Morgunblaðið - 18.01.2010, Page 7
Íþróttir 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
LEIKMENN Lundúnaliðsins Arsenal fögn-
uðu endurkomu Cesc Fabregas með 2:0-sigri á
Bolton á útivelli í gær. Þrátt fyrir ungan aldur
er Spánverjinn Fabregas hjartað og heilinn í
leik Arsenal og hann lét ekki sitt eftir liggja
gegn Bolton. Fabregas skoraði fyrra mark
Arsenal á 28. mínútu eftir þríhyrningsspil við
Andrei Arshavin og hefur fyrirliðinn nú skorað
13 mörk á leiktíðinni. Síðara mark Arsenal
kom sextíu mínútum síðar og það skoraði vara-
maðurinn Fran Merida eftir undirbúning Edu-
ardos.
Arsenal nartar í hæla Chelsea og Manchest-
er United í titilbaráttunni. Arsenal er með 45
stig í 3. sæti deildarinnar, þremur stigum á eft-
ir Chelsea og tveimur á eft-
ir United, en þau eiga þó
leik til góða á Arsenal.
Owen Coyle stýrði Bolt-
on í fyrsta skipti en hann
var áður knattspyrnustjóri
hjá Burnley. Coyle tefldi
Grétari Rafni Steinssyni
fram í stöðu hægri bakvarð-
ar og lék Grétar allan leik-
inn. Bolton er í stökustu
vandræðum í 19. og næst-
neðsta sæti deildarinnar með aðeins 18 stig en
á reyndar 1-2 leiki til góða á keppinauta sína
og getur því lagað stöðu sína. kris@mbl.is
Viðeigandi endurkoma hjá Fabregas
Cesc
Fabregas
EIÐUR Smári Guðjohnsen átti góða innkomu
í seinni hálfleik þegar Mónakó lagði Sochaux,
2:0, í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu á
laugardagskvöld.
Eiði var skipt inn á á 58. mínútu í stöðunni
0:0 og átti þátt í öðru marki liðsins.
Nene skoraði bæði mörk Mónakó á síðustu
sjö mínútum leiksins. Eiður átti sinn þátt í
öðru markinu en hann átti sendingu á vara-
manninn Yannick Sagbo sem gaf á Nene og
Brasilíumaðurinn skoraði af stuttu færi.
Eiður átti fínt færi í stöðunni 0:0 en hann
skot hans var úr erfiðri stöðu og fór boltinn
rétt framhjá markinu. Landsliðsframherjinn
á enn eftir að opna markareikning sinn í
deildarkeppninni með
franska liðinu, en hann
skoraði í vítaspyrnu-
keppnni í bikarleik á dög-
unum.
Eiður Smári hafði ekk-
ert komið við sögu í síðustu
fjórum deildarleikjum eða
frá því um miðjan desem-
ber. Mónakó vann Mont-
pellier á heimavelli, 4:0 í
síðasta deildarleik en liðið
er í fimmta sæti deildarinnar með 33 stig.
Næsti leikur Mónakó-liðsins er gegn Paris
SG á útivelli hinn 20. janúar.
Eiður fékk tækifæri með Mónakó
Eiður Smári
Guðjohnsen
LIVERPOOL er sem stendur í 7.
sæti deildarinnar en er þó ekki nema
4 stigum frá 4. sætinu þrátt fyrir
allt. Úr því sem komið er hlýtur það
að vera markmiðið hjá Liverpool að
ná 4. sætinu sem gefur þátttökurétt
í Meistaradeild Evrópu sem kunn-
ugt er. Ekki er þó margt sem bendir
til þess að Liverpool takist það ætl-
unarverk því liðið hefur aðeins unnið
10 deildarleiki af 21. Til þess að
bæta gráu ofan á svart er liðið úr
leik í Meistaradeildinni þar sem Liv-
erpool hefur átt ágætu gengi að
fagna á undanförnum árum.
Benítez ánægður
Sjálfsagt hefðu mörg önnur félög
sparkað knattspyrnustjóranum við
þessar kringumstæður en Liverpool
hefur ekki verið þekkt fyrir slíkar
aðgerðir í glæsilegri sögu félagsins.
Eftir allt sem á undan er gengið var
Benítez nokkuð ánægður með
frammistöðuna gegn Stoke þegar
BBC ræddi við hann. ,,Leikurinn
var harður og mjög erfiður. Við
lögðum okkur virkilega fram og
sýndum góðan karakter. Margir
leikmanna minna eru ekki leikfærir
og þeir sem voru inni á vellinum
leystu sitt hlutverk vel af hendi,“
sagði Benítez sem vísaði þar til þess
að á sjúkralistanum hjá Liverpool
eru ekki ómerkari menn en Fern-
ando Torres og Steven Gerrard.
Ekki er hægt að segja að heppnin
hafi verið með lærisveinum Benítez í
leiknum. Grikkinn Sotirios Kyrgia-
kos kom Liverpool yfir snemma í
seinni hálfleik en undir lok leiksins
jafnaði Robert Huth metin fyrir
Stoke. Á lokasekúndunum munaði
engu að Liverpool skoraði sig-
urmarkið en skalli Dirk Kuyt fór í
stöngina. Auk þess hefði Liverpool
átt með réttu að fá dæmda víta-
spyrnu þegar brotið var á Lucas
Leiva á 25. mínútu en dómarinn Lee
Mason vildi meina að Lucas hefði
látið sig falla og gaf honum gult
spjald fyrir leikaraskap. Benítez var
blóðillur vegna þessa.
,,Allir gátu séð að við áttum að fá
tvær vítaspyrnur í leiknum. Maður
veit að því verður ekki breytt héðan
af en þegar um svo augljós atvik er
að ræða verður maður ögn hissa. Ég
er á því að í báðum tilfellum hefðum
við átt að fá vítaspyrnu,“ sagði Bení-
tez ennfremur. Spurður um hvort
hann væri að ganga í gegnum erf-
iðasta tímabil á sínum ferli sem
knattspyrnustjóri, gaf hann ekkert
út á það en sagði að stuðningsmenn-
irnir stæðu á bak við liðið og það
væri mikilvægt.
Jóhannes á Old Trafford
Skagamaðurinn Jóhannes Karl
Guðjónsson fékk að spreyta sig á
hinum fornfræga heimavelli Eng-
landsmeistaranna, Old Trafford í
viðureign Manchester United og
Burnley. Jóhannes kom inn á sem
varamaður í liði Burnley á 73. mín-
útu en það var þó ekki ferð til fjár
því Burnley tapaði 0:3. Helst bar til
tíðinda að Senegalinn ungi Mame
Biram Diouf skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Rauðu djöflana. Wayne
Rooney var einnig á skotskónum og
er þar með orðinn markahæstur í
deildinni með 15 mörk, einu á undan
Didier Drogba, Jermain Defoe og
Darren Bent. kris@mbl.is
Berst fyrir starfi sínu
Benítez horfði á björtu hliðarnar eftir jafnteflið gegn Stoke Gat þó ekki stillt
sig um að gagnrýna dómgæsluna Rooney orðinn markahæstur með 15 mörk
Reuters
Nefrennsli Þeir voru ekki upplitsdjarfir í kuldanum í Stoke on Trent, Rafa Benítez og Sammy Lee.
Í HNOTSKURN
» Rafa Benítez er ekki í öf-undsverðu hlutverki um
þessar mundir. Stórveldinu Liv-
erpool gengur illa á öllum víg-
stöðvum auk þess sem Torres
og Gerrard eru á sjúkralist-
anum.
» Jóhannes Karl Guðjónssonkom við sögu á Old Traf-
ford en þurfti að sætta sig við
tap gegn meisturunum í United.
Ógæfu Liverpool verður allt að vopni
um þessar mundir en á laugardaginn
mistókst liðinu að leggja Íslandsvin-
ina í Stoke City að velli á Britannia-
leikvanginum. Spænski knatt-
spyrnustjórinn Rafa Benítez þurfti
sárlega á sigri að halda til þess að
létta pressunni af sér en verulega
hefur hitnað undir honum á þessari
leiktíð. Benítez reyndi þó að horfa á
björtu hliðarnar, eins og Stormskerið
gerði hér um árið, og sagði leikmenn
sína hafa staðið sig mjög vel miðað
við aðstæður.
Hólmar ÖrnEyjólfsson,
miðvörðurinn
sem West Ham
lánaði á dögunum
til Roeselare í
Belgíu, fór beint í
byrjunarlið fé-
lagsins sem tók á
móti Mechelen á
laugardag.
Roeselare beið lægri hlut í leikn-
um, 1:2, og fékk á sig úrslitamark
undir lok leiksins. Hólmar lék allan
tímann í stöðu miðvarðar en Bjarna
Þór Viðarssyni var skipt af velli um
miðjan síðari hálfleik. Hólmar er 19
ára gamall og hefur verið í her-
búðum West Ham frá miðju sumri
2008 en félagið keypti hann þá af
HK.
EyjamaðurinnGunnar
Heiðar Þorvalds-
son var í byrj-
unarliði Reading
í fyrsta skipti
þegar liðið tapaði
fyrir Nottingham
Forest á útivelli,
1:2, í gær. Gunn-
ar var tvívegis aðgangsharður upp
við mark Forest í leiknum. Ívar
Ingimarsson var einnig í byrj-
unarliði Reading en Brynjar Gunn-
arsson kom inn á sem varamaður.
Fjórði Íslendingurinn, Gylfi Sig-
urðsson, kom ekki við sögu en hann
á við smávægileg meiðsli að stríða.
Reading er í bullandi fallbaráttu í
ensku 1. deildinni en Forest er hins
vegar í 2. sæti.
David Moyes, knattspyrnustjóriEverton, sendi Manchester
City tóninn í leikskrá Everton fyrir
leik liðanna á laugardaginn. Moyes
gerði kaup City á varnarmanninum
Joleon Lescott frá Everton að um-
talsefni og sagði framferði forráða-
manna City hafa einkennst af
smekkleysi. Everton sigraði, 2:0, og
að leiknum loknum sagði Moyes sig-
urinn hafa verið afar sætan þar sem
City var fórnarlambið. ,,Ég held að
maður njóti sigranna enn betur þeg-
ar manni finnst maður hafa verið
órétti beittur,“ sagði Moyes.
Heiðar Helgu-son skoraði
sitt sjötta mark
fyrir Watford á
leiktíðinni þegar
liðið tapaði fyrir
Doncaster, 2:1, í
ensku 1. deild-
inni. Heiðar skor-
aði úr vítaspyrnu
á lokamínútum
leiksins.
Emil Hallfreðsson skoraði einnigfyrir Barnsley gegn Sheffield
Wednesday en það dugði ekki til því
Barnsley tapaði á heimavelli, 1:2.
Var þetta fyrsti sigur Wednesday í
12 leikjum. Markið var allsérstakt
samkvæmt enskum netmiðlum og
skoraði Emil utan af kanti.
Fólk sport@mbl.is
CHELSEA situr í toppsæti ensku úrvalsdeild-
arinnar og undirstrikaði það með viðeigandi hætti á
laugardaginn. Liðið fékk þá Sunderland í heimsókn
á Stamford Bridge og bauð upp á mikla marka-
veislu sem endaði í níu mörkum. Þeim var heldur
ójafnt skipt því Chelsea vann stórsigur, 7:2. Heima-
menn léku gestina sundur og saman í fyrri hálfleik
og höfðu yfir, 4:0, að honum loknum. Nicolas
Anelka og Frank Lampard skoruðu tvö mörk hvor,
en Michael Ballack, Florent Malouda og Ashley
Cole skoruðu sitt markið hver fyrir Chelsea.
Boudewijn Zenden og Darren Bent skoruðu mörk
Sunderland í leiknum. Ítalski knattspyrnustjórinn
hjá Chelsea, Carlo Ancelotti, hélt vart vatni yfir
frammistöðu sinna manna þeg-
ar úrslitin lágu fyrir.
,,Ég er ánægður því frammi-
staða okkar var stórbrotin. Lík-
lega okkar besta frammistaða á
leiktíðinni. Við lékum mjög vel
og leikmennirnir voru mjög
hreyfanlegir. Blaðamenn hafa
rætt og ritað mikið um afrísku
leikmennina okkar sem eru að
leika í Afríkukeppninni en við
sýndum að við getum leikið
mjög vel án þeirra. Þetta var góð stund fyrir okkur.
Við höfum æft gríðarlega vel og leikmenn eru í
góðu ásigkomulagi,“ sagði Ancelotti í viðtali á BBC
að leiknum loknum. Hann hafði efni á því að kippa
þeim John Terry og Ashley Cole út af í hálfleik og
sagðist hafa gert það í varúðarskyni þar sem þeir
ættu við smávægileg meiðsli að stríða. ,,Það er í lagi
með þá en þetta var gert í varúðarskyni. John á í
vandræðum með bakmeiðsli og Ashley fékk högg á
ökklann,“ sagði Ancelotti. Kollegi hans hjá Sunder-
land, Steve Bruce, er sérfræðingur í varnarleik og
á því ekki að venjast að fá á sig sjö mörk. ,,Það er
engin ástæða til að fara í kringum þá staðreynd að
við fengum duglegt spark í rassinn,“ sagði Bruce
meðal annars við blaðamenn.
kris@mbl.is
,,Líklega okkar besta frammistaða“
Chelsea sýndi meistaratakta og skoraði sjö mörk gegn Sunderland
Carlo
Ancelotti