Ísfirðingur - 23.11.1957, Síða 1
Áskriftarsími bla'ösins
er 332.
Kaupið og lesiS
ÍSFIRÐING
VII. árgangur.
ísafjörður, 23. nóv. 1957.
12,—13. tölublað.
Þaö borgar sig aö
auglýsa.
Auglýsiö í
ISFIIWINGI
Frá Flugfélagi íslands
Tillöguuppdráltur Guömundar frá Mosdal aö bgggöasafni.
Vestfirzkur sveitabær.
Byggðasafn Vestfjarða
I s.l. mánuði bauð Jóh. Gunnar
Ólafsson, bæjarfógeti, bæjarstjórn
og blaðamönnum hér í bænum að
skoða Byggðasafn Vestfjarða, en
því er komið fyrir í rishæð Sund-
hallarbyggingarinnar.
Að vöxtum er safnið nú þegar
orðið furðanlega stórt, og mun
það nú telja nálega 600 muni, en
stöðugt er unnið að söfnun muna
til viðbótar.
Á vegum byggðasafnsins ferðað-
ist Ragnar Ásgeirsson, ráðunaut-
ur, um Vestfirði sumarið 1956 til
söfnunar muna og varð honum
mjög vel ágegnt.
1 haust var svo Ragnar um tíma
hér í bænum og skrásetti þá um
400 muni í safninu og ferðaðist þá
um Langadalsströndina til söfnun-
ar.
Að sjálfsögðu hefur ennþá ekki
verið hægt að raða upp munum
safnsins svo sem fyrirhugað er,
Þann 11. og 12. þ. m. efndi
Karlakór ísafjarðar til hljómleika
í Alþýðuhúsinu hér í bænum í til-
efni af 35 ára afmæli sínu. 1 sam-
bandi við þessa hljómleika vann
Karlakórinn að því, að fá hingað
til bæjarins Guðrúnu Á. Símonar,
óperusöngkonu, og s öng hún á
hljómleikum þessum erlend og inn-
lend viðfangsefni við frábærlega
góðar undirtektir, og varð Guðrún
að syngja aukalög. Undirleik fyr-
ir óperusöngkonuna annaðist
Ragnar Björnsson, söngstjóri.
Söng Karlakórsins var einnig
mjög vel tekið, að verðleikum, og
varð hann að endurtaka lög og
syngja aukalög. Söngstjóri karla-
kórsins er Ragnar H. Ragnar,
skólastjóri. Einsöngvari kórsins
var Sigurður Jónsson, prent-
enda þarf áður að lagfæra húsnæð-
ið í samræmi við það. Forráða-
menn safnsins munu hafa hug á
að koma þar fyrir í framtíðinni
líkönum af baðstofu, fiskhjalli,
fiskiskipum og ef til vill fleiru til
minja um forna hætti úr menning-
ar- og atvinnulífi Vestfjarða.
Eins og fyrr segir eru nú þeg-
ar í safninu mjög margir merki-
legir munir, sem hver og einn seg-
ir sína sögu um horfinn tíma og
minna á þær breytingar sem orðið
hafa í þjóðfélaginu á tiltölulega
stuttum tíma.
En Byggðasafn Vestfjarða þarf
að halda áfram að eflast. Eru
menn hvattir til að láta safninu í
té gamla muni og minjar og jafn-
framt að fá aðra til að gjöra slíkt
hið sama. Með árvekni og góðum
vilja er hægt að efla safnið og þá
um leið að forða oft dýrmætum
munum frá tortímingu.
smiðjustjóri, en undirleik annaðist
frk. Elísabet Kristjánsdóttir. Fóru
þau bæði vel með sín hlutverk, eins
og vænta mátti.
Hljómleikarnir voru ágætlega
sóttir, og er þess að vænta að Is-
firðingum gefist, áður en langt um
líður, tækifæri til að hlusta aftur
á hinn ágæta söng karlakórsins.
Ber að þakka Karlakórnum fyr-
ir framtak sitt og ánægjulega
hljómleika.
-----o----
Síldveiði.
Bátar við Faxaflóa hafa að und-
anförnu fengið dágóðan síldarafla.
Er síldin feit og vel söltunarhæf.
Vonandi verður framhald á þess-
um veiðum.
Sumaráætlun innanlandsflugs
lauk 30. sept., en sumaráætlun ut-
anlandsflugs lauk 5. október.
Sumarstarfið hefir að þessu
sinni gengið mjög vel. Veður var
hagstætt til flugs mestan hluta
sumars, enda tafir fátíðar. Sum-
aráætlunin hófst að þessu sinni 1.
maí. Flogið var til og frá tuttugu
staða innanlands.
Farþegafjöldinn á tímabilinu 1.
maí til 30. september var í innan-
landsfluginu 41,643, en var á sama
tíma í fyrra 37,436, svo að aukn-
ing er 9 af hundraði. Sýna þessar
tölur greinilega hve geysi þýðing-
armikill þáttur innanlandsflugið
er.
Með vetraráætlun, sem hófst 1.
október s.l. fækkar ferðum nokkuð
frá því sem var á sumaráætlun-
inni. Ferðir til ísafjarðar og Vest-
fjarða verða í vetur sem hér segir:
Til ísafjarðar er flogið alla daga
SjúkraflugvMlnr á
Þingeyri
Þann 2. nóvember lenti Björn
Pálsson fyrstu flugvélinni á ný-
gerðum sjúkraflugvelli á Hóla-
holtum við Þingeyri. Flaug Björn
vél sinni og Slysavarnafélagsins,
TF—HIS.
Flugvöllur þessi, sem er 300 X 20
metrar að stærð, var gerður fyrir
frumkvæði slysavarnadeildarinnar
„Varnar“ á Þingeyri, en kostað-
ur af fé því, er alþingi veitir ár-
lega til þessai’a þarfa. Nam kostn-
aðurinn alls um 16.000,00 kr., þar
af kostaði um 10.000,00 að færa
til þjóðveg og símalínu, er þarna
voru fyrir. Flugvallarstæðið völdu
þeir Björn Pálsson flugmaður og
Haukur Classen, fulltr. flugmála-
stjóra, en umsjón með verkinu
höfðu þeir Árni Stefánsson, hrepp-
stjóri, og séra Stefán Eggertsson,
formaður slysavarnadeildarinnar.
Stefán bóndi Guðmundsson í Hól-
um lagði fram land undir völlinn
ókeypis.
Þess má einnig geta, i þessu
sambandi, að 23. september s.l.
komu til Dýrafjarðar ýmsir af
helztu fyrirsvarsmönnum flugmál-
anna, á einni af Douglasvélum
Flugfélags Islands. Flugu þeir
mörgum sinnum yfir flugvallar-
Framhald á 2. síðu.
nema sunnudaga og þriðjudaga.
Til Þingeyrar og Flateyrar er flog-
ið á þriðjudögum. Til Pareksfjarð-
ar og Bíldudals á fimmtudögum.
Rétt er að vekja athygli á því
að brottfarartími flugvéla breytist
með vetraráætluninni.
Sumaráætlun í millilandafluginu
hófst einnig 1. maí. Daginn eftir,
2. maí komu hinar nýju Viscount
millilandaflugvélar til landsins og
hóf önnur þegar áætlunarflug en
hin var notuð til þjálfunar flug-
manna í mánaðartíma. Frá 1. júní
haía þær svo annast millilanda-
flugið. Islendingar hafa sýnt það í
sumar að þeir, ekki siður en aðrir,
kunna að meta kosti Viscount flug-
vélanna því farþegafjöldi hefir
farið fram úr því sem bjartsýn-
ustu menn gerðu sér vonir um í
vor. Þess má geta í þessu sam-
bandi að í Júlí fluttu Gullfaxi og
Hrímfaxi 4171 farþega milli landa.
Á sama tíma í fyrra voru milli-
landafarþegar 2187, svo aukning
er hér 90,71%.
Með vetraráætluninnj milli landa
fækkar ferðum nokkuð. Farnar
verða fimm ferðir fram og til baka
vikulega. Til Kaupmannahafnar
eru fjórar ferðir, tvær um Glas-
gow og tvær um Osló. Ein ferð
vikulega til London og komið við
í Glasgow í heimleiðinni. Til Ham-
borgar verða tvær ferðir í viku um
Osló og Kaupmannahöfn.
Nýr fiskibátur
S.l. fimmtudag var settur á flot
í Skipasmíðastöð M. Bernharðsson-
ar, nýr fiskibátur er hlotið hefur
nafnið Gunnhildur, 1S 246. Er
þessi bátur eign h.f. Magna, Isa-
firði. Þetta er í alla staði hið vand-
aðasta og fríðasta skip. Stærð
bát?ins er um 60 smál. Vélin er
280 ha. M. W. M. vél. Báturinn er
útbúinn öllum nýtísku tækjum,
svo sem dýptarmæli, fisksjá, mið-
unarstöð og fyrirhugað er að setja
í hann ratsjá. Ennfremur er í
bátnum 12 ha. ljósavél. Ráðgert
er að báturinn fari á veiðar um
næstu mánaöamót. Skipstjóri verð-
ur Hörður Guðbjartsson, sem jafn-
framt er annar aðaleigandi báts-
ins. Fyrsti vélstjóri verður Ólafur
Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri Magna h.f.
er Baldur Jónsson.
Hljómleikar Karlakórs ísafjarðar