Morgunblaðið - 28.12.2009, Qupperneq 26
26 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2009
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GRETTIR, MIG
LANGAR AÐ FARA
MEÐ ÞIG TIL
DÝRAMIÐILS
ÉG VIL
VITA HVAÐ
ÞÚ ERT AÐ
HUGSA
„GEFÐU MÉR AÐ ÉTA“
ENDEMIS FIÐRILDI!
HELGA, HVERNIG
MYNDIR ÞÚ LÝSA
MANNINUM
ÞÍNUM?
HANN ER STERKUR,
HLÝR, UMHYGGJUSAMUR
OG DUGLEGUR...
EN HANN
HRÝTUR
ÉG KOMST NÆSTUM
ÞVÍ Í FYRSTA FLOKK
VEGNA
ÞESS AÐ
HANN FÆR
MIG TIL AÐ
HLÆJA
MAMMA! PABBI!
SJÁIÐ HVAÐ
ÉG FANN!
NINTENDO DS!
HÚN LÁ VIÐ TRÉ OG
ENGINN VAR NÁLÆGT
HENNI! ÞETTA ER MEIRA AÐ
SEGJA NÝJA ÚTGÁFAN!
AF HVERJU
ERUÐ ÞIÐ
EKKERT
SPENNT?
ELSKAN, ÞÚ
VERÐUR AÐ
SKILA ÞESSARI
TÖLVU
HVERNIG
HEFUR ÞÚ HUGSAÐ
ÞÉR AÐ GÓMA
VULTURE?
MARÍA... HELDUR
ÞÚ AÐ FBI HAFI
SAGT DILLINGER...
MIG SVIMAR ÚT AF
FLENSUNNI... EN ÉG MÁ
EKKI LÁTA ÞAÐ SJÁST
PETER,
SEGÐU BARA
GÓÐA NÓTT OG
KOMDU SVO
BEINT HEIM
ÉG SÉ AÐ
PETER ER
AFTUR
FARIÐ AÐ
SVIMA
Hinar köldu klær
skattsins
ÉG var að horfa á störf
Alþingis og atkvæða-
greiðslur og allir þessir
skattar sem verið er að
leggja á núna munu
setja svip á samfélagið
til frambúðar. Hrædd
er ég við, að fyrirtæki
og launafólk eigi eftir
að berjast í bökkum og
fara jafnvel í þrot.
Hvað um þessa skjald-
borg heimilanna sem
forsætisráðherra, Jó-
hanna Sigurðardóttir,
talaði um? Er það
kannski bara að verða að tjaldborg?
Það var líka verið að skerða dagpen-
inga fólks sem þarf að vera á stofn-
unum. Þetta er nú það aumasta sem
ég hef vitað hjá velferðarstjórn
Steingríms J. Sigfússonar.
Svo er það Icesave-reikningurinn.
Hvernig í ósköpunum á fámenn þjóð,
skuldum vafin, að geta borgað þetta?
Ég heyrði í fréttum að
um 10 þúsund manns
hefðu þurft að þiggja
aðstoð hjálparstofnana
til þess að eiga mat um
jólin. Varla getur það
fólk greitt reikninginn.
Um daginn kom til
mín eldri kona, hún var
grátandi og illa á sig
komin. Hún hefur unn-
ið mikið um sína löngu
ævi en er núna búin að
missa allt sitt fyrir það
að hafa verið ábyrgð-
armaður. Hún hafði
ekki borðað í marga
daga og var bæði horuð
og illa á sig komin.
Svona á norrænt velferðarsam-
félag ekki að vera. Finnst mér að
þessi ríkisstjórn ætti að taka pokann
sinn og hætta. Hún hefur algjörlega
brugðist sínum kjósendum.
Sigrún Reynisdóttir.
Ást er…
… að bylta þér varlega
svo þú truflir ekki
svefninn hennar.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Opin vinnustofa kl. 9-
16.30, útskurður kl. 13, félagsvist kl.
13.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8-15-16, handa-
vinna og smíði/útskurður kl. 9-16.30, fé-
lagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Dalbraut 18-20 | Myndlist, postulín og
leikfimi falla niður í dag. Brids kl. 13.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa opin kl.
8-16. Bænastund og umræða kl. 9.30-
11.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Opið í dag
eins og venjulega frá kl. 9, hádegis-
verður, heitt á könnunni og lomber kl. 13.
Hæðargarður 31 | Gjafabréf í félags-
starfið er góð nýársgjöf. Ekkert síðdeg-
iskaffi milli jóla og nýárs, s. 411-2790.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Við hring-
borðið, spjallhópur kvenna, kl. 10.30,
handverks- og bókastofa opin kl. 11.30,
boccia kl. 13.30, veitingar kl. 14.30,
söngstund kl. 15.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15-
15.30, boccia kl. 9, leikfimi kl. 11, matur,
kóræfing kl. 14.30, tölvukennsla kl.
14.30, veitingar.
Sigrún Haraldsdóttir yrkir á jólum:
Lífið vil ég ljósum orðum
lofa og mæra
alvaldinum ótal þakkir
einlæg færa
fyrir það að finna til og
fagna og gráta
þakka vil ég þyt í greinum
þresti káta
fyrir regnið, ferska vinda
frost og þíðu
ljósa morgna, liti himins
logn og blíðu
gráan mosa, gróna ása
grösin valla
vonir, drauma, vökustundir
veröld alla
stillu nætur, sterkar kenndir
stjörnubjarma
mánaskinið, mjúkar varir
mennska arma
fyrir vinar heita hönd í
hendi minni
allt sem góður guð mér léð́ af
gæsku sinni.
Þá Kristbjörg Steingrímsdóttir:
Skammdegið hopar hækkar lággeng
sól
hrekur á burtu langnættisins skugga,
annríki mæddur heimur heldur jól
hátíðarljósin skína í hverjum glugga.
Gefðu þér tíma til að staldra við
taktu þér næðisstund og þú munt finna
einlæga gleði, hljóðan helgifrið
og hreinan fögnuð bernskujóla þinna.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af lífi og þakklæti