Morgunblaðið - 18.01.2010, Side 2

Morgunblaðið - 18.01.2010, Side 2
2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010 BERGLIND Íris Hansdóttir, mark- vörður Vals og íslenska landsliðsins í handknattleik, átti enn einn stór- leikinn með liði sínu þegar Valur hélt sigurgöngu sinni áfram með stórsigri á FH, 32:17, í N1-deild kvenna heimavelli sínum. Berglind Íris varði 23 skot, þar af þrjú víta- köst og lokaði markinu á köflum í leiknum. Staðan í hálfleik var 12:6, Val í sem vann með sinn 12. sigur í deild- inni í vetur. Valur hefur ekki tapað leik í deildinni en hefur komist næst í tveimur jafnteflisleikjum. Valur hefur þar með þriggja stiga forskot á Fram í efsta sæti deildarinnar. Hrafnhildur Skúladóttir og Íris Ásta Pétursdóttir léku ekki með Valsliðinu að þessu sinni vegna meiðsla. Hrafnhildur hefur lengi glímt við eymsli í hásinum og var ákveðið af þeim sökum að gefa stórskyttunni frí að þessu sinni. Íris Ásta er meidd í hné en ekki er talið að það sé alvarlegt. Ágústa Edda Björnsdóttir átti fínan leik í liði Vals og skoraði 10 mörk. iben@mbl.is Berglind Íris varði 23 skot STÓRSKYTTAN Ramune Pek- arskyte hefur ákveðið að söðla um að loknu yfirstandandi keppn- istímabili og ganga til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Levanger sem Ágúst Jóhannsson þjálfar. Pekarskyte, sem er frá Litháen, hefur leikið í tæp sjö ár með hand- knattleiksliði Hauka við afar góðan orðstír og verið einn máttarstólpa liðsins. Hún mun hafa greint sam- herjum sínum í Haukum frá vænt- anlegum vistaskiptum eftir við- ureign Fram og Hauka í N1-deildinni á síðasta laugardag. Pekarskyte, sem á að baki nokkra tugi landsleiki fyrir Lithá- en, hefur samþykkt tveggja ára samning við Levanger og verður opinberlega greint frá samn- ingnum í Noregi í dag. Levanger situr nú í áttunda sæti af tólf liðum norsku úrvalsdeild- arinnar með átta stig að loknum tíu leikjum. Liðið ætlar sér að komast upp úr botnbaráttunni á næstu leik- tíð undir stjórn Ágústs sem nýverið skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Rakel Dögg Bragadóttir gekk til liðs við Levanger í nóvember og hefur leikið vel með liðinu. iben@mbl.is Pekarskyte til Levanger STJARNARN heldur þriðja sætinu örugglega eftir stórsigur á KA/ Þór, 36:22, í Mýrinni á laugardag. Heimaliðið var sex mörkum yfir í hálfleik, 19:13. Eftir leikinn er Stjarnan fjórum stigum á eftir Fram sem situr í öðru sæti en Garðbæingar eiga tvo leiki til góða sem frestað var fyrir ára- mót vegna þátttöku Florentinu Stanciu í heimsmeistaramótinu í handknattleik með landsliði Rúm- eníu. Stanciu, nýkrýndur íþróttamað- ur Garðabæjar, átti að vanda góðan leik í marki Stjörnunnar. Hún varði 19 skot en lék ekki allan leiktímann og Sólveig Lára Ásmundardóttir leysti hana af síðustu mínútur leiks- ins. Hún varði þrjú skot. Alina Tamasan skoraði hvorki fleiri né færri en 13 mörk fyrir Stjörnuna. KA/Þór var aðeins með 10 leik- menn á skýrslu að þessu sinni. Tamasan með 13 mörk FRAM-liðið virtist ekkert sakna þjálfara síns, Einars Jónssonar, að þessu sinni. Hann tók úr leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald undir lok viðureigna Stjörnunnar og Fram í fyrstu umferð á nýju ári. Í fjarveru Einars stýrði Guðríður Guðjóns- dóttir, aðstoðarþjálfari Fram, liðinu og mætti þar með yngstu systur sinni og mági, Díönu Guðjónsdóttur og Ægi Erni Sigurgeirssyni, en þau þjálfara Haukaliðið. Guðríður hrósaði sigri. Fram hafði forystu í leiknum frá upphafi til enda og virðist ekkert ætla að gefa eftir í keppninni um efstu sæti deildarinnar. Eftir sigurinn er Fram eftir sem áður þremur stig- um á eftir toppliði Vals. Toppbaráttan í N1-deild kvenna virðist ætla að vera kapphlaup þriggja liða; Vals, Fram og Stjörnunnar. Eftir tapið fyrir Fram á laug- ardag virðast Haukar, sem voru deildarmeist- arar á síðustu leiktíð, smátt og smátt að drag- ast aftur úr toppliðunum. Framundan er slagur hjá Haukaliðinu við að halda fjórða sætinu og komast þar með í úrslitakeppnina. FH og Fylkir sækja fast að Haukum og m.a. munar aðeins tveimur stigum á grannaliðunum í Hafnarfirði. iben@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Átök Pavla Nevarilova, leikmaður Fram, skoraði 4 mörk gegn Haukum og hún var ekki alltaf sátt við varnarmenn Hauka sem taka hér fast á Pövlu. Guðríður hafði betur Fimmta tap Hauka staðreynd og framundan hörð barátta um fjórða sætið Karen Knútsdóttir átti stórleik með Fram þegar lið- ið vann 11 marka sigur á Haukum, 32:21, á heima- velli, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálf- leik, 15:10. Karen skoraði 12 mörk og réðu leikmenn Hauka ekkert við hana. „VARNARLEIKURINN var lengst af betri að þessu sinni en hann hefur verið til þessa á undirbúningstímanum,“ sagði Guðmundur Þórður Guð- mundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, eftir að íslenska landsliðið vann það spænska, 30:27, á æfingamóti í Bercy-höllinni í Frakklandi á laugardaginn. „Við áttum í erfiðleikum með vörnina fyrstu tíu mínútur leiksins en síðan batnaði hún verulega. Þá var markvarslan mjög góð. Björgvin Páll varði 21 skot, þar af 14 í síðari hálfleik. Sóknarleikurinn gekk vel lengstum en það komu kaflar þar sem við vor- um fullstaðir í sókninni og boltinn var ekki á nógu mikilli hreyfingu. Fyrir vikið náðu Spánverjar að neyða okkur á tíðum í að skjóta úr slökum fær- um. En að öðru leyti gekk sóknarleikurinn vel og hraðaupphlaupin í fyrri hálfleik voru mjög góð,“ sagði Guðmundur. Hann var óánægður með hversu oft íslensku leikmennirnir létu reka sig út af en alls voru þeir utan vallar í 16 mínútur. „Það er eitthvað sem við verðum að skoða,“ sagði Guð- mundur sem var að vonum ánægður með sigurinn. Íslenska landsliðið hafði forystu allan leikinn og náðu Spánverjar aðeins að jafna metin í nokkur skipti, síðast 19:19, þegar um 12 mínútur voru liðn- ar af síðari hálfleik. Mest náði Ísland fimm marka forskoti, 28:23. Frakkar unnu stórsigur á Brasilíu á sama móti síðar á laugardaginn, 37:20. Sex marka munur var á liðunum í hálfleik, 18:12. Daniel Narcisse lék með Frökkum á nýjan leik en hann hefur verið frá keppni í rúman mánuð vegna meiðsla. Narcisse skoraði fimm mörk eins og Nikola Karabatic. Guillaume Joli var markahæstur Frakka með sex mörk. Xavier Barachet og Sebastian Ostertang skoruðu fjögur mörk hvor. Morgunblaðið/Kristinn Sterkur Vignir Svavarsson er ávallt fastur fyrir í íslensku vörninni. Framfaramerki á varnarleik Íslands í sigri á Spáni Bercy-höllin í París, fjögurra þjóða æf- ingamót laugardaginn 16. janúar 2010. Gangur leiksins: 1:0, 2.2, 4:2, 8:5, 8:7, 10:7, 11:10, 12:12, 14:12, 15.12, 18:15, 18:18, 22:19, 22:21, 26:22, 28:26, 30:27. Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðs- son 6, Ólafur Stefánsson 5/1, Róbert Gunnarsson 5, Snorri Steinn Guð- jónsson 5/3, Alexander Petersson 3, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2, Sverre Jakobsson 2, Arnór Atlason 1, Ingi- mundur Ingimundarson, 1. Hreiðar Guðmundsson, Logi Geirsson, Vignir Svavarsson, Ólafur Guðmundsson og Sturla Ásgeirsson voru einnig á leik- skýrslu. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 19. Utan vallar: 16 mínútur, þar af fékk Ingimundur rautt spjald við þriðju brottvísun á 56. mínútu. Mörk Spánar: Juan Garcia 6, Cristian Malmagro 5, Iker Romero 3, Chema Rodríguez 3, Alberto Enterríos 2, Edu- ardo Gurbindo 2, Viktor Tomás 2, Raúl Enterríos 2, Julien Aguinagalde 2. Varin skot: Arpad Sterpik 18 skot. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: D. Reibel og T. Dentz frá Frakklandi. Ísland – Spánn 30:27 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.