Morgunblaðið - 28.12.2009, Síða 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2009
✝ Guðmundur Sö-ren Magnússon
fæddist í Reykjafirði,
Vestur-Barðastrand-
arsýslu 8. október
1922. Fyrrverandi
bóndi í Hrauni í
Keldudal og síðar
Brekku í Dýrafirði.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspítalans
í Kópavogi 15. desem-
ber sl.
Foreldrar hans
voru Guðmunda
Kristín Guðmunds-
dóttir, f. 5.11. 1896, d. 15.7. 1976, og
Magnús Helgi Guðmundsson, f. 29.1.
1888, d. 22.1. 1961. Guðmundur Sö-
ren átti einn bróður, Guðmund Frið-
geir Guðmundsson, f. 2.5. 1927, d.
22.6. 2004. Þau bjuggu á Suðureyri
við Súgandafjörð þar til Guð-
mundur Sören var sjö ára er fjöl-
skyldan flutti að Hrauni í Keldudal
árið 1929. Þar ólst hann upp við öll
almenn sveitastörf og reri til fiskj-
ar. Hann tók síðan við búi foreldra
sinna er þau ásamt bróður hans
fluttu inn að Þingeyri í Dýrafirði.
Guðmundur Sören kvæntist
ur börn. 7) Meybarn, f. 22.11. 1954,
d. 22.11. 1954, andvana fædd. 8)
Mikael Ágúst, f. 5.8. 1956, sambýlis-
kona hans er Alexandra Sineenard
Prangsri, hún á einn son frá fyrra
sambandi. Hann á fjögur börn frá
fyrra hjónabandi. 9) Ingibjörg
María, f. 15.3. 1959, eiginmaður
hennar er Þráinn Sigurðsson. Þau
eiga tvær dætur. 10) Jónína Björg, f.
11.9. 1961, en hún lést 13.6. 2008,
eiginmaður hennar var Hnikarr
Antonsson. Þau eignuðust þrjú
börn. 11) Sigríður Gerða, f. 1.2.
1966, sambýlismaður hennar er Ás-
kell Sigurðsson. Þau eiga tvö börn.
12) Katrín, f. 18.5. 1967, sambýlis-
maður hennar var Áskell Bjarnason
sem lést 6.6. 2005. Hún á tvö börn.
Guðmundur Sören og Kristín
voru síðustu ábúendur á Hrauni í
Keldudal en þau fluttu árið 1957 að
Brekku í Brekkudal sem er skammt
frá Þingeyri. Þar átti fjölskyldan
síðan heima þar til íbúðarhús þeirra
brann í nóvember 1964. Þá fluttust
þau til Þingeyrar þar sem þau hafa
búið síðan, en Guðmundur Sören
hélt áfram búskap á Brekku þótt
hann byggi á Þingeyri. Hann lét af
bústörfum 1998 er hann seldi
Brekku. Ásamt því að vera bóndi
vann Guðmundur Sören ýmis störf á
Þingeyri.
Útför Guðmundar Sörens verður
gerð frá Þingeyrarkirkju í dag,
mánudaginn 28. desember, og hefst
athöfnin kl. 14.
Kristínu Gunn-
arsdóttur, f. 17. júlí
1931 í Reykjavík. For-
eldrar hennar Guðrún
Árnadóttir, f. 14.6.
1903, d. 24.2. 1968, og
Gunnar Ingiberg Ingi-
mundarson, f. 17.4.
1894, d. 4.3. 1965.
Guðmundur Sören og
Kristín eignuðust 12
börn: 1) Bjarni, f. 29.5.
1945. 2) Guðrún Finn-
borg, f. 11.8. 1948, en
hún lést 16.1. 1972,
eiginmaður hennar
var Pétur Jakob Líndal sem lést
27.10. 1974. Þau eignuðust eina
dóttur. 3) Guðmunda Kristín, f.
30.10. 1949, eiginmaður hennar er
Höskuldur Ragnarsson og eiga þau
þrjú börn. 4) Magnús Helgi, f. 21.11.
1950. 5) Sigurveig, f. 13.2. 1952,
sambýlismaður hennar er Sölvi Ell-
ert Sigurðsson og eiga þau tvö börn.
Fyrir átti hún fjögur börn af fyrra
hjónabandi með Guðmundi Júní
Proppé sem lést 5.1. 2003. 6) Gunn-
ar Benedikt, f. 22.11. 1953, eig-
inkona hans er Guðrún Kristín
Ingimundardóttir og eiga þau fjög-
Mjök erum tregt
tungu at hræra
eða loptvætt
ljóðpundara;
esa nú vænligt
of Viðurs þýfi
né hógdrægt
ór hugar fylgsni
(Egill Skallagrímsson)
Elsku pabbi við kveðjum þig nú
með harmi og söknuð í hjarta en
minnig þín mun ætíð lifa með okk-
ur. Við minnumst þín með þakklæti
og ást í huga fyrir allt sem þú
gerðir fyrir okkur. Þú varst mjög
fróður um allt, víðlesinn og ávallt
tilbúinn til að lesa fyrir okkur og
uppfræða og sérstakt dálæti hafðir
þú á Íslendingasögunum. Við gát-
um alltaf leitað til þín því ráðagóð-
ur varstu.
Við minnust ófárra ferða í
Keldudalinn þinn sem var þér svo
hugleikinn þar sem þú þekkir
hvern steinn og hverja þúfu frá því
þú áttir heima þar sem barn og
seinna meir sem bóndi í Hrauni.
Það voru alltaf skemmtilegar og
fræðandi ferðir. Einnig minnumst
við bústarfana á Brekku, vetur,
sumar, vor og haust, sem við tók-
um öll þátt í með þér og mörg
skemmtileg atvik rifjast upp. Það
var alltaf svo gaman að vera með
þér pabbi.
Það var stutt í grallarann í þér
og þú hafðir góða kímnigáfu.
En fyrst og síðast munum við
þig sem ástríkan, umhyggjusaman
og fræðandi föður sem við litum öll
upp til.
Elsku mamma, þú stóðst við hlið
pabba í blíðu og stríðu öll þessi ár,
þið studduð og styrktuð hvort ann-
að og undir það síðasta annaðist þú
hann í veikindum sínum og gerðir
honum kleift að vera sem lengst
heima en þar vildi hann vera. Sam-
an styðjum við og styrkjum hvert
annað í sorg okkar og söknuði og
höldum á lofti minningu hans.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Guð geymi þig elsku pabbi okk-
ar.
Þín börn,
Bjarni, Guðmunda Kristín,
Sigurveig, Magnús Helgi,
Gunnar Benedikt, Mikael
Ágúst, Ingibjörg María,
Sigríður Gerða og Katrín.
Elsku afi minn þú varst einstak-
ur maður og ég leit ávallt upp til
þín, þú varst vitur maður og víðles-
inn sem gast frætt mig um heima
og geima betur en nokkur annar.
Þú sagðir ávallt skemmtilegar sög-
ur og það var alltaf svo gaman að
koma til ykkar ömmu og gott að
geta spjallað við hann afa sinn.
Ég man sérstaklega eftir því
þegar ég var í fyrsta sinn ein fyrir
vestan á Þingeyri hjá þér og
ömmu, ég var með hroðalega
heimþrá svo að þú leyfðir mér að
sofa á milli þín og ömmu. Svo
dróstu upp bláu stílabókina og last
fyrir mig eina sögu og það var
besta saga sem ég hafði heyrt. Öll
heimþráin hvarf og ég var handviss
um að þetta væri fyndnasta saga
sem ég hefði heyrt. Mér finnst hún
ekki jafnfyndin í dag þegar ég
heyri hinn rétta höfund lesa upp
söguna af því hann er ekki afi og
enginn segir sögur eins og afi.
Þegar þú tókst upp á því að gefa
mér kindina Slaufugránu í jólagjöf
var það besta gjöf sem ég hef feng-
ið og á hverju vori hringdir þú til
að leyfa mér að skíra lömbin henn-
ar, ég hlakkaði alltaf til þess. Ég á
margar góðar minningar um þig afi
minn og allan þann tíma sem við
eyddum saman, alltaf þegar ég
minnist þín fylgja endurminning-
unum hlýja og hamingja. Þú varst
uppátækjasamur og hafðir lausn á
flestu, góður og fróður afi og ég
mun sakna þín mjög. Vertu sæll afi
minn og guð geymi þig. Elsku
amma ég bið Guð að hugga þig og
styrkja.
Kristín Áskelsdóttir.
Elsku afi. Þegar við reynum að
rita nokkur orð um afa er erfitt að
velja úr öllum þeim ótal góðu
minningum sem við eigum. Allar
okkar minningar eru fullar af
hlýju, ást, kímni og þakklæti. Það
eru ekki allir sem njóta þeirra for-
réttinda að eiga besta afa og ömmu
í heimi. Alltaf var hægt að leita til
þeirra ef eitthvað kom upp á, eða
bara ef okkur langaði að sitja í
fanginu á afa og hlusta á sögu. Það
var líka það sem var erfiðast við að
flytja frá Þingeyri, að geta ekki
lengur bankað uppá hjá þeim.
Fyrstu jólin okkar fyrir sunnan
voru ömurleg, okkur fannst þetta
ekki vera mikil jól. Við vorum vön
að fara í kvöldkaffi til þeirra á að-
fangadag. Og hangikjötið í hádeg-
inu á jóladag. Það voru alvöru jól.
Margar lífsreglurnar lagði hann
okkur. Vinna fyrir hlutunum.
Standa sig í vinnu. Vera fljótur að
vinna, fljótur að éta og fljótur að
sk … jah þið lesið á milli línanna.
Upptalningin er endalaus, allt sem
hann kenndi okkur. Allt sem við
upplifðum með honum, kristaltær-
ar minningar sem gætu fyllt heilu
bindin. Við látum þessa upptaln-
ingu nægja í bili. Það er sárt að
horfa á eftir afa.
Elsku afi, nú ert þú horfinn á
fund forfeðra þinna. Á fund kærra
ástvina. Hvíldu í friði. Takk fyrir
allt.
Elsku amma, Guð veri með þér.
Óli, Dagný og Fjóla
Mikaelsbörn.
Við viljum ekki sleppa,
við viljum hafa að eilífu.
Við viljum ekki sleppa,
þá þurfum við aldrei að gleyma.
Því við eigum minningar,
minningar um gleði og hamingju,
minningar um grát og sorgir.
En það dýrmætasta sem við eigum
eru minningarnar um afa.
Minningarnar um þann mann
sem við virtum og dáðum.
Minningarnar sem að eilífu eiga eftir
að lifa.
Þegar við fengum símtalið að
heiman um að afi hefði fallið frá
byrjuðu minningar að streyma
fram, minningar frá Brekku, frá
Keldudal, frá Fjarðargötu og frá
Bekkugötu. Endalausar minningar
um visku og fróðleik.
Það var alveg sama hvað var
verið að gera, afi hafði alltaf þá
guðsgjöf að geta deilt fróðleik.
Það var nú ekki sjaldan, þegar
við vorum öll samankomin í Keldu-
dal á okkar árlega ættarmóti, að
afi og Geiri heitinn frændi löbbuðu
með okkur um dalinn og spjölluðu
um staðhætti og gamla tíma og það
skipti ekki máli hvort það voru full-
orðnir eða börn, allir hlustuðu og
reyndu að ná sem flestu og muna
sem flest. Það sama var upp á ten-
ingnum þegar kom að Brekku, afi
hafði alltaf tíma til að segja okkur
krökkunum frá fjöllunum, steinun-
um, lækjunum og sögu alls í kring.
Afi kenndi okkur mjög snemma
að bera virðingu fyrir öllu í nátt-
úrunni, sérstaklega fyrir dýrum og
plöntum, og höfum við aldrei
kynnst manni sem vissi eins mikið
um náttúruna og afi gerði.
Afi, það er svo sárt að geta ekki
komið og verið á landinu núna, að
geta ekki fylgt þér til þinnar hinstu
hvílu. Við erum svo þakklát fyrir
þær stundir sem við áttum saman í
sumar, fyrir að hafa getað farið
fyrir nes saman og geta spjallað
um daginn og veginn.
Elsku amma, allar okkar hugs-
anir eru hjá þér á þessum tímum
og þú veist að við erum alltaf hjá
þér.
Hvíl í friði elsku afi.
Ásta, Hugrún og fjölskyldur.
Nú ertu farinn frá okkur elsku
afi minn. Þú háðir hetjulega bar-
áttu við illvígan sjúkdóm og eins og
alltaf í lífinu þegar á móti blés
stóðstu þig eins og hetja. Mig lang-
ar að þakka þér fyrir allar ynd-
islegu stundirnar sem ég átti með
þér, það eru orðin ansi mörg ár
síðan ég uppgvötaði hversu mikil
forréttindi það voru að fá að eiga
þig fyrir afa. Þrátt fyrir stóran hóp
barnabarna höfðuð þið amma alltaf
tíma fyrir mig og mér leið alltaf
eins og ég ætti sérstakan stað í
hjarta ykkar. Það eru ófá skiptin
sem ég minnist, þegar þú sóttir
mig á dráttarvélinni þinni til þess
að ég gæti komið með upp á
Brekku að gefa kindunum. Þó svo
ég hafi sennilega ekki hjálpað mik-
ið til þá var ég alltaf velkomin.
Þegar ég síðan eignaðist mín eigin
börn þá fengu þau líka að kynnast
þér og hversu einstakur afi þú
varst. Alltaf tilbúinn að segja þeim
sögur og af sögum kunnir þú nóg,
enda gæddur miklum gáfum og
frábærri frásagnarsnilld. Mér er
minnisstætt kvöld eitt núna í októ-
ber þegar þú komst suður til að
fara til læknis og þú gistir hérna
uppi. Embla Ýr dóttir mín vildi
fara og kyssa þig góða nótt og ég
sagði henni að læðast upp og koma
svo strax aftur, en þegar hún kom
ekki þá fór ég að kíkja eftir henni
og heyrði þá hvar þú varst að segja
henni söguna af Búkollu. Þú sagðir
að það væri alveg ómögulegt að
enginn væri búinn að segja henni
þessa sögu. Kvöldið eftir læddist
hún svo aftur upp til þín til að
heyra fleiri sögur. Höskuldur minn
á ófáar minningar um skemmti-
legar samverustundir sem þið tveir
áttuð, enda áttuð þið sameiginleg
tvö af helstu áhugamálum þínum:
veiði og steinasöfnun. Þegar þú
varst orðinn svo veikur að börnin
gátu ekki heimsótt þig lengur bað
Höskuldur mig að bera þér kveðju,
önnur var sú að hann vildi segja
þér fermingarheitin sín, því hann
var hræddur um að þú næðir ekki
að heyra hann fara með þau: „Ég
er ljós heimsins. Sá, sem fylgir
mér, mun ekki ganga í myrkri,
heldur hafa ljós lífsins.“ Jóh. 8:12.
Svo langaði hann að segja þér
hversu mikið hann elskaði þig, en
hann gat ekki fundið réttu orðin
svo hann bað mig að skila til þín
öllum fallegustu orðunum sem ég
fyndi í orðabók um ást, vináttu og
góðar samverustundir. Elsku fal-
legi afi minn, mér finnst ég óenda-
lega rík af öllum góðu minning-
unum sem ég á um þig, það var
alltaf svo gott að koma til þín og ég
man eftir að stinga köldum fingr-
unum mínum í þínar heitu og þú
hafðir alltaf orð á því hvað ég var
köld á hendinni og alveg fram á
seinustu stundu hlýjaðir þú mér á
hendi og þó ég hafi núna neyðst til
að sleppa takinu af hendinni þinni
þarf ég aldrei að sleppa takinu af
öllum yndislegu minningunum, sem
munu búa í hjarta mér um ókomna
tíð.
Elsku amma mín, eins og alltaf
stendur þú þig eins og hetja þó
byrðin sé þung, Guð veiti þér styrk
í þinni miklu sorg.
Ástar- og saknaðarkveðjur,
Kristín Ragna Höskulds-
dóttir og fjöskylda.
Guðmundur Sören
Magnússon
Bróðir minn
KRISTJÁN JÓN JÓNATANSSON
vélstjóri
Holtagötu 20
Súðavík
sem lést að morgni fimmtudagsins 17. desember á
Sjúkrahúsi Ísafjarðar verður jarðsunginn frá
Súðavíkurkirkju, þriðjudaginn 29. desember kl.
14.00.
Magnea Jónatansdóttir.
HINSTA KVEÐJA
Það sækja á mig ótal minn-
ingar þegar ég hugsa til þín afi.
Góðar minningar þegar við lás-
um saman brandarabókina, fór-
um í ótal veiðiferðir, fórum
reglulega í göngutúra til að tína
steina, heyskapinn á Brekku.
Ég var hjá ykkur ömmu hver jól
og áramót þar til 1998, maður
hlakkaði alltaf til að koma til
ykkar í sveitina og vildi alltaf
vera lengur hjá ykkur. Þú varst
alltaf með góðar sögur og alltaf
tilbúinn til að gera allt til að
gleðja okkur. Elsku amma mín
og aðrir aðstandendur, ég votta
ykkur innilega samúð mína.
Aron Þór.
Kæri afi við söknum þín öll. Það
var gaman að lesa með þér og
skoða allar bækurnar þínar,
fara með þér í veiðiferðir. Það
var gott að heimsækja ykkur
ömmu og gista hjá ykkur. Þakka
þér fyrir að vera svona góður afi.
Halldóra.
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag