Morgunblaðið - 18.01.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.01.2010, Qupperneq 1
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010 íþróttir Sigur og tap Íslenska landsliðið í handbolta lagði Spán að velli á æfingamóti í Frakklandi en tapaði fyrir ólympíumeistaraliði Frakka í úrslitaleik. Ólafur Guðmundsson lét verkin tala 2-3 Íþróttir mbl.is GUÐJÓN Valur Sigurðsson er rétt- hentur hornamaður í íslenska landslið- inu í handknattleik sem leikur í úr- slitakeppni EM í Austurríki 19.-31. janúar. Guðjón er 30 ára, fæddur 8. ágúst 1979. Hann lék fyrst með A-landsliði Íslands árið 1999 og hefur frá þeim tíma spilað 225 A-landsleiki og skorað í þeim 1.083 mörk. Guðjón hefur spilað flesta leiki af Íslendingunum á EM, hann hefur leikið á öllum mótum frá 2000, og er næstmarkahæstur með 115 mörk. Hann var í landsliðinu sem fékk silfurverðlaunin á ÓL í Peking 2008. Guðjón kom 16 ára í lið Gróttu tímabilið 1995-96 og lék með því í tvö ár, síðan Gróttu/KR í eitt ár, en hann gekk til liðs við KA 1998 og lék þar í þrjú ár. Guðjón lék með Essen í Þýskalandi frá 2001 til 2005. Þá fór hann til Gummersbach og lék þar í þrjú ár en hefur frá sumrinu 2008 verið leikmaður Rhein-Neckar Löwen. FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Á EM Í AUSTURRÍKI ER Á MORGUN Guðjón Valur Sigurðsson Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is ENSKA blaðið Daily Star lét að því liggja í gær að enska úrvalsdeildarliðið Burnley væri að undirbúa tilboð í Aron Gunnarsson hjá Coventry City sem leikur í 1. deild. Daily Star telur tilboðið hljóða upp á 194 milljónir króna en Íslendingurinn Jóhannes Karl Guðjónsson er í her- búðum Burnley. Brian Laws er nýtekinn við stjórn- artaumunum hjá Burnley af Owen Coyle. Aron sagðist ekki hafa fengið neitt inn á borð til sín vegna þessa þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gær. Hann kann- aðist þó við áhuga Burnley. ,,Umboðsmaður minn sagðist vita af áhuga Burnley fyrir nokkru og þá var Owen Coyle við stjórnvölinn. Ég hef ekkert heyrt af þessu eftir að Laws tók við. Hann kom hins vegar frá Sheffield Wednesday og ég spilaði tvívegis gegn þeim í fyrra. Ég vissi að Owen hafði áhuga á því að fá mig og það gætu þá verið sömu njósnarar með nýja þjálfaranum. En eins og ég segi þá hef ég ekkert heyrt af þessu máli eftir að Owen fór til Bolton. Mamma sýndi mér þetta bara á netinu áðan og ég veit því ekkert meira,“ sagði Aron sem á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Coventry. Viðræður um framlengingu á þeim samningi fóru í gang síðastliðið haust en sigldu í strand. ,,Ég hef ekkert heyrt frekar frá stjórnarformanninum og það er allt stopp. Ég ákvað að einbeita mér að því að koma mér aftur í form og ljúka tímabilinu almennilega. Ég er kominn aftur í mjög gott form og er ekkert að hugsa um samningsmálin hjá Coventry sem stendur. Ég tek ákvörðun í sumar um hvað ég geri, þ.e. ef ekkert ger- ist á meðan janúarglugginn er opinn. Maður veit aldrei hvar maður endar í þessum fótbolta. Ef úrvalsdeildarlið sýnir manni áhuga þá klárlega skoðar maður það.“ „Mamma sýndi mér þetta bara á netinu“ GRÍÐARLEG keppni var á milli bringusundskappanna Jakobs Jó- hanns Sveinssonar og Norðmanns- ins, Alexanders Dale Oen, í sund- keppni alþjóðlegu Reykjavíkurleikanna í Laugardals- laug um helgina. Dale Oen, sem er silfurverðlaunahafi frá Ólympíu- leikunum, hafði betur í einvígi við Íslandsmethafann í 50 og 100 m bringusundi. Jakob Jóhann náði fram hefndum í 200 m bringusundi í gær við mikinn fögnuð á fínum tíma, 2.16,84 mínútum. Þrjú mótsmet féllu um helgina. Hrafnhildur Lútersdóttir setti tvö þeirra. Fyrst í 50 m bringusundi á 32,59 sekúndum og svo í 100 m bringusundi 1.11,09 mínútum. Eygló Ósk Gústafsdóttir setti þriðja mótsmetið þegar hún kom í mark í 200 m baksundi á 2.21,95. Yfir 250 keppendur tóku þátt í sundkeppni leikanna, þar af yfir 90 erlendir keppendur. Í lok voru veitt peningaverðlaun fyrir 5 stigahæstu afrekin á mótinu. Jakob Jóhann vann annað besta af- rek mótsins og fékk að launum 700 evrur. iben@mbl.is Jakob Jóhann vann silfur- hafa frá ÓL Sigursæll Jakob Jóhann Sveinsson gaf ekkert eftir í sundkeppni helg- arinnar. HART var barist í júdókeppninni á alþjóðlega íþróttamótinu Reykjavík International Games sem fram fór um helgina í Laugardalnum. Júdósamband Íslands hélt afmælismót sam- hliða alþjóðlega mótinu og á myndinni eigast þeir voru 300 erlendir keppendur. Þetta er í þriðja sinn sem keppnin fer fram og virðist mótið hafa fest sig í sessi. Keppnisgreinarnar eru 10 alls og á bls. 4-5 er að finna myndasyrpu frá keppninni. »4-5 Jón Þór Þórarinsson og Kristján Jónsson við í úr- slitum í -73 kg flokki karla. Þar hafði Jón Þór bet- ur. Ármenningar fengu flest gullverðlaun í júdó- keppninni eða átta alls. Um 2.000 keppendur tóku þátt í mótinu, þar af Morgunblaðið/Árni Sæberg Jón Þór Þórarinsson hafði betur í úrslitaviðureigninni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.