Morgunblaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2009
Nú eru mennað takaupp þráð-
inn á Alþingi. Þeir
ætla að koma sam-
an á milli jóladaga
og gamlársdags og
leitast við að fá
hundraða millj-
arða ríkisábyrgð
samþykkta með eins atkvæðis
meirihluta og er þá Þráinn
Bertelsson hafður innan sviga,
en þar hefur hann haldið sig að
undanförnu. Fari þetta eins og
ríkisstjórnin er að stofna til er
stutt í að einn versti dagur í
sögu Alþingis sem löggjaf-
arstofnunar renni upp.
Fyrrverandi formaður Sam-
fylkingar birti nýverið yfirlýs-
ingu, þar sem fram kemur að
núverandi ríkisstjórn getur
ekki vísað til fyrri stjórnar
allri ábyrgð varðandi Icesave-
samningana eins og hún hefur
margreynt. Það hafi engin
bindandi niðurstaða af nokkru
tagi legið fyrir við ríkisstjórn-
arskipti. Fyrri ríkisstjórn
hefði vissulega viljað láta
reyna á samningaleið og þá
skyldi byggt á forsendum sem
tóku raunverulegt mið af efna-
hagsástandi á Íslandi og
greiðslugetu þjóðarinnar og
jafnframt höfð hliðsjón af að
gallað regluverk Evrópusam-
bandsins um innistæðutrygg-
ingar á sína stóru sök á hvern-
ig fór.
Nú er staðan sú, að engum
af þessum þáttum hefur verið
haldið til haga og íslenskir
samningamenn virðast hafa
gengið til viðræðna við hina
aðgangshörðu kröfugerð-
armenn bognir og
bitnir af sök og
samvisku. Slíkir
menn eru ekki til
stórræða, og þess
vegna fór sem fór.
Þessi mynd verður
ein lesin út úr
greinargerð fyrr-
verandi formanns
Samfylkingarinnar. Sú mynd
sem þannig blasir við er býsna
athyglisverð. En athyglisverð-
ari þó eru viðbrögð þingmanna
Samfylkingar við orðum fyrr-
verandi formanns síns. Það
verður ekki séð að þeir geri
neitt með þau, heldur láti allt
hennar tal sem vind um eyrun
þjóta. Þeir hljóta þó að sjá að
botninn er þar með dottinn úr
helstu kenningunni sem notuð
hefur verið til að afgreiða
ríkisábyrgðarmálið blindandi
af hálfu samfylkingarmanna.
Yfirlýsingin sýnir skýrt að
ríkisstjórnin stóð ekki frammi
fyrir gerðum hlut. Stjórn-
arandstaðan er ekki að hlaupa
frá samningum sem for-
ystumenn stærsta stjórn-
arandstöðuflokksins höfðu
komið að ásamt forystu Sam-
fylkingar. Framangreindir
tveir flokkar höfðu vissulega
ekki hafnað því að láta á samn-
ingagerð reyna, áður en síð-
asti kosturinn, dómstólaleiðin,
yrði tekinn. En samn-
ingagerðin sú var skilyrt og
bundin skýrum forsendum.
Þau skilyrði voru ekki virt. Á
þeim forsendum var ekki stað-
ið. Hryggðarmynd núverandi
samnings hangir um háls nú-
verandi ríkisstjórnar og
hvergi annars staðar.
Skýrt er fram komið
að ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og
Samfylkingar hafði
ekki skuldbundið
þjóðina með Ice-
save-samningum. }
Vondur dagur í vændum
Flest hryðju-verk sem
öfgahópar vinna
bitna á borgurum,
sem ekkert hafa til
saka unnið. Skýr-
ingarnar eru þær
að helstu forystumenn stór-
þjóða sem hryðjuverkamenn
telja sig eiga sökótt við njóta
öflugrar verndar sérþjálfaðs
fólks. Og árásir gegn almenn-
um borgurum vekja ógn og
skelfingu sem er viðvarandi.
Áhrifa- og ógnunarvald
hryðjuverkamanna vex að
sama skapi. Sérhver ferða-
langur, sérstaklega í milli-
landaflugi, sætir óþægindum
og tortryggni og jafnvel nið-
urlægjandi eftirliti í fyrsta
hluta síns ferðalags. Ekki þýð-
ir að mögla, menn eiga ekki
annan kost. Fáar
fréttir hafa borist
um að sprengiefni
hafi fundist við
vopnaleit, svo um-
fangsmikil sem
hún er um allan
heim. Vonandi er það vegna
fælingarmáttar hennar. En
fyrir kemur að óþokkarnir
hafa sloppið í gegn og tvívegis
hefur farþegum í háloftum
tekist að yfirbuga menn sem
ætluðu að sprengja vél í loft
upp. Slík tilvik verða til þess
að þrengja enn kost og auka
óþægindi farþega, draga úr
ferðavilja og auka útgjöld ein-
staklinga og ríkja. Hryðju-
verkamenn hafa því náð að
skaða efnahagslíf og öryggis-
tilfinningu fólks. Til þess er
leikurinn einnig gerður.
Litlu munaði að
hryðjuverkamaður
tortímdi hundruðum
farþega.}
Hryðjuverkamenn
vinna hálfan sigur
Í
upphafi nýrrar ljóðabókar Gyrðis Elí-
assonar, Nokkur orð um kulnun sól-
ar, dregur hann upp mynd á ferðalagi
um hálendið og skáletrar til skýr-
ingar: „Smáskilaboð til Kristjáns
Fjallaskálds“:
Vegurinn inn á Sprengisand
er ljós í fyrstu
en verður svo hægt
og hægt dekkri
Þannig er líka vegurinn
að dauðanum
„Á Kaldadal“ nefnist vísan alkunna sem
Gyrðir vísar til:
Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima;
nú er horfið Norðurland,
nú á ég hvergi heima.
Mörkin á milli lífs og dauða eru óljós fyrir skáldinu;
þetta er sami vegurinn. Og kannski leitar það aldrei
sterkar á mann en í óbyggðum. Þar eru endimörk
mannlegs samfélags. Endalok Ragnars Kjartanssonar
myndlistarmanns voru í Feneyjum, sem eru að sökkva
í sæ. En dauðinn er víðar en í Feneyjum. Hrjóstrug
náttúran á norðurhjaranum eirir engum. Í því faðm-
lagi getur sálin myrkvast, eins og ljóðabrotið ber með
sér:
Í tjaldi við Drekagil
vakna ég um miðja nótt
af þungum draumi
inn í annan enn þyngri
(sem er lífið sjálft)
Enn leitar Gyrðir á kunnuglegar slóðir í
ljóðinu „Svartnætti í Langadal“. Og maður
hlýtur að dást að þrákelkninni að fara um því-
líkan skuggadal til að sækja ljósið við leið-
arendann, eins og höfundur vísunnar þjóð-
kunnu hefur ekki talið sér eftir:
Ætti ég ekki vífaval
von á þínum fundum,
leiðin eftir Langadal
löng mér þætti stundum.
En kvæði Gyrðis eru ekki aðeins myrk; þau eru öðrum
þræði kómísk og tilþrifin minna stundum á Þórarin Eld-
járn. Freistandi er að álykta að ljóðið „Undur í Þistilfirði“
vísi til frægrar fyrirsagnar úr Íslendingi: „Negri í Þistil-
firði“. Og svo er það hrossaflugan. Þegar systir mín bjó í
Skotlandi fylltist heimilið af hrossaflugum, svo henni varð
nóg um, en skoskt vinafólk hennar sagði hughreystandi:
„Þetta er vorboði!“ Í Nútímamanninum má greina vissa
aðdáun hjá Gyrði á flugum sem eru vinsælar hjá Skotum:
Ég gæti þegið
leiðbeiningar
í hugleiðslutækni
hrossaflugunnar.
Pétur
Blöndal
Pistill
Af ljóðum
11 ára fangelsi fyrir
að krefjast umbóta
FRÉTTASKÝRING
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
K
ínversk stjórnvöld eiga
erfitt með að kyngja
gagnrýni. Þegar gagn-
rýnin beinist að
flokksræðinu, yfir-
ráðum eins flokks yfir Kína, tekur
steininn úr. Á jóladag var Liu Xi-
aobo dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir
málflutning sinn. Viðbrögð víða um
heim voru að saka kínversk stjórn-
völd um ofsóknir á hendur pólitísk-
um andstæðingum.
Liu var gefið að sök að „hvetja til
undirróðurs gegn ríkisvaldinu“ eins
og það er orðað í kínverskum lögum.
Hann var handtekinn fyrir ári fyrir
að vera einn af höfundum pólitískrar
yfirlýsingar, Charter 08, þar sem
krafist er umbóta og mannréttinda.
Tíu þúsund manns hafa undirritað
yfirlýsinguna þar sem segir meðal
annars að gera eigi „málfrelsi,
prentfrelsi og akademískt frelsi al-
gilt og tryggja þannig að borgarar
geti verið upplýstir og neytt réttar
síns til pólitísks aðhalds“. Í yfirlýs-
ingunni er einnig hvatt til að undir-
róðurslögin, sem notuð voru til að
dæma Liu, verði afnumin. Liu verð-
ur 54 ára gamall í dag. Hann er rit-
höfundur og hefur um langt skeið
hvatt til umbóta og lýðræðis í Kína.
Þegar stjórnvöld létu til skarar
skríða eftir sex vikna mótmæli á
Torgi hins himneska friðar 3. júní
1989 tók Liu þátt í að semja um að
þúsundir mómtælenda fengju að
komast af vettvangi óáreittar. Hann
var handtekinn fyrir þátt sinn í mót-
mælunum á Torgi hins himneska
friðar skömmu eftir að þau voru
kveðin niður með hervaldi og látinn
laus aftur í upphafi 1991 án kæru.
Þrjú ár í þrælkunarbúðum
Liu var handtekinn á ný fyrir að
sækjast eftir því að þeir, sem voru
settir í fangelsi eftir mótmælin á
Torgi hins himneska friðar, yrðu
látnir lausir og andæfa dómi stjórn-
valda um að mótmælin væru upp-
reisn gegn kínversku byltingunni.
Honum var refsað með vist í þrælk-
unarbúðum frá 1996 til 1999.
Liu er með doktorspróf í kín-
verskum bókmenntum og var pró-
fessor við háskóla í Peking (Beijing
Normal University), en eftir mót-
mælin 1989 hefur honum verið bann-
að að kenna við ríkisstofnanir.
Honum hefur einnig verið bannað
að birta skrif sín í Kína, en margt
eftir hann hefur birst í Hong Kong
og víða erlendis. Sumt af þessum
skrifum er hægt að nálgast á netinu
innan Kína og er sagt að þau hafi
verið notuð gegn honum í réttar-
höldunum.
Liu er kvæntur. Kona hans, Liu
Xia, mátti ekki að fylgjast með rétt-
arhöldunum, en fékk að hitta hann í
tíu mínútur á jóladag og sagði eftir
þann fund að hann myndi áfrýja
dómnum. Ýmsum öðrum var einnig
meinaður aðgangur, þar á meðal
kínverskum andófsmönnum og vest-
rænum stjórnarerindrekum.
Fjöldi manns, sem styður yfirlýs-
inguna Charter 08, hefur stutt Liu.
Margir hafa undirritað yfirlýsingu
þar sem segir að eigi að rétta yfir
Liu á þessum forsendum „eigum við
allir heima í dómsalnum með honum
og verði hann dæmdur sekur um
„glæp“ mun sá dómur standa sem
yfirlýsing um að hver okkar hafi
einnig framið þann glæp“.
Reuters
Handtaka Stuðningsmanni Liu Xiaobo ýtt inn í lögreglubíl í Peking eftir
ryskingar við lögreglu fyrir utan dómsalinn þar sem réttað var yfir Liu.
Tíu þúsund manns hafa skrifað
undir yfirlýsingu þar sem þess er
krafist að kínversk stjórnvöld
geri umbætur og virði mannrétt-
indi. Einn þeirra var dæmdur í 11
ára fangelsi á jóladag.
Yfirvöld í Kína láta fylgjast ræki-
lega með andófsmönnum. Réttar-
höldin yfir Liu Xiaobo, sem var
dæmdur í 11 ára fangelsi meðal
annars fyrir að undirrita yfirlýs-
ingu, Charter 08, þar sem krafist
er umbóta, bera því vitni hvað
kínversk stjórnvöld óttast andóf.
Þau gera lítið úr yfirlýsingunni,
en þó er bannað að nefna hana í
fjölmiðlum og netsíur notaðar til
að hreinsa hana burt af netinu.
303 einstaklingar undirrituðu yf-
irlýsinguna upprunalega og hefur
lögreglan heimsótt þá alla til að
vara þá við því að fylgja henni eft-
ir.
Þá er augljóst að tímasetning
réttarhaldanna yfir Liu miðaðist
við að lítið færi fyrir þeim. Þegar
tilkynnt var um réttarhöldin voru
umhverfismál í deiglunni í Kaup-
mannahöfn og dómur var felldur á
jóladag til þess að hann vekti sem
minnsta athygli á Vesturlöndum.
››
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
ÓTTINN
VIÐ ANDÓF