Morgunblaðið - 28.12.2009, Síða 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100
Garðar
MultiOne fylgihlutir
Eigum á lager mikið úrval fylgihluta
fyrir MultiOne fjölnotavélarnar.
Orkuver ehf.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
MultiOne
Eigum á lager nýjar MultiOne
fjölnotavélar í ýmsum stærðum.
Orkuver ehf.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri- Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
Hljóðfæri
Dúndurtilboð!!!!
Kassagítarar: 1/4 stærð kr
10.900. pakkinn með poka,
strengjasett og stilliflautu. 4/4
stærð 15.900.- Rafmagnsgítar-
pakkar frá kr. 39.900. Þjóðlaga-
gítarpakkar frá 19.900.-
Hljómborð frá kr. 8.900.-
Trommusett kr. 79.900.- með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is0
Atvinnuhúsnæði
Fasteignafélag til sölu
Fjórar litlar verslunareiningar í 105
Reykjavík, allar í útleigu. Öll skipti
skoðuð. Upplýsingar í síma 695 0495.
Miklir möguleikar t.d. í ferða-
iðnaði - Til sölu eða leigu á
Stokkseyri. Skoðum einnig samvinnu-
verkefni. 350 fm með mikilli lofthæð,
möguleiki á veitingastað og fl.
Skoðum allar góðar hugmyndir.
Uppl. í síma 695 0495.
Bílskúr
Flash 2 Pass fjarstýringar
Fjarstýringar f. bílskúrshurðaopnara.
Virkar með ljósabúnaði bílsins eða
mótorhjólsins. Kynntu þér málið.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Ýmislegt
Teg. Olimpia - mjög flottur push up
í D, DD, E, F, FF, G-skálum á kr. 6.885.
Teg. Karmazyn - glæsilegur push
up í D, DD, E, F-skálum á kr. 6.885.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Dömu kuldastígvél úr leðri
og fóðruð með lambsgæru.
Littir: brúnt og svart. Stærðir: 36 - 42
Verð: 28.850.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
á Þorláksmessu 10 - 20
og aðfangadag 10 -12
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www,mistyskor.is
Bátar
Sennilega ódýrustu skrúfurnar
á Íslandi
Útvega koparskrúfur á allar gerðir
báta, beint frá framleiðanda.
Upplýsingar á www.somiboats.is
Óskar, 0046704051340.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Kerrur
Kerrur sem hægt er að fella
saman - Orkel FoldTrailer kerrurnar
er hægt að fella saman, þær taka því
lítið pláss í geymslu.
Orkuver ehf.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435.
Varahlutir
Kaupi frímerki, umslög, kort og
seðla Kaupi frímerki, umslög,
póstkort med frímerkjum á og seðla,
síðan fyrir 1960. Upplýsingar í
síma: 691 7794, Sverrir.
Atvinnuauglýsingar
Yfirvélstjóri
Erlent útgerðarfyrirtæki leitar að yfirvélstjóra á
frystitogara sem stundar veiðar í Barents-
hafi. Viðkomandi þarf að hafa full réttindi
(4. stig) og reynslu af frystitogara vélstjórn.
Enskukunnátta nauðsynleg.
Um er að ræða langtímastarf.Yfirvélstjóri er á
aflahlut og er kauptrygging 10.000 evrur per
mánuð.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsóknir,
með upplýsingum um menntun og fyrri störf,
með tölvupósti til: barentstrawl@live.com.
Atvinna óskast
Viðskiptafræðingur
með M.A. í fjármálum óskar eftir atvinnu
Vanur fjármálum, rekstri, bókhaldi, uppgjörs-
vinnu og starfsmannahaldi en er til í hvað
sem er.Til í að vinna á hagstæðum kjörum.
Uppl. í síma 896 6751 eða bergurst@talnet.is
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Aðalfundur
Sjómannafélags Íslands
verður haldinn að Skipholti 50d, 3. hæð,
þriðjudaginn 29. desember kl. 16:00.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Minnum félagsmenn á heimasíðu félagsins
www.sjomenn.is
Stjórnin.
Veiði
Veiðiá til leigu
Leigutilboð óskast í Litlá í Kelduhverfi ásamt
Skjálftavatni. Leigutími allt að 5 árum.
Tilboðum skal skila til formanns félagsins Loga
Helgasonar, Dofraborgum 38, 112 Reykjavík,
fyrir 20. janúar næstkomandi. Hann veitir einn-
ig allar nánari upplýsingar í símum 557 1390
og 895 1255. Réttur áskilinn til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Stjórnin.
Við kveðjum nú
kæran frænda og
þökkum honum sam-
fylgdina. Við biðjum algóðan Guð að
styrkja fjölskyldu hans.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
Ólafur Helgi
Runólfsson
✝ Ólafur Helgi Run-ólfsson fæddist á
Búðarfelli í Vest-
mannaeyjum 2. jan-
úar 1932. Hann lést á
Gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi 7.
desember sl.
Útför Ólafs fór
fram frá Áskirkju 17.
desember 2009.
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin
stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig
blessi,
hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú
hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Elsku Inga, Petra,
Ester, Birgir og fjölskyldur, við
sendum ykkur innilegar samúðar-
kveðjur.
Sóley, Smári, Guðný Stefanía
og fjölskyldur.
Ég man fyrst eftir Óla Run þegar
við peyjarnir vorum að þvælast og
komum stundum við í Nýja komp-
aníinu til að sníkja efni í boga og
örvar. Þar var alltaf mikið fjör á
verkstæðinu enda mannskapurinn
léttur í betra lagi og ýmislegt látið
fjúka. Við peyjarnir vorum stundum
að velta einhverju fyrir okkur þegar
skyndilega heyrðist „skot“ frá ein-
hverjum kallanna eitt núll, svo kom
„skot“ úr öðru horni annað „skot“
2-1, var kallað, svo 2-2, þeir voru í
stuði kallarnir, gáfu í skotin og
gerðu þetta með stæl en mikið líf og
fjör var alltaf ríkjandi á verkstæð-
inu hjá Nýja kompaníinu. En það
var þessi stóri, glaðlegi og hlýi mað-
ur sem tók svo vel á móti okkur í
hvert skipti sem við komum, „vantar
ykkur eitthvað peyjar?“ var kallað
og svo fylgdi einhver grallarabragur
og athugasemdir sem kom öllum til
að hlæja. Fyrstu kynnin af Óla Run
voru hlýleg og skemmtileg, þau gáfu
tóninn fyrir það sem síðar var góð
vinátta.
Óli Run var hress og skemmti-
legur, fagurkeri og vandvirkur mað-
ur með afar fallega rithönd. Alltaf
vel klæddur, í gráum fötum, skyrtu
og með bindi, teinréttur með vind-
ilinn, bar sig hátt og vel og spókaði
sig um Básaskersbryggjuna þegar
Herjólfur kom í land, hann var alveg
eins og póker. Það var oft galsi í’on-
um og hann fór oft mikinn þegar því
var að skipta. Óli Run var fjölhæfur
maður sem hugsaði vel um umhverfi
sitt og það mátti sjá hvar Óli Run
bjó á snyrtimennsku og smekkvísi.
Ólafur Runólfsson var stór og
myndarlegur maður. Hann var
svona eins og amerískur greifi, flott-
ur í tauinu, sló um sig með vindil í
munninum. Þá brá hann fyrir sig
alslags slanguryrðum og frösum
sem hann notaði mikið. Þá beit hann
í vindilstubbinn út í öðru munnvik-
inu og lét móðan mása út um hitt
munnvikið, og var með þennan fína
gálgahúmor, skemmtilegar athuga-
semdir og gat verið drepfyndinn og
undir mestu hlátrarsköllunum bætti
hann við einni og einni athugasemd
sem virkaði eins og bensín á eld. Þá
gat hann sjálfur tottað vindilinn al-
varlegur í bragði, án þess að
stökkva svo mikið sem bros á vör,
það var hluti af húmornum. Óli Run
var skemmtilegur kall og mér leið
vel í návist hans.
Ólafur var framkvæmdastjóri
Herjólfs hf. í Vestmannaeyjum til
margra ára og ég var þar ritari í
stjórninni í tæp 10 ár. Í störfum sín-
um hjá fyrirtækinu bar Ólafur hag
fyrirtækisins, starfsmanna sinna og
Eyjamanna fyrir brjósti og bar öll
umgjörð útgerðarinnar, skrifstof-
unnar og afgreiðslunnar snyrti-
mennsku Ólafs gott vitni. Óli Run
var nákvæmur maður og skráningar
hans um ýmsa hluti í rekstrinum
sem nauðsynlegt var að skrá, enda
engar tölvur, farþegafjölda og þess
háttar var ótrúlega vel og smekk-
lega gert. Eftir veikindi síðustu ára
hefur Ólafur barið nesti sitt, ég kveð
góðan vin, fjölhæfan og skemmti-
legan mann sem gaf lífinu lit og
gleði.
Ólafur Runólfsson var borinn og
barnfæddur Eyjapeyi frá Búðarfelli
við Skólaveg. Hann var alla tíð mik-
ill Eyjamaður í hjarta sínu og þar á
hann stóra fjölskyldu, kæra vini
mína, sem ég og fjölskylda mín vott-
um allri okkar dýpstu samúð.
Ásmundur Friðriksson.