Ísfirðingur


Ísfirðingur - 15.12.1969, Blaðsíða 6

Ísfirðingur - 15.12.1969, Blaðsíða 6
6 ÍSFIRÐINGUR að sú vitneskja eða skoðanir breyti nokkru í lííi hans. En enginn maður á trú eftir því sem Jesús túlkaði það án þess að breytast frá því sem áður var. Þess vegna er trúin fram kvæmd og hann var sjálfur ágætur framkvæmdamaður. Þegar kristindómurinn hefur hjá mörgum hlotið keim af skoðunum og fræðikenningum er Jpað ekki Jesús sök. Minni hugmyndafræðingur en hann hefur enginn verið í trúar- bragðasögunni. Hann lifði með þjóð, sem lagði mikla áherzlu á ytri breytni og siði. Því hefði það verið freistandi fyr ir hann að vanmeta gildi þeirra og leggja áherzlu á hið innra trúarlíf. En enda þótt hann sýni glögglega hið falska í ytri trúarháttum og bendi á að allt kemur frá hjartanu lagði hann höfuðá- herzluna á að lýsti af góðum verkum guðs barna. Það voru ekki verk unnin til þess að hljóta umbun guðs. Nei, það voru óhugsuð verk, sprottin ósjálfrátt og eðlilega frá huga manns, eins og blómið breið- ir út krónu sína af því að það getur ekki annað. Hann kallar þetta sjálfur ávexti, hvort sem um var að ræða hið fræga vatnsglas, sem rétt var án allrar hugsunar um góðverk að þeim, sem þyrstir, eða hvort það var innri kær- leiki sem kom til hjálpar þar sem með þurfti. Hann krefst þess að sá, sem fylgi sér af- neiti sjálfum sér og hafni því, sem hindrar hann í því að vera heill og sannur. En jafn- framt er hann enginn einangr unarmaður. Hann vill ekki vita af þeirri trú, sem dreg- ur menn í andlega einangrun. Ljósið á ekki að hverfa undir mæliker. Borgin skal standa á fjalli, ekki í þægilegu leyni. Ef við berum kristindóminn saman við þau trúarbrögð tvenn, sem að útbreiðslu og andlegum skyldleika komast næst honum, Búddhatrú og Múhameðstrú, sjáum við yfir- burðina í manndómslegri fram kvæmdatrú Jesú. Búddhadóm- ur afneitar heiminum, en af- neitar honum í einangrun. Hugsjónin er að deyja heimin um svo að allt hið illa hverfi og lífið dafni svo sem mest má verða. Búddha læknar sjúklinginn af sótthitanum með því að færa hann nær dauðanum. Jesús stefnir að því að vera sá læknir, sem gerir menn fríska og hrausta. Þegar við hugsum um kross- lagða handleggi Búddha við hliðina á starfandi hendi Jesú verður Búddhadómur þrátt fyrir alla fegurð sína eins og Áslaug Jensdóttir Hér fara á eftir nokkur orð um daginn og veginn, hugsuð úr fortíð og nútíð. Þegar við, sem nú erum komin yfir miðjan aldur, stöldrum við og lítum um öxl, fer ekki hjá því að við undrumst hve feðrum okkar og mæðrum auðnaðist að gegna hlutverki sínu sem fræð arar og uppalendur jafnt hin- um daglegu skyldustörfum og vinnustriti. Oftast var búið við þröngan og lélegan húsa- kost. Heimilisstörfin voru erf ið. Daglega þurftu húsmæður- nar að bera inn eldivið til upphitunar og eldunar. Víðast þurfti líka að bera í hús allt vatn, sem ætlað var til heimilisnota. Þvottur og þjón ustubrögð öll voru erfið mjög. Að vetrinum var allur ullar fatnaður unnin á heimilun- um. Og skógerð öll hvíldi á herðum húsmóðurinnar. Yfir- leitt voru bæjarhúsin ómáluð. Ekki þótti annað sæma en allt væri hvítskúrað, bæði þiljur og gólf. Og ekki var það fyr- trúarbrögð hins rúmfasta í samanburði við baráttuglað- an kristindóm. En baráttutrú öðrum frem- ur er þó Múhameðstrúin. Og þó er nokkur munur á þeirri baráttu sem Jesú kallar til og þeirrar, sem er hugsjón Múhameðs og áhangenda hans. Víst stefna þeir að bar- áttu, en það er því líkast sem þeir hafi alls ekki fundið óvininn og því geta þeir aldrei sigrað hann. Þess vegna skortir mannshugsjón- ina dýpt og hlýju. Víst er þar eldur, en hann er „kald- ur“ og eyðandi. Trú Jesú er trú árangurs- ins. Að trúa er að mannast, vaxa. Sú þróun nær að innsta eðli sálarinnar og áhrif henn- ar birtast í hverju verki. Það er manns trú. ÁSLAUG JENSDÓTTIR: Af sjonarhdli sveitakonu irhafnarlaust að þvo viðargólf in svo vandlega, sem þessar konur gerðu. Hugstæðir þættir frá bemskuárum skulu hér rifj- aðir upp. 1 ljósu minni er litla baðstofan heima, þegar börnin voru háttuð í hrein rúmin eftir að hafa verið böðuð úr trébala í eld- húsi. Úti var skammdegis- myrkur, en inni friður og ör- yggi. Ilmur af nýþvegnum viði og eimur af lampaljós- inu myndaði þægilega angan, sem fyllti loftið í baðstof- unni. Önn og strit dagsins voru að baki. Og í augum móðurinnar brá fyrir ham- ingjubliki. Hvorki var rætt um þreytu eða fyrirhöfn. Og nú var það hlutur föðursins að lesa sögur áður en lagst var til svefns. Þann- ig eru mér kunnar frá bernzkuárunum, Brasilíufar- arnir, Eiríkur Hansson, Sögur Jóns Trausta og fleiri bækur. Skammdegisrökkrið, þegar allir sátu í rökkrinu, sem kall að var, og biðu þess að kveikt yrði á olíulampanum eftir að fulldimmt var orðið. Sú stund var okkur börnunum mjög hugþekk. Voru okkur þá kennd kvæði og áttum við| gjarnan að keppast um að nema þau. Fastur liður í heimilislíf- inu voru Húslestrarnir á helgum dögum, þegar ekki var farið til kirkju. Heimilis- faðirinn las hugvekju, en á undan og eftir sungu allir sálma. Fannst okkur börn- unum ef einhverra hluta vegna húslesturinn féll niður, sem helgiblær dagsins hyrfi. Þannig munu heimilissiðir yfirleitt hafa verið á smærri heimilum, þar sem ekki var annað heimilisfólk en fjöl- skyldan. Skólaganga var ekki mikil en bókleg fræðsla heima fyrir svo vel úr garði gerð sem kostur var á. Þegar ég var um fermingaraldur kom út- varpið til sögunnar. Varð þá breyting á heimilislífinu með tilkomu þess og skal vikið að því síðar. Það er mikið rætt og ritað um stöðu konunnar í nútíma þjóðfélagi og kennir þar margra skoðana. Víða virðist eins og gæti vorkunsemi í garð þeirra kvenna, sem eiga. sinn starfsvettvang eingöngu við húsmóðurstörfin og upp- eldi barna. Innanhússtörfin, sem óumflýanlega hvíla á herðum húsmóðurinnar, geta vissulega verið umsvifamikil og þreytandi, sérstaklega þar sem fjölskyldan er stór. — En með þeim tækjum og þæg indum, sem flest nútímaheim- ili eru búin ætti margri byrð- inni að vera létt af frá því, sem áður var. Uppeldi barna og umönn- un mun óumdeilanlega ábyrgð armesti og um leið hamingju- ríkasti starfi, sem nokkurri konu getur hlotnast. Virðast því öll rök fyrir því, að sú móðir, sem getur eingöngu helgað sig uppeldi barna sinna, búi við betri hlut en hin, sem verður að fara til vinnu utan heimilisins á hverjum degi og oft við mis- jöfn skilyrði, án eftirlits með börnunum nema ef þau eldri sjá til með þeim yngri. Menntun og skólaganga kvenna hefir aukist mjög hin síðari ár, og er það mikið fagnaðarefni að verðandi eigin kona og móðir hefir leitað sér, sem víðtækastrar þekk- ingar og náms áður en hið eiginlega lífsstarf hefst. Það er tómt mál, að ljá eyra við þeim röddum sem telja menntun konunnar til- gangslitla og henni tapaða, er hún velur sér stöðu og skyldur eiginkonu og móður. Það mun ekki um deilt, að farsæld hinna yngstu þjóð- félagsborgara mun bezt úr garði gerð af fómandi um- hyggju móðurinnar. Aukin þekking samfara þeirri reynslu sem uppeldis- starfið veitir ætti að tryggja hamingjusaman einstakling þegar út í lífið kemur. Svo sem áður er vikið að, hafði það mjög mikla menn- ingarlega þýðingu fyrir þjóð- ina alla, ekki síst dreifbýlið, þegar Ríkisútvarpið tók til starfa. Það mun óhætt að full yrða, að engin stofnun hefir hin síðari ár náð jafnmiklum vinsældum og orðið fólkinu jafnhugleikin sem útvarpið. Nú gátu eldri og yngri setið við útvarpstækin og hlustað á margvíslegan fróðleik og skemmtiefni, söng og hljóð- færaleik. Starfsfólk útvarps- ins — útvarpsþulirnir urðu TRICITY HEIMILlSTÆKl HUSBVGGIEIIDIIR <H> fSLENZKUR IÐNAÐUR ALLT TRÉVERK Á EINUM STAÐ Eldhúsinnréttingar, raf- tæki, ísskápar, stálvask- ar, svefnherbergisskáp- ar- harðviðarklæðning- ar, inni- og útihurðir. NÝ VERZLUN - NY VIÐHORF OÐINSTORG Skólavörðustíg 16, - sími 14275

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.