Morgunblaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 36
Halldór Helgason, átján ára snjó-
brettamaður, endaði í fimmta sæti á
sterku snjóbrettamóti, Dew tour, í
Bandaríkjunum skömmu fyrir jól.
Keppendur tryggðu sér rétt til að
keppa í hópi þeirra bestu í forkeppn-
inni og þar var Halldór efstur að
stigum og endaði í fimmta sæti í að-
alkeppninni, þar sem sextán ára pilt-
ur sigraði. skuli@mbl.is
STERKUR Á SNJÓBRETTI
Halldór fimmti á sterku
móti í Bandaríkjunum
TÓNLEIKAR sem umboðsmað-
urinn Einar Bárðarson stendur fyrir
til stuðnings Styrktarfélagi krabba-
meinssjúkra barna verða ekki haldn-
ir milli hátíða eins og hefðin er. Tón-
leikarnir, sem nú verða haldnir í 12.
sinn, verða 16. janúar og er von á
landsliði poppara landsins sem jafn-
an hafa lagt málstaðnum lið með
hljóðfæraslætti og söng.
TÓNLEIKAR
Krabbameinstónleikum
frestað fram í janúar
Séra Sigríður Óladóttir prestur á
Hólmavík sem þjónar í einu víðfeðm-
asta prestakalli landsins messaði í
fjórum kirkjum um hátíðarnar.
Sungnar voru messur á Hólmavík,
Drangsnesi, Kollafjarðarnesi og
Óspakseyri. Ófært er hins vegar
norður í Árneshrepp þar sem til stóð
að messa um hátíðarnar. „Nei, ég fer
ekki til messu á vélsleða. Það er ekki
nóg að presturinn komist, það þarf
líka að vera fært innansveitar,“ segir
sr. Sigríður.
KRISTNIHALD
Presturinn komst ekki í
messu vegna ófærðar
MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 362. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heitast -0°C | Kaldast -10°C
Hæg norðlæg eða
breytileg átt og él.
Hvessir og fer að snjóa
NA-lands í kvöld.
Kaldast í innsveitum. »10
Fleiri rafbækur
seldust á vefversl-
uninni Amazon á
jóladag að þessu
sinni en prentaðar, í
fyrsta skipti. »27
BÓKSALA»
Rafrænar
bækur í sókn
FLUGAN»
Fór í leikhús, á tónleika
og kíkti í bæinn. »28
Avatar, kvikmynd
James Cameron, er
sú mest sótta í
Bandaríkjunum yfir
j́ólin. 27,3 milljarðar
komu í kassann. »34
KVIKMYNDIR»
Avatar
vinsælust
TÓNLEIKAR»
Angurvær tónlist Árstíða
ómaði í Fríkirkjunni. »32
BÓKMENNTIR»
Bernska Tolstojs vel gert
og heillandi verk. »27
Menning
VEÐUR»
1. Lést eftir umferðarslys …
2. „Þá skaltu líka lifa“
3. Frétt um íslenskan lottóvinning …
4. Veist að Íslendingi í Bretlandi …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Ljósmynd/Anna María Geirsdóttir
Jólaboð Dave, Christine, Shana og Robin nutu matarins í boði Önnu Maríu Geirsdóttur á aðfangadagskvöld.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
„Það eru aldrei hefðbundin jól hjá
mér,“ segir Anna María Geirsdóttir
myndlistarkennari, sem bauð fjórum
gestum frá Simbabve að borða með
sér mat á aðfangadagskvöld. Þrjá af
þessum gestum hafði hún aldrei séð
áður.
Í huga flestra snúast jólin um að
vera heima í faðmi fjölskyldunnar og
borða góðan mat. Það eru hins vegar
ekki allir sem geta verið heima um
jólin og sumir sækjast beinlínis eftir
því að lenda í ævintýri um jólin.
Shana og Robin Watermeyer hafa
dvalist á Íslandi í nokkrar vikur. Þau
eru ættuð frá Simbabve, en hafa bú-
ið í London sl. níu ár. Robin fékk
vinnu hjá tölvufyrirtækinu CCP og
hóf störf á Íslandi í vetur. Shana
konan hans kom til Íslands fyrir ein-
um mánuði. Fyrir þeim lá að halda
saman jól í framandi landi. Vinir
þeirra Dave og Christine (sem einn-
ig eru ættuð frá Simbabve) komu
hins vegar í heimsókn til að fagna
jólum með þeim á Íslandi.
Anna María kynntist móður
Shönu þegar þær stunduðu saman
meistaranám í myndlist á Englandi í
fyrra. Þegar Anna María frétti að
Shana væri á leið til Íslands dreif
hún í að bjóða þeim í mat á að-
fangadag. Hún þekkti Shönu lítillega
en hin þrjú hafði hún aldrei hitt.
Oft með finnska skiptinema
Þetta er svo sem ekki í fyrsta
skipti sem Anna María býður ferða-
löngum að halda með sér jól. Hún er
ættuð frá Finnlandi og hefur oft boð-
ið finnskum skiptinemum að borða
með sér jólamatinn.
Anna María segir að það sé reynd-
ar ekki alveg nákvæmt að segja að
hún bjóði gestum heim til sín. Hið
rétta sé að hún bjóði gestum heim til
móður sinnar, Maritu Garðarsson.
Þessi jólin hafi verið boðið upp á
hefðbundinn finnskan jólamat, salt-
aða skinku, ofnbakaða kartöflu-
stöppu, ofnbakaða gulrótastöppu og
í forrétt var boðið upp á síld og snafs.
„Annars er mér sama hvað er í
matinn. Aðalatriðið er að hann sé
góður,“ sagði Anna María sem sagði
að jólin hefðu verið mjög góð. Gest-
irnir frá Simbabve hefðu verið
skemmtilegir og það hefðu átt sér
stað áhugaverðar umræður við mat-
arborðið.
Hafði aldrei hitt jólagestina
Bauð gestum frá
Simbabve að borða
með sér um jólin
„FERÐ á Oliver! er fín byrjun á bókmenntalegu upp-
eldi,“ segir Guðmundur Brynjólfsson gagnrýnandi í
dómi sínum um söngleikinn sem frumsýndur var í Þjóð-
leikhúsinu annan dag jóla.
Kveðst Guðmundur hrópa húrra fyrir uppsetning-
unni, sem hann gefur fjórar stjörnur. „Stjörnur þess-
arar sýningar eru Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Þórir
Sæmundsson,“ segir í dómnum. Fáir hnökrar séu á
leikstjórn Selmu Björnsdóttur og dansar Alettu Collins
falli vel að sýningunni. Hópatriðin fá einnig lof og eru
sögð „flott og full af skemmtilegum hugmyndum og ag-
inn og stjórnin á öllum litlu (mögulegu) senuþjófunum
til fyrirmyndar“. | 29
Morgunblaðið/Eggert
Fögnuður Þeim var vel tekið leikurunum í Oliver! Hér
tekur Tryggvi Björnsson, sem lék Hrapp, við uppklappi.
Oliver sögð fjög-
urra stjarna sýning
HAUKAR leika til úrslita um deilda-
bikarinn í handknattleik, bæði í
karla- og kvennaflokki, en úrslita-
leikirnir fara fram í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði í kvöld.
Haukar lögðu Val og Akureyri sigr-
aði FH í undanúrslitunum í karla-
flokki í gær og Haukar mæta því Ak-
ureyri klukkan 18. Í úrslitaleik
kvenna eigast við Haukar og Fram
klukkan 20 en Fram lagði Stjörnuna
í gærkvöld og Haukum var dæmdur
sigur gegn Val. | Íþróttir
Haukar í úr-
slitaleikjum
„Þetta var yndislegt kvöld. Við er-
um nýflutt til landsins, en fengum
vini okkar í heimsókn. Það var
ánægjulegt að njóta jóla með vin-
um og fá boð um að borða jólamat
með íslenskri fjölskyldu,“ sagði
Shana Watermeyer þegar hún var
spurð hvernig væri að dvelja á Ís-
landi um jólin.
Shana og Robin, maður hennar,
hafa ferðast talsvert um Reykjavík
og nágrannasveitir um jólin ásamt
vinum sínum og notið þess að
borða góðan mat. „Það er kalt en
gaman,“ sagði Shana.
Shana og vinir hennar ólust upp
í Simbabve, en þar fer hiti sjaldan
niður fyrir 18 gráður yfir vetrar-
tímann. „Við erum ekki vön kulda
og myrkri um jólin. Sólarlagið hér
er fallegt og það er skemmtilegt
ævintýri að vera hér.“
Skemmtilegt ævintýri að vera á Íslandi