Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 29.04.2010, Qupperneq 12

Monitor - 29.04.2010, Qupperneq 12
12 Monitor FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 fílófaxið fimmtudagur 29 apríl FYRIRLESTUR UM KYNFERÐISOFBELDI Oddi, stofa 101 12:15 Anna Pála Sverrisdóttir,lögfræðingur, heldur fyrirlestur um kynferðisofbeldi friðargæsluliða gagnvart konum og börnum sem þeim er ætlað að vernda. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Drekkt af sundlaugarverðinum – kynferðisofbeldi af hálfu friðargæsluliða“. Fyrirlesturinn er opinn öllum. OPNUNARHÁTÍÐ LISTAR ÁN LANDAMÆRA Ráðhúsið í Reykjavík 17:00 Opnunarhátíð Listar ánlandamæra og samsýning í Ráðhúsi Reykjavíkur. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setur hátíðina og flytur opnunarávarp og fjölmargir listamenn koma fram. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir, eins og á alla viðburði Listar án landamæra. RAUÐ TÓNLEIKARÖÐ – MEISTARI MARTIN Háskólabíó 19:30 Í rauðu röðinni eru stórhljómsveitarverk frá 19. og 20. öld í forgrunni. Á þessu starfsári eru tvær megináherslur: Píanókonsertar Chopins og rússnesk tónlist af ýmsum toga. Auk þess eru í rauðu röðinni sinfónísk meistaraverk eftir Beethoven, Bruckner og Brahms túlkuð af hljómsveitarstjórum í fremstu röð. Aðgangseyrir 3.300 og 3.700 krónur. GRÆNJAXLAR Leikfélag Akureyrar, Rýmið 20:00 Árlega setur LeikfélagMenntaskólans á Akureyri upp metnaðarfulla sýningu og að þessu sinni urðu Grænjaxlar fyrir valinu. Grænjaxlar er íslenskur söngleikur eftir Pétur Gunnarsson frá árinu 1977, en verkið hefur verið lítillega staðfært af leikstjóranum Bryndísi Ásmundsdóttur og leikhóp. Miðaverð 2.000 krónur. STRÆTI Nemendaleikhús LHÍ, Smiðjan 20:00 LokaverkefniNemendaleikhússins í ár er leikritið Stræti eftir Jim Cartwright í þýðingu Árna Ibsen. Úskriftarárgangurinn hefur vakið mikla athygli fyrir fyrri sýningar sínar í vetur, Eftirlitsmanninn og Bráðum hata ég þig. Stræti var fyrst sýnt fyrir rúmum tveimur áratugum og hefur síðan verið sýnt við góðar undirtektir í leikhúsum víða um heim. Miðaverð 1.500 krónur. KORUS – DANSSMÍÐAKEPPNI Loftkastalinn 20:00 Félag íslenskra listdansarafagnar degi dansins í ár með nýjum og spennandi dansviðburði. Um er að ræða hópdanskeppni með frjálsri aðferð þar sem meðlimir hópsins spreyta sig með frumsömdum dansi. Þetta er nýr vettvangur fyrir upprennandi dansara en keppt er í tveimur aldursflokkum, 13-15 ára og 16 ára og eldri. Aðgangseyrir 2.000 krónur. HÆNUUNGARNIR Þjóðleikhúsið, Kassinn 20:00 Hænuungarnir er annaðleikrit Braga Ólafssonar fyrir leiksvið. Leikritið fjallar um djassáhugamanninn Sigurhans sem er leikinn af Eggerti Þorleifssyni. Sigurhans lendir í því að nokkrum kjúklingum á tilboðsverði er stolið úr frystikistunni hans og ætlar hann sér að komast til botns í málinu. Miðaverð 3.400 krónur. GAURAGANGUR Borgarleikhúsið, Stóra sviðið B 20:00 Ormur Óðinsson ogfélagar eru mættir aftur á fjalirnar í þessu ástsæla verki Ólafs Hauks Símonarsonar. Aðalhlutverkið er í höndum Guðjóns Davíðs Karlssonar en tónlistin í verkinu var sérsamin af hljómsveitinni Ný dönsk. Miðaverð 3.950 krónur. DÚFURNAR Borgarleikhúsið, Nýja sviðið B 20:00 Forstjórinn Róbert hverfureftir jólaboð fyrirtækisins. Í kjölfarið sest vænisjúka taugahrúgan Holgeir í forstjórastólinn, þótt honum sé það þvert um geð. Meinfyndið leikrit eftir David Gieselmann sem ætti að höfða til þeirra sem hafa gaman af sjónvarpsþáttum á borð við Klovn og The Office. Miðaverð 3.450 krónur. TVEIR FÁTÆKIR PÓLSKUMÆLANDI RÚMENAR Norðurpóllinn 21:00 Tveir fátækir pólskumælandiRúmenar ferðast á puttanum um pólska sveit og skilja eftir sig sviðna jörð hvert sem þeir fara. Verkið er eftir Dorota Maslowska, einn fremsta unga rithöfund Póllands í dag, en leikstjóri er Heiðar Sumarliðason. Sýningin er ekki við hæfi barna. Miðaverð 2.100 krónur. KVARTETTINN ÞEL Jazzkjallarinn á Café Cultura 21:00 Kvartettinn Þel rekurminni gamals tíma er þeir leika nýjar útsetningar af íslenskum vísum úr Vísnabókinni og önnur þjóðlög sem sungin hafa verið fyrir börn á Íslandi fyrir svefninn. Hljómsveitarstjórn er í höndum trommuleikarans Kára Árnasonar, en auk hans leika Andrés Þór Gunnlaugsson, Agnar Már Magnússon og Þorgrímur Jónsson. Aðgangseyrir 1.500 krónur. TRÚBATRIXUR Kaffi Rósenberg 21:00 Trúbatrixurnar HallaNorðfjörð, Elín Ey, Nanna og Myrra Rós spila fyrir gesti. Þær eru að hita sig upp fyrir tónleikaferð til Brighton á Englandi sem þær halda í um miðjan maí. Auk þeirra koma fram Sigga Eyþórs, Johnny Stronghands, Toggi og Helgi Valur. Aðgangseyrir 1.000 krónur. HIPPHOPP-SULTA Prikið 21:00 Diddi Fel og MC Gauti rífaþakið af húsinu með eldheitu hipphoppi. Frítt inn. WOODPIGEON- TÓNLEIKAR Sódóma Reykjavík 21:30 Kanadíska hljómsveitinWoodpigeon er af mörgum talin ein af vonarstjörnum kanadísku tónlistarbylgjunnar og hefur verið líkt við Sufjan Stevens, Grizzly Bear og Fleet Foxes. Sveitin er á leið á víðtækt tónleikaferðalag um Evrópu og er Ísland fyrsti viðkomustaður. Ásamt Woodpigeon koma fram íslensku hljómsveitirnar Pascal Pinon, Útidúr og Mukkaló. Aðgangseyrir 1.000 krónur. DÚNDURFRÉTTIR NASA 22:00 Hljómsveitin Dúndurfréttirfagnar 15 ára afmæli á þessu ári og ætlar af því tilefni að halda þónokkra tónleika víðs vegar um landið. Á NASA ætlar sveitin að taka nokkur af betri lögum gullaldarára rokksins og munu slagarar með sveitum á borð við Led Zeppelin, Deep Purple og Uriah Heep dynja á eyrum gesta. Aðgangseyrir 2.500 krónur. ÖÐRUVÍSI LIGHTS ON THE HIGHWAY Dillon 22:00 Lights on the Highwayætla að halda öðruvísi órafmagnaða tónleika á Dillon. Sveitin er á leiðinni til London í næstu viku og spilar þar á nokkrum tónleikum, bæði rafmögnuðum og órafmögnuðum. Eru þessir tónleikar liður í upphitun fyrir reisuna. Aðgangseyrir er 500 krónur. BÖDDI OG DAVÍÐ SPILA Hressingarskálinn 22:00 Böddi og Davíð leikafyrir gesti í góðri trúbadorastemningu. Frítt inn. SJONNI BRINK OG VIGNIR B5 22:00 Sjonni Brink og VignirSnær halda uppi trúbadorastemningu fyrir gesti framyfir miðnætti. TRÚBADORASTEMNING English Pub 22:00 Trúbadorarstemning meðSigga og Davíð. Boltinn í beinni fyrr um kvöldið. Frítt inn. DÚFURNAR Borgarleikhúsið, Nýja Sviðið B 19:00 Forstjórinn Róbert hverfureftir jólaboð fyrirtækisins. Í kjölfarið sest vænisjúka taugahrúgan Holgeir í forstjórastólinn, þótt honum sé það þvert um geð. Meinfyndið leikrit eftir David Gieselmann sem ætti að höfða til þeirra sem hafa gaman af sjónvarpsþáttum á borð við Klovn og The Office. Miðaverð 3.450 krónur. HELLISBÚINN Íslenska óperan 19:00 Síðasta formlega sýningHellisbúans er að baki en hér er um að ræða óformlega viðbótarsýningu og er kvöldið í kvöld allra síðasta tækifæri til að bera Hellisbúann augum. Með aðalhlutverk fer Jóhannes Haukur Jóhannesson en Rúnar Freyr Gíslason leikstýrir. Öllum seldum miðum fylgir ostborgaramáltíð á American Style. Miðaverð 2.900 krónur. ÍSLANDSKLUKKAN Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið 19:00 Stórbrotið skáldverk umsjálfsmynd lítillar þjóðar og sjálfstæði í glænýrri leikgerð. Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness er afmælissýning Þjóðleikhússins, en 60 ár eru liðin frá opnun þess þann 20. apríl árið 1950. Íslandsklukkan var einmitt ein af þremur opnunarsýningum leikhússins. Leikstjóri er Benedikt Erlingsson. Miðaverð 3.400 krónur. ÍSLANDSMÓTIÐ Í HANDBOLTA Ásvellir 20:00 Fyrsti leikurinn íúrslitaeinvígi Hauka og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik fer fram á heimavelli Hauka að Ásvöllum. Tvö frábær lið og má búast við svakalegri rimmu. GRÆNJAXLAR Leikfélag Akureyrar, Rýmið 20:00 Árlega setur LeikfélagMenntaskólans á Akureyri upp metnaðarfulla sýningu og að þessu sinni urðu Grænjaxlar fyrir valinu. Grænjaxlar eru íslenskur söngleikur eftir Pétur Gunnarsson frá árinu 1977, en verkið hefur verið lítillega staðfært af leikstjóranum Bryndísi Ásmundsdóttur og leikhóp. Miðaverð 2.000 krónur. STRÆTI Nemendaleikhús LHÍ, Smiðjan 20:00 LokaverkefniNemendaleikhússins í ár er leikritið Stræti eftir Jim Cartwright í þýðingu Árna Ibsen. Úskriftarárgangurinn hefur vakið mikla athygli fyrir fyrri sýningar sínar í vetur, Eftirlitsmanninn og Bráðum hata ég þig. Stræti var fyrst sýnt fyrir rúmum tveimur áratugum og hefur síðan verið sýnt við góðar undirtektir í leikhúsum víða um heim. Miðaverð 1.500 krónur. HÆNUUNGARNIR Þjóðleikhúsið, Kassinn 20:00 Hænuungarnir eruannað leikrit Braga Ólafssonar fyrir leiksvið. Leikritið fjallar um djassáhugamanninn Sigurhans sem leikinn af Eggerti Þorleifssyni. Sigurhans lendir í því að nokkrum kjúklingum á tilboðsverði er stolið úr frystikistunni hans og ætlar hann sér að komast til botns í málinu. Miðaverð 3.400 krónur. GAURAGANGUR Borgarleikhúsið, Stóra Sviðið B 20:00 Ormur Óðinsson ogfélagar eru mættir aftur á fjalirnar í þessu ástsæla verki Ólafs Hauks Símonarsonar. Aðalhlutverkið er í höndum Guðjóns Davíðs Karlssonar en tónlistin í verkinu var sérsamin af hljómsveitinni Ný dönsk. Miðaverð 3.950 krónur. EILÍF ÓHAMINGJA Norðurpóllinn 20:00 Eilíf óhamingja er íslensktsamtímaverk eftir Andra Snæ Magnason og Þorleif Arnarsson. Það er skylda leikhússins að kryfja og rannsaka og það er það sem Andri og Þorleifur hafa gert síðasta árið. Þeir ræddu við fleiri en þúsund Íslendinga og eftir standa fimm persónur sem lifna við á sviðinu. Miðaverð 3.450 krónur. GLERLAUFIN Norðurpóllinn 20:00 Glerlaufin er bresktnútímaleikrit eftir Philip Ridley. Verkið fjallar um tvo ólíka bræður, Steven og Barry. Steven fetar beinu brautina og á hið fullkomna heimili, en Barry er drykkfelldur og svarti sauður fjölskyldunnar. Leikstjóri er Bjartmar Þórðarson og tónlist er í höndum Védísar Hervarar. Miðaverð 2.500 krónur. SÖNGDEILD FÍH FLYTUR LIFUN Hátíðarsalur FÍH, Rauðagerði 27 20:00 Söngdeild TónlistarskólaFÍH flytur verkið Lifun eftir Trúbrot. Hópurinn samanstendur af sjö söngvurum og sjö manna rokkhljómsveit sem hefur æft undir stjórn Ásgeirs Ásgeirssonar og Kristjönu Stefánsdóttur. PRIKPARTÍ Prikið 21:00 Vínflaskan á 7.500 krónurog bland með á borðið. Franz og Jenni spila klukkan 22 og er þemað hljómsveitin Deftones. Þegar líður á kvöldið stígur Addi Intro á svið og þeytir skífum fram eftir nóttu. Frítt inn. DÚFURNAR Borgarleikhúsið, Nýja Sviðið B 22:00 Forstjórinn Róbert hverfureftir jólaboð fyrirtækisins. Í kjölfarið sest vænisjúka taugahrúgan Holgeir í forstjórastólinn, þótt honum sé það þvert um geð. Meinfyndið leikrit eftir David Gieselmann sem ætti að höfða til þeirra sem hafa gaman af sjónvarpsþáttum á borð við Klovn og The Office. Miðaverð 3.450 krónur. HELLISBÚINN Íslenska óperan 22:00 Síðasta formlega sýningHellisbúans er að baki en hér er um að ræða óformlega viðbótarsýningu og er kvöldið í kvöld allra síðasta tækifæri til að bera Hellisbúann augum. Með aðalhlutverk fer Jóhannes Haukur Jóhannesson en Rúnar Freyr Gíslason leikstýrir. Öllum seldum miðum fylgir ostborgaramáltíð á American Style. Miðaverð 2.900 krónur. BALKAN-TÓNLEIKAR Kaffi Rósenberg 22:00 Varsjárbandalagið leikurBalkantónlist. Sveitin er ekki bara fjörug heldur stórfurðuleg og ætti að koma öllum gestum í gott skap. Aðgangseyrir 1.000 krónur. SKÓSÓLARNIR OG DJ FANNAR Hressingarskálinn 22:00 Hljómsveitin Skósólarnirleikur fyrir gesti til klukkan 1. Þá tekur við plötusnúðurinn DJ Fannar og tryllir lýðinn fram á rauða nótt. Frítt inn. TRÚBADORASTEMNING English Pub 23:30 Trúbadorarstemning meðRagga og Þór Óskari. Boltinn í beinni fyrr um daginn. Frítt inn. APRÍLLOKAPÖNK Sódóma Reykjavík 0:00 Pönksveitirnar Fræbbblarnir ogQ4U leika fyrir dansi á Sódómu. Q4U hefur ekki komið opinberlega fram síðan árið 1997 og aðdáendur sveitarinnar munu væntanlega ekki láta þetta tækifæri framhjá sér fara. Aðgangseyrir 1.000 krónur. föstudagur „Þetta er svona útilegustemning,“ segir Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó úr hljómsveitinni Veðurguðirnir. Hann hefur spilað sem trúbador á skemmtistaðnum Oliver næstum hvert einasta fimmtudagskvöld í bráðum ár og er þekktur fyrir að ná upp frábærri stemningu. „Ég tek aðallega íslensk partílög. Þjóðhátíðarlögin, Sálina, Skímó og þess háttar. Gestalistinn er líka alltaf á sínum stað. Svo er fólk bara duglegt að koma með óskalög,“ segir Ingó og bætir við: „Ég er ekkert að reyna að finna upp hjólið í hvert skipti. Fólk veit hvað það fær að heyra,“ segir Ingó. Hann er ekki bara á fullu í tónlistinni heldur spilar hann knattspyrnu með Pepsi-deildarliði Selfoss. Boltinn gerir það að verkum að Veðurguðirnir munu spila ögn minna en áður á meðan tímabilið stendur yfir. „Þau eru svolítið erfið þessi næturgigg út af boltanum, en Veðurguðirnir rúlla áfram. Við verðum á Þjóðhátíð í Eyjum og fleiri hátíðum í sumar. Svo er ætlunin að gefa út fleiri lög í sumar.“ Íslensku partílögin INGÓ Á OLIVER Oliver 22:00 30 apríl slá í gegn

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.