Monitor - 29.04.2010, Síða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010
Raunir
aðdáenda
Eurovision-nördar verða ekki
til á einni nóttu. Eins og með
önnur blæti byrja þessar
kenndir að þróast innra með
mönnum eitthvað í kringum
kynþroskaaldurinn. Jafnvel
fyrr. Allir Eurovision-
nördar eiga sér
þann draum að
upplifa keppnina
í eigin persónu
og heittrúaðasti
armurinn leggur í
pílagrímsferð allavega
einu sinni á lífsleiðinni.
Þessi hópur hefur stækkað með
keppninni og nú er svo komið
að eftirspurn eftir miðum á
keppnina er margfalt meiri
en framboðið. Miðasalan fyrir
Eurovision í Osló hófst þann 8.
febrúar en þá þegar höfðu óðir
aðdáendur löngu bókað upp öll
hótel borgarinnar. Margir þeirra
urðu þó fyrir vonbrigðum þar
sem miðar á
lokakvöldið,
hátt í
tuttugu
þúsund
stykki,
seldust
upp á einungis 20
mínútum. Verður það
að teljast nokkuð gott, ekki síst
þar sem miðarnir eru síður en
svo gefins. Verðið var á bilinu 17
til 34 þúsund krónur.
Miðarnir eru líka vinsæll
varningur til endursölu á
Netinu en þar má finna miða
frá 43 þúsund krónum og
allt upp í 232 þúsund krónur
fyrir allra bestu sætin - sem
gæti hentað vel fyrir sturlaða
eða þá sem vita að þeir
munu deyja í júní og eiga enga
erfingja.
Útlit er fyrir að metfjöldi
Íslendinga verði á keppninni
í ár og hafa margir einmitt
valið að fara þessa ódýrari leið
til að vega upp á móti þeim
mikla kostnaði sem fylgir því
að vera í Noregi. Þá er það
ekki síst hluti af upplifuninni
að vera í borginni á meðan
á herlegheitunum stendur
enda nóg að gerast. Þeir sem
búa svo vel að vera með
blaðamannapassa
eða sérstakan
aðdáendapassa
býðst svo
að fara á
Euroclub sem
er opinber
skemmtistaður
keppninnar og
flyst með henni
á milli ára og þangað mæta
keppendur og skemmta sér
með heitustu aðdáendunum.
Að djamma þar er því eins og
að komast í eftirpartý með
Andrési Önd og Mikka Mús í
Disneylandi.
Það er ljóst að langt leiddir,
eins og undirritaður, munu því
ekki eyða tíma í að þvælast á
söfn eða í útsýnisferðir. Ekki
frekar en múslimar sem fara til
Mekka eyða tíma í að hanga á
sundlaugabörum, eins og einn
sannur aðdáandi orðaði það.
haukurjohnson@monitor.is
5
vikur
í EurovisionÞverröndótt
og þægilegt
Myndir/Ernir
Dóri DNA var yfir pari á árshátíð á dögunum
Hljóp út í
móðursýkiskasti
„Ég var ekki í stuði. Ég var að fara að fljúga
út daginn eftir og bara náði honum ekki upp,
sama hvað ég reyndi,“ segir Halldór Halldórsson,
betur þekktur sem Dóri DNA. Hann kom fram á
árshátíð í síðustu viku við dræmar undirtektir.
Svo dræmar að Fréttablaðið sá ástæðu til að skrifa
um uppákomuna: „Þegar kom að Dóra var eins og
slökkt hefði verið á hláturtaugum gesta.“
Dóri segist vera sár yfir ummælunum. „Þetta
var gigg sem við komum frítt fram á, bara upp
á vinskap. Það voru 90 manns þarna og allir að
éta steik. Ég tók einhverja handrukkarabrandara
sem slógu í gegn í Keflavík, en það heyrðist ekki
múkk í salnum. Þannig að ég sagði bara: „Haldið
þið að þið séuð betri en fólkið í Keflavík? Þið
getið huggað ykkur við að ég fékk ekkert borgað
fyrir þetta!“ Svo hljóp ég út í móðursýkiskasti og
teygaði þrjú vodkaglös í gamalli Benz-bifreið fyrir
utan Hótel Loftleiðir,“ segir Dóri.
Dóri getur þó glaðst yfir velgengni sinni um
síðustu helgi, þegar Mið-Íslendingar gerðu góða
ferð til Danmerkur. „Það var feitt úti í Danmörku.
Það mættu þvílíkt margir og þetta var geðveikt
kvöld. Friðrik Weishappel bauð okkur í brunch
og Gísli Marteinn mætti að horfa á,“ segir Dóri og
bætir við að sá síðarnefndi hafi verið tekinn fyrir.
„En hann var mjög ánægður með þetta. Hann er
með svo breitt bak hann Gísli,“ segir Dóri.
EURO-HAUKUR ER DÓSENT Í EUROVISION
Dóra Júlía Agnarsdóttir kíkti með
Monitor í Deres og setti saman
flott hversdagslegt dress.
DÓRI DNA ÁRIÐ 2007
ÁÐUR EN ÖRLÖGIN TÓKU Í TAUMANA
PLUS-SKÓR
„Fullkomnir sumar-
sneakers. Líka til sætir
í hvítu.“
3.990 kr.
Deres
DIESEL-
LEGGINGS
„Mynstraðar leggings
eru heitar.“
6.990 kr.
Deres
RÖNDÓTTUR
SPARKZ-
HLÝRABOLUR
„Allar á Austurvöll í
þessum hlýrabol.“
4.990 kr.
Deres
SPARKZ
GALLASKYRTA
„Gallaskyrtur eru
komnar til að vera.“
11.990 kr.
Deres
BIG & CURVY
AUGNHÁRALITUR
„Trefjabursti aðskilur
augnhárin, lengir þau og
sveigir.“
2.190 kr.
Body Shop
SPARKZ
HLÝRALAUS
TOPPUR
„Sætur einn og sér eða
sem undirtoppur.“
2.990 kr.
Deres
CARBON BLACK-
AUGNBLÝANTUR
„Mjúkur blýantur og
svamppensill á hinum
endanum..“
1.590 kr.
Body Shop
BLENDER-
AUGNSKUGGA-
BURSTI
„Mjúk nælonhár sem
duga mjög lengi.“
1.390 kr.
Body Shop
DIESEL-KLÚTUR
„Þetta aukalega til að
fullkomna lúkkið.“
7.990 kr.
Deres
DÓRA JÚLÍA
AGNARSDÓTTIR
Fyrstu sex: 08.09.92
Nemi á náttúrufræðibraut í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Hvað fílar þú helst við þetta
lúkk?
Ég hef alltaf verið mjög hrifin af
þverröndóttu í öllum litum. Þetta
er þægilegur hversdagskjóll og
sætir sumarskór.
Hvað er móðins um þessar
mundir? Herralegir stelpuskór,
þröngir og stuttir síðermakjólar,
samfestingar og þröngar
stuttbuxur.
Nauðsynlegur fylgihlutur?
Stórir eyrnalokkar!
Hvaða flík keyptir þú síðast?
Ljósbleikan leðurjakka á Spáni.
Uppáhaldsmerki? Ég hef mest
gaman af því að versla í litlum
búðum erlendis, Topshop og
Urban Outfitters.
Hverju myndir þú aldrei klæðast?
Denim á denim og push-up
brjóstahaldara.
Hljómsveit? Ég er búin að hlusta
mikið á Hjálma í allan vetur.
Uppáhaldsbarnaefni? Dóra
landkönnuður, af augljósum
ástæðum.
Snyrtivara? Litríkir varalitir.
Uppáhaldsflík? Upphátt pils sem
var saumað á mig í Amsterdam og
ljósbleik kasmírpeysa frá ömmu.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Ferðast mikið innanlands,
skemmta mér með vinum
og njóta lífsins.
AUGNSKUGGI
„Klassískur fyrir
„smokey“ förðun.“
1.380 kr.
Body Shop