Ísfirðingur - 15.12.1969, Síða 16
16
ÍSFIRÐINGUR
Agæt barnabók
Nýlega er komin út bókin
„Fjörkálfarnir“ sem útgáfu-
fyrirtækið Barnabækur í
Reykjavík gefur út. Höfundur
bókarinnar er sænskur rit-
höfundur Sonja Hedberg, en
Konráð Þorsteinsson forstöðu-
maður Sunnudagaskóla
Kristniboðsfélaganna í Reykja
vík hefur þýtt og endursagt
bókina. Er óhætt að fullyrða
að bókin sé ágæt barna- og
unglingabók, hollur og
skemmtilegur lestur.
Á síðast liðnu sumri las
Konráð bókina í útvarpinu og
naut hún mikilla vinsælda,
yngri sem eldri, og bárust þá
margar fyrirspurnir um hvort
hún yrði gefin út. Og nú hef-
ur það verið gert.
Væntanlegur ágóði af bók-
inni mun renna til styrktar
sumarbúðastarfi að Ölver í
Borgarfirði.
Bókagerðin Lilja annast
dreifingu bókarinnar til bóka-
verzlana. Dreifingu á ísafirði
og nágrenni annast Sigfús B.
Valdimarsson, Fjarðarstræíi
24 Isafirði. Sími 3049.
VestfirÐingum öllum sencli ég beztu
jóla- og nýárskveSjur.
Samslarfsmönnum og vinum þaklca
ég ánœgjuleg kynni.
Steingrímur Hermannsson.
SJÚKRASAMLAG ÍSAFJARÐAR
óskar öllum meðlimum sínum gleðilegra jóla
og farsældar og heilbrigðis á komandi ári.
Vestfirðingar!
Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári, viljum við minna ylvkur
á PERMANENT PRESS ódýru herraskyrtumar,
sem fást hjá:
Einar & Kristján, Isafirði.
Verzl. Ásmundar B. Olsen, Patreksf.
Þær eru:
+ fallegar
+ sterkar
+ þægilegar
+ straufríar
+ og mjög ódýrar
Umboðsmenn:
H
F
Hverfisgata 6, sími 20000
Reykjavík.
Samferða...
Framhald af 10. síðu.
Með stærstu undrun sá hún
að harðir þymarnir beygðu
sig fyrir fótum hans, frá
hverju hans skrefi. Og hún
fór að gráta, róandi og létt-
andi gráti. Áður fyrr var hún
ávallt hrokafull og dramb-
söm, en í þessum leiðangri
fannst henni að hún væri
auðvirðilegust allra manna.
Og rétt í því er hún hugsaði
þannig birti til fulls í kring-
um hana eins og af skínandi
sól. Hún' leit upp og sá rétt
fyrir framan sig garðinn
fagra, sem hún hafði séð
Friðrik fara inn í áður.
„Nú erum við komin á
enda á afturhvarfsdalnum“,
sagði fylgdarmaðurinn við
Angelicu, ,og sjá, hér er
Paradísargarðurinn, sem veit-
ir sérhverjum viðtöku, þegar
hann er verðugur þess að hon
um sé veitt innganga".
Og þau fylgdust að inn í
garðinn.
'
Hofr>orstra0li 11. Reykjovik N.V. P.O. Box 826
(SiMAR 10620/10388)
★ NICHIMEN CO., ITD
JAPAN
Jóladagskrá
Hjálpræðishersins
1969-1970
Fyrir fullorðna:
Fimmtudag 18. des. kl. 8,30
Lúsíu-hátíð
Sunnudag 21. des. kl. 8,30
Fyrstu tónar jólanna
Jóladag 25. des. kl. 8,30
Hátíðarsamkoma
2. jóladag 26. des. kl. 8,30
Jólatréshátíð
Sunnudag 28. des. kl. 8.30
Hátíðarsamkoma
Mánudag 29. des. kl. 8,30
Hátíð Heimilasambandsins
Þriðjudag 30. des. kl. 8,30
Jóaltréshátíð Skutulsfirði
Miðvikudag 31. des. kl. 11,00
Miðnætursamkoma fyrir al-
menning
Fimmtudag 1. jan. kl. 8,30
Hátíðarsamkoma
Föstudag 2. jan. kl. 8,30
Jólatréshátíð í Hnífsdal
Laugardag 3. jan. kl. 8,30
Jólatréshátíð í Bolungarvík
Sunnudag 4. jan. kl. 8,30
Samkoma
Sunnudag 4. jan. kl. 3,00
Hátíð fyrir aldrað fólk
Þriðjudag 6. jan. kl. 2,00
Jólatréshátíð fyrir börn og
unglinga
Fyrir börnin:
2. jóladag kl. 2,00
Jólatréshátíð sunnudaga-
skólans, efri bær
Sunnudag 28. des. kl. 2,00
Jólatréshátíð sunnudaga-
skólans, neðri bær
Þriðjudag 30. des. kl. 2,00
Almenn jólatréshátíð fyrir
börn
Aðgangur er kr. 10,00 að
öllum jólatréshátíðum barn-
anna.
Sendum okkar beztu jóla- og
nýárskveðjur til allra félaga,
vina og velunnara.
Hjálpræðisherinn
Isafirði
Stökur
LTIGANGUR
Bjóðast jafnan lítil laun
lýst er sál í banni,
ætíð verður æfin raun
útigöngumanni.
E. Þ.
VETRARNÓTT
Fúnar rætur, fjötur hels
fast um nætur bindur.
Himinn grætur hagli éls,
hátt þú lætur vindur.
E. Þ,