Ísfirðingur - 15.12.1969, Side 13
ISFIRÐINGUR
13
Brimlending
i Skálavík
Af Selj alandsdal
Þegar lenda skal í stór-
brimi í Skálavík, verður að
gæta þess vandlega, að láta
24 öldur brotna í röð, ef kom
izt skal hjá slysi. Þetta eru
þyngstu sjóirnir, og láta menn
bátinn síðan berast að landi
á 24. öldunni, því að þá er
víst, að þrír minni sjóir koma
þar næst á eftir, og meðan
það hlé verður, gefst mönnum
tóm til að bjarga báti, fólki
og farmi, ef á annað borð
nokkurrar björgunar er von,
Nauðsynlegt er þá, að traust-
ur maður haldi um stýrið og
báturinn sé sem hraðskreið-
astur. Ef brimið er minna,
þá falla aðeins 18, 12 eða 6
stórsjóir á milli þriggja
hinna litlu. Undarlegt er, að
slík regla skuli vera á haf-
rótinu. Þó getur komið fyrir,
að litlu öldurnar séu 4 og
kallast þá sú fjórða auka-
bára. Af þessu má sjá, að
þungir og ómeðfærilegir bát-
ar verða eigi stöðugt notaðir
á Islandi.
(Ferðabók Ó. Ólavíusar
1775—77).
Seljalandsdalur við fsafjörð er eitt allra glæsilegasta
og eftirsóttasta skíðasvæði á fslandi. Þar er oftast
veðursæld,, nægur snjór og skíðabrekkur við allra hæfi.
Þar er ágæt keppnisaðstaða, ný skíðalyfta og myndar-
legir skíðaskálar, og er þar rekinn skíðaskóli á hverjum
vetri. Á vetrum er hin ágæta aðstaða til skíðaiðkana á
Seljalandsdal óspart notuð af fsfirðingum og öðrum.
Á myndinni til vinstri hér að ofan eru skíðagarparnir
Hafsteinn Sigurðsson, Árni Sigurðsson, Samúel Gústafs-
son og Guðmundur Jóhannesson. En allir eru þeir í
fremstu röð skíðamanna hérlendis. Á myndinni til hægri
eru Sigrún Sigurðardóttir, Ragnhildur Jónsdóttir og
Sigurveig Gunnarsdóttir. Allar munu þær hafa hug á
að ná góðum árangri í skíðaíþróttinni.
Skutulsf j örður
Skutulsfjörður er skilinn
frá Bolungarvík af tveimur
lítt færum, snarbröttum, grýtt
um og gróðurlausum hlíðum,
sem heita Ós- og Hnífsdalshlíð
ar. Kirkjubólshlíð og Gleiðar-
hjalli heita tvö há fjöll, er
standa eins og risamúrar sitt
hvorum megin fjarðarins.
Hnífsdalur er rómaður fyrir
gróðursæld, engu síður en
innanverður fjörðurinn þeim
megin, en hinum megin er
gróðurlítið. En það, sem mest
er um vert í firði þessum
auk hafnarinnar, er Eyrin,
þar sem verzlunarhúsin
standa, sem virðist lofa góðu
um, að þar geti risið upp
kaupstaður með tímanum. Að
minnsta kosti er hún vel til
þess fallinn af þeim ástæðum,
er nú skal greina.
1. Grundvöllurinn er þéttur,
sléttur, traustur og víðáttu
mikill.
2. Umhverfið er þurrt og
heilnæmt og útsýnið við-
felldið.
3. Þaðan er hægt að stunda
útræði mestallt árið.
4. Þar í kring eru nægjan-
legir hagar fyrir kýr og
kindur.
5. Ágætt landrými er þar
fyrir kálgarða.
6. Mótekja er þar í sveit-
inni ekki langt í burtu.
7. Vatn er fáanlegt þar í
grennd, bæði til heimilis-
nota, ef brunnar eru grafn-
ir með forsjá, og fyrir
þófaramyllur og þvílíkan
rekstur.
8. Staðurinn er í alfaraleið,
nálægt miðju héraði og
liggur því vel við verzlun.
9. Létt er að víggirða stað-
inn með stauravirkjum, því
að hann er að mestu inni-
luktur frá náttúrunnar
hendi.
10. Höfnin er örugg, innsigl-
ingin hrein og skipalægi
skammt þar fyrir utan.
í stuttu máli sagt hef ég ekki
séð nokkurn stað á landinu,
jafnvel ekki sjálfan Eyja-
fjcrð, sem þolir samanburð
við þennan stað, ef um slik-
ar framkvæmdir væri að
ræða.
(Ferðabók Ó. Ólavíusar
1775—77).
FARSÆLT NÝTT ÁR!
GLEÐILEG JÓL!
Þöklaim viðskiptin á líðancli ári.
Djúpbáturinn hf.
GLEBILEG JÓL! FARSÆLT NÝTT ÁR!
Þökkum viðskiptin á líðándi ári.
Verzlun Einars Hafbergs, Flateyri
GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NÝTT ÁIi!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Rafveita ísafjarðar
GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NÝTT ÁIi!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Rammagerðin Göte Andersen
GLEÐILEG JÖL! FÁIiSÆLT NÝTT ÁR!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
ALLABÚÐ, Flateyri
Prófastshjónin á fsafirði, frú Margrét Hagalínsdóttir |
og séra Sigurður Kristjánsson, ganga úr kirkju að af- í
lokinni guðsþjónustu. (Ljósmynd: Guðm. Sveinsson) |
.i-. ,-, -, i— —