Ísfirðingur - 15.12.1969, Side 8
8
ÍSFIRÐINGUR
ELlAS ÞÓRARINSSON:
Stríðsandi
< -
Hin nýbyggða mjólkurstöð á ísafirði er vönduð bygging og búin fullkomnum vélakosti.
Á myndinni hér að ofan sést hluti af vélasal stöðvarinnar og er Páll Sigurðsson þar við
vinnu sína, en hann hefur lengi verið starfsmaður mjólkurstöðvarinnar. (M:H. Sig)
Kvæðið er samið á seinni hluta styrjaldaráranna síðari.
Eg geng nú glæpa veg
um grýtta. eyði slóð,
úr bleikri bruna glóð
minn brand til viga dreg.
Hans egg var eitri smurð
í æstu blóði hert,
það blikar stálið bert,
á búkum seint mun þurð.
Eg hata líf og ljós
en lyfti dauðans skál,
eg týndi sjálfs míns sál
í sortans dimma ós.
Eg klæðist klaka hjúp
og kneyfa stríðsins öl,
þó syngi golan svöl
eg svíf um lífsins djúp.
Eg drekk þess bana blóð,
sem bitur eggin klauf,
það titrar lífsins lauf
á logans feigðar glóð.
Sú hönd sem brandinn ber
var blóði vigð og sorg,
i timans trylltu borg
mitt tignað gervi er.
Eg róg um byggðir bar
og bræðrum saman hratt
i fjötra friðinn batt
svo friðlaus heimur var.
Eg þrái stöðugt stríð
það streymir fórnar blóð,
eg held við haturs glóð
með heimskum borgar lýð.
Heimilistrygging
betri — hagkvæmari
Samvinnutryggingar hafa nýlega breytt skilmálum um
HEIMILISTRYGGINGAR og bætt inn í þá nokkrum nýjum atriðum,
sem gera trygginguna betri og hagkvæmari.
Þá hafa fastar tryggingarupphæðir hennar verið hækkaðar verulega til
samræmis við núverandi verðlag. T. d. er ábyrgðartrygging
nú Kr. 1.250.000,— í stað Kr. 500.000,— og örorkutrygging húsmóður og
barna (yngri en 20 ára) nú Kr. 300.000,— á hvern einstakling
í stað Kr. 100.000,— áður.
HEIMILISTRYGGING Samvinnutrygginga er sjálfsögð trygging fyrir öll heimili
og fjölskyldur. -•=------c
Með einu símtali getið þér breytt
innbústryggingu yðar í HEIMILIS-
TRYGGINGU. SÍMI 38500
SAMVirVINUTRYGGIIXGAR
AUSTURVEGI 2, 2. HÆÐ - ÍSAFIRÐI - SlMI 3555
■