Ísfirðingur - 15.12.1954, Síða 11
ISFIRÐINGUR
11
gangast aðra meira en sjálfan
sig. — Aðeins þetta eina skipti.
— Það skiptir ekki máli. Ég
treysti á þagmælsku þína. Það
er ekki svo hættulegt. — Það
gerir ekkert til. — Það gengur
áreiðanlega.
Við blekkjum sjálfa okkur. —
Við vitum ekki hvernig í ósköp-
unum við sjálf höfum sokkið svo
djúpt. — Við höfum tapað öllu
okkar siðgæði.
Viðvíkjandi aðstæðum flestra
okkar til lífsins, eins og litið
er á mannlífið, þá verður manni
á að undrast hvernig flestir lifa
lífinu. Jafnvel höfuðspurninguna,
sem vissulega krefst einhvern
tíma svars af hverjum okkar,
göngum við á snið við. — Við
bíðum með að taka ákvörðun. —
Oft rekst maður á þá sem greini-
lega játa kristna siðfræði og við-
urkenna trúna á siðalærdóminn,
en blekkja sjálfa sig í daglegu
lífi. Annað hvort verður maður
að kalla siðalærdóminn lélegan,
eða mannssálin er glötuð.
Þeir eru margir, sem geyma til
morguns, það sem þeir hefðu átt
að gera í dag, þó það þá sé orðið
of seint. — Þeir þora ekki að
standa augliti til auglitis við
sannleikann. — Þeir blekkja
sjálfa sig.
Það er spurt hvort við höfum
gert það. -— Því miður hef ég
ekki haft tíma til þess. — En
sannléikurinn er, að þú hefur
hreint og beint gleymt því —
ekki nennt því.
Þessi veröld er léleg. — Það
get ég fært sönnur á. —
Hversu mundi ekki allt verða
fegurra og bjartara ef við aðeins
gætum lifað sem heiðarlegir
menn. — Þú talar víst aldrei um
aðra — það er í rauninni
heimskulegt. — Það getur oft
verið að mann langi til að segja
„þegiðu", þegar þú talar um
aðra.
En við segjum eitt og gerum
annað.
Við erum eftirgefanlegir við
sjálfa okkur. Móti okkar betri
vitund. Við lifum lífinu í lakari
mynd þess og förum í kringum
okkar raunverulegu lífsskoðun.
Mér verður hugsað til Nagels
í „Musteryet" eftir Hamsun —
Hann var heiðarlegur gagnvart
sjálfum sér og öðrum. — En
vegna þessa óvenjulega heiðar-
leika var hann álitin ónormal.
Hugsið ykkur slíka fyrirmynd.
Hann var hispurslaus.
En það er einmitt það hisp-
urslausa, sanna, falslausa, sem
er þegar allt kemur til alls, það
geðfelldasta. — Það dýrmætasta.
— En það eru einnig þeir eigin-
leikar, sem við finnum sjaldnast
hjá samtíðarmönnum okkar. —
Við segjum þetta en meinum
allt annað.
Við getum viðurkennt að oft
megi satt kyrrt liggja. — En þá
getur maður þagað. — Reynum
að eiga smávegis þagmælsku. —
Og þegar við segjum eitthvað,
reynum þá í Jesú nafni að tala
eins og við meinum. — Það borg-
ar sig alltaf. — Og ef ekki ein-
mitt gagnvart þeim sem spyr,
þá vinnur maður að minnsta
kosti sjálfur svo ákaflega mikið.
Ég held að það sé orðinn vani
hjá okkur að fara í kring um
hlutina. — Og vaninn er orðinn
að lyndiseinkunn, og af því að
það venjulega er að fela sig fyrir
raunveruleikanum, göngum við á
snið við sannleikann. — Við
byggjum líf vort á blekkingum,
frá morgni til kvölds, við gerum
hvítt að svörtu. — Við heyrum
vekjaraklukkuna hringja, en full-
yrðum að það sé lýgi.
í samtölum: Já, jahá, það er
satt. — Hversu ósammála, sem
tveir menn kunna annars að vera.
— En með getuleysi og hégóma-
skap eyðileggjum við mótstöðu-
aflið gegn sjálfsblekkingunni.
Siðfræðin í Rortary er sá
kennilærdómur, sem getur bjarg-
að okkur: „Service above self“ og
„He profits most who serves
best“. — Þannig að við gætum
meðhöndlað vora meðbræður sem
jafn sjaldgæfar jurtir sem þeir
eru. — Og með virðingu fyrir
verðleikum hvers einstaklings.
Því að sem einstaklingar hafa
þeir tvímælalaust gildi, sem skyld-
an býður okkur að virða og viður-
kenna.
Rótarý á að vera félagsskapur,
þar sem beztu eiginleikar hvers
einstaklings eiga að fá að njóta
sín. — Félagsandi og vinátta
meðal manna er dýrgripur. Og
því betur sem við skiljum raun-
veruleika þess, því meira virði
verður dagurinn okkur. — Það
finnast ekki margir kynninga-
klúbbar, sem í þeim mæli hafa
ástæðu til að þroska og útbreiða
þetta dýrmæta uppbyggjandi afl.
Við innan Rótarý erum einn hóp-
ur. Flestir meðlimir þessa litla
samfélags eru fullþroska menn,
og í leiðandi stöðum þjóðfélags-
ins. Við höfum hver okkar starf,
hver sinn ákveðna hóp, sem við
umgöngumst daglega.
Reynum að vera, eftir boðorð-
um Rótarý, fagurt fordæmi þess,
að þegar við göngum fram í
öruggri vissu um að byggja upp
það bezta í manninum, þá orkum
við að gera lífið bjartara. —
Séð í fjarsýn eilífðarinnar og í
hlutfalli við undarlega meiningu
lífsins. — Já, ef eilífðin er blekk-
ing og lífið tilgangslaust, þá
finnst þrátt fyrir allt ein innri
rödd í hverjum okkar, sem ef við
venjum okkur á að hlusta eftir
henni, getur kennt okkur hvað
listin að lifa. (Lausl. þýtt)
<III!llll|i|l!l!IBIIIIIIiillilIIIIIIII|1lllllilllilllllll!llllllllllltllIlli!llillll!llilli!IIIII!liii;:iliaiIllili:iil|l!lilllllillIlllllllliillllillilllllllIi Hllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllll||||||||||||||li|||||||||||||||||||||||||i||i||||||||iui|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||,||:n;i|ii|,
Gleðileg jól! ★ • ★ Farsælt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Lyfjabúð ísafjarðar.
Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Sundhöll ísafjarðar.
- lllllllllllllllillllllllllllllilllllllllilllinilllllllllllllllllMlillllllllllÍIIIHIÍiliJllinillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllílllil, “ - l|||||||llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllll!lllllHimililllllll1lllll1llllllllll|lli:!l!IIIIIIIMI!lllllllllltfi:i! “
i Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár! |
Þökkum viðskiptin á líðandi ári. 1
| Netagerð Vestfjarða h.f. |
= iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiúifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiii{iiiiiiiiiiiniiiiiiitiiii«niiiii!iiiii
i Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár! |
Framkvæmi allar bifreiða viðgerðir. |
| Bifreiðaverkstæði Vilhjálms Sveinssonar
I Flatahrauni, Hafnarfirði. =
1 Gleðileg jól! ★ • ★ Farsælt nýtt ár!
Þökk fyrir viðskiptin á líðandi ári.
| ölafur Jakobsson.
| lllllllllllllllllllllllllllllllllIIÉÍIÍIIIIIIlllllllllllllllIlllliVlltllIIIIIIIIIIIIII|I!IIIIIII1IIII|IIIIIIIIIIIIIIIII|IIIIIIIIIIIIIÍ|I1|II|II|IIIII|1I|
| SAMVINNUFÉLAG ISFIRÐINGA
óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og fjær
= gleðilegra jóla og góðs nýárs.
= iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|= = iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuii -
Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár! |
Skipstjórafélagið Bylgjan. |
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllilllllllllllllllllllllllll llllll llllll IIIIIII1111,1III lllIIIIIIillllllllliBllllllllIIIIIIIllll =
Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár! |
Þökkum viðskiptin á líðandi ári. |'
Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna,
umboðið á Isafirði. i
! Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Flugfélag lslands h.f.
\ llllllllllllllllllllllllllllllllllllirillllllllllllllllirillll,,||,1,11,|||||||||||,||,111(1,111,1,III,|,j||||,||,j|,II,lljVlllllllllllllllllllllMIIIII
Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár!
Þökk fyrir viðskiptin á líðandi ári.
Guðmundur Sæmundsson, málari.
l■ll■]l■l!■ll■IIIIIIIII1llll■iI■ll■lllllllllll■il■II■ll■ll■ll■ll■IIIIIIIIIIIIII■llllllll■II■ll■l[lll■lllll■lllll■IIIM■ll■ll■ll■ll■ll■ll■IIIIIIIIIIIIII■II■llll ll■ll■ll■lllll■ll■ll■ll■ll■llllllll■ll■ll■llllllll■ll■ll■M■ll■ll■lllll■ll■lllll■II■ll■ll■ll■llllllll■ll■IIIIIIIIIIIIII■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■IIIIIIII■lllll■lll