki voru fest á fuglana. Í ljós kom að hjart-
slátturinn varð hægari hjá fuglunum í hópnum en
fuglum sem flugu einir. Talið er að með oddafluginu
geti fuglarnir flogið allt að 70% lengri vegalengd en
ella.
Rannsóknateymi undir forystu Ilan Kroos, prófess-
ors við Stanford-háskóla í Kaliforníu, segir að flugvél
myndi nota að jafnaði 15% minna eldsneyti ef aðferðin
yrði tekin upp. Auk sparnaðarins myndi einnig verða
losað mun minna af koldíoxíði sem talið er geta valdið
gróðurhúsaáhrifum og hlýnun jarðar. Flugfélög reyna
nú í örvæntingu að finna leiðir til að minnka losunina
en verði jafnmikil aukning í flugi og spáð er næstu
tvo áratugina verður farþegaflug ein af helstu orsök-
um aukins magns koldíoxíðs í andrúmsloftinu.
Vandinn er að oddaflug gæti stefnt flugöryggi í
voða og einnig gæti orðið ákaflega snúið að samræma
flugáætlanir. Kroo og liðsmenn hans segja að hægt
verði að leysa þau vandamál með því að þróa hug-
myndina frekar. kjon@mbl.is
Þotur taki upp oddaflug
Flugsérfræðingar benda á
að þannig megi spara orku
Minnst
fjórir
féllu í
Teheran
ANDÓFSMENN sjást hér berjast
við lögreglu á götum Teheran,
höfuðborgar Írans, í gær. Minnst
fjórir féllu í átökunum sem eru
þau hörðustu í meira en hálft ár.
Var frændi andstöðuleiðtogans og
forsetaframbjóðandans Mir Hoss-
eins Mousavis meðal hinna föllnu.
Um 300 manns voru hand-
teknir, að sögn Ahmads Reza
Radans aðstoðarlögreglustjóra
sem staðfesti að fjórir hefðu týnt
lífi, þrír þeirra af slysförum. Einn
hefði fallið fyrir byssukúlu en lög-
reglan hefði ekki beitt skotvopn-
um.
Opinbera fréttastofan Fars sak-
aði erlenda fjölmiðla um að æsa
til óeirða en svartir reykj-
arbólstrar stigu til himins yfir
borginni. Á vefsíðum róttæklinga
voru sýnd myndskeið þar sem
særðir mótmælendur voru bornir
burt af götum Teheran. Á einni
vefsíðunni sagði að lögreglumenn
hefðu neitað að hlýða fyrirskip-
unum um að skjóta á mótmæl-
endur. Mótmælendur hrópuðu
„Þetta er mánuður blóðsúthell-
inga“ og kröfðust þess að æðsta-
klerki Írans og voldugasta manni
landsins, ajatollah Ali Khamenei,
yrði steypt af stóli. kjon@mbl.is Reuters
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÖRYGGISREGLUR voru hertar mjög á flug-
völlum um allan heim í gær í kjölfar misheppn-
aðrar tilraunar 23 ára gamals Nígeríumanns, Um-
ars Farouks Abdulmutallabs, til að sprengja upp
farþegavél Northwest-félagsins með 290 manns
um borð yfir Detroit á jóladag. Annar Níger-
íumaður var handtekinn eftir að sama vél lenti í
Detroit í gær en ekki var ljóst hvað hafði gerst um
borð. Hann mun hafa læst sig inni á salerni.
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur gefið
skipun um að farið verði yfir viðvörunarkerfi sem
notað er til að fylgjast með fólki sem grunað er um
lausleg tengsl við hryðjuverkasamtök en Níger-
íumaðurinn var á lista yfir þannig fólk. Alls munu
vera um 550 þúsund manns á
nokkrum gátlistum en talið er
að samvinnu skorti milli ým-
issa stofnana vestra sem ann-
ast öryggismál.
Abdulmutallab, sem er
menntaður í Bretlandi, Dubai
og Jemen, kom frá Amsterdam
til Detroit í Bandaríkjunum og
embættismenn Evrópusam-
bandsins rannsaka nú hvort
farið hafi verið eftir öryggis-
reglum á flugvöllum.
Farþegar yfirbuguðu Abdulmutallab þegar
hann reyndi að sprengja efni sem hann faldi á sér
en kveikibúnaður hans mun ekki hafa virkað.
Bandaríkjamenn segja að ekkert bendi til þess að
Nígeríumaðurinn sé þátttakandi í stærri áætlun
al-Qaeda samtakanna. „Það er ekkert sem bendir
til þess að tilræðið sé liður í stærri áætlun, en
rannsóknin heldur að sjálfsögðu áfram,“ segir Ja-
net Napolitano heimavarnaráðherra.
Engin tengsl við al-Qaeda
Miklar truflanir á alþjóðaflugi vegna hryðjuverkatilraunar í vél Northwest
Annar Nígeríumaður handtekinn í sömu vél eftir lendingu í Detroit í gær
Reuters
Töf Farþegar í biðröð á alþjóða-
flugvellinum í Chicago.
Umar Farouk
Abdulmutallab
Í HNOTSKURN
»Abdulmutallab er múslími og sonurauðugs bankamanns í Nígeríu en sleit
nýlega öll tengsl við fjölskyldu sína.
»Faðirinn lét nýlega bandaríska sendi-ráðið og leyniþjónustu Nígeríu vita af
áhyggjum sínum vegna ofstækis sonarins.
Norðmaðurinn
Knut Haugland,
sem var síðasti
maðurinn á lífi úr
áhöfn Kon Tiki-
leiðangursins árið
1947, lést á jóla-
dag, 92 ára að
aldri. Fimm
Norðmenn og
einn Svíi sigldu á
flekanum Kon Tiki frá Perú um
8.000 km leið yfir Kyrrahafið til Suð-
urhafseyja á 101 degi til að sanna
kenningar stjórnandans, Thors
Heyerdahls, um að Inkar frá Suður-
Ameríku hefðu numið eyjarnar.
kjon@mbl.is
Haugland
látinn
Knut Haugland
STUNDUM gerir jólasveinninn
ófyrirgefanleg mistök. Tveir sænsk-
ir strákar, átta og tólf ára, í borginni
Gällivare í norðurhluta landsins
voru svo óánægðir með jólagjafirnar
sínar að þeir struku að heiman á að-
fangadag, að sögn blaðsins Norr-
ländska sosialdemokraten.
Foreldrarnir hringdu áhyggju-
fullir í lögregluna um sjöleytið á að-
fangadagskvöld og sögðu drengina
hafa horfið. Fjöldi lögreglumanna
hóf þegar leit og leigubílstjórar voru
einnig beðnir um að hafa augun hjá
sér ef þeir sæju grunsamlega stráka.
Tveim klukkustundum síðar fundust
þeir á ráfi í miðborginni eftir ábend-
ingu frá leigubílstjóra. kjon@mbl.is
Jólasveinninn
gerir mistök
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
SVO getur farið að reglum um birt-
ingu skattskráa í Noregi verði breytt
vegna þess að glæpamenn eru sagðir
nota upplýsingarnar. Lögreglan í
tveim umdæmum hefur rannsakað
málið og telur að vísbendingar séu
um slíka misnotkun, að sögn Aften-
posten.
„Könnunin bendir til þess að lík-
legt sé að skattskrárnar séu notaðar
til að skipuleggja ýmiss konar glæpi,
til dæmis rán, hótanir, þjófnaði og
svik,“ segir í skýrslu norsku lögregl-
unnar til dómsmálaráðuneytisins í
Ósló. Nefnt er m.a. dæmi um bréf til
nokkurra tekjuhárra Óslóbúa í októ-
ber. Þeim var hótað öllu illu ef þeir
borguðu ekki stórar summur.
Deilt er um birtingu skattskránna
á hverju ári í Noregi eins og hér á
landi. Sumum finnst óþarfi að leyfa
öllum að hnýsast í mál sem í reynd
komi aðeins við embætti skattstjóra
og umræddum skattborgara. Á móti
eru sett fram þau rök að aðgangur að
skránum auki aðhald og dragi þann-
ig úr tilraunum til skattsvika.
Ætla að kanna málið vandlega
Dómsmálaráðuneytið norska, sem
bað lögregluna um að rannsaka
hvort glæpamenn notuðu upplýsing-
arnar, sendi gögnin áfram til fjár-
málaráðuneytisins sem hyggst nota
þau sem grundvöll ef ákveðið verður
að breyta reglum um birtinguna. Í
fjármálaráðuneytinu segjast menn
ætla að fara í saumana á þessu máli.
„Komi í ljós að gera þurfi breyt-
ingar mun ráðuneytið stefna að því
að þær taki gildi áður en skattskrár
verða lagðar fram haustið 2010,“
segir í svari fjármálaráðuneytisins.
Skattskrám
lokað í Noregi?