Monitor - 01.07.2010, Blaðsíða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010
Hver er svalasti Vespueigandi sem
þú manst eftir í svipinn?
Brendan Sullivan, rithöfundur,
plötusnúður og góðvinur minn
sem býr í New York, ekur um
á eldgamalli, ljósblárri Piaggio
vespu fram og aftur Williamsburg-
brúna með gógópíur aftan á og
vinylplöturnar sínar í hliðartösku.
Hvaða útbúnaður er nauðsynlegur
fyrir alla Vespueigendur?
Hjálmur, góðir hanskar og
hlífðarjakki. Pils og kjólar fyrir
dömurnar líka. Svo eru allir að segja
mér að fá mér rúðu á mína.
Er veröldin fallegri séð
af Vespu en úr bíl?
Já, erfitt að útskýra það. Maður
heyrir í heiminum og finnur lykt.
Leiðinlegt samt þegar fólk svínar
fyrir mann og keyrir í rassinum
á manni. Ég legg mig fram um að
velja leiðir þar sem hámarkshraði er
50-60, en það er nú samt tekið fram
úr hálfvegis, fjórum til sex sinnum
í hverri ferð. Vinsamlega farið alveg
yfir á hina akreinina ef ætlunin er
að taka fram úr. Svo hittir maður
alltaf fólkið sem tók fram úr á
næstu ljósum.
Nú þegar sól er hæst á lofti ber oftar og oftar fyrir
augu farkost einn sem á auknum vinsældum að fagna
á götum borgarinnar. Þar eru á ferðinni létt og lipur
vélhjól sem kallast einu nafni „Vespur“. Monitor kynnti
sér málið og komst að því að málið er þó ekki svo einfalt
með nafnið og hjólið; í ljós hefur komið að vespa er eigi
Vespa nema Vespa sé.
Það kemur nefnilega upp úr dúrnum að það er aðeins
til ein Vespa. Hún er framleidd af ítalska fyrirtækinu
Piaggio og hefur svo verið frá árinu 1946. Létt vélhjól (e.
scooter) frá öðrum framleiðendum hafa reyndar verið
til lengur en svo, en Vespan var hið fyrsta sem sló í
gegn, og það rækilega. Nafnið mun þannig til komið að
þegar forstjóri fyrirtækisins, Enrico Piaggio, heyrði malið
í mótor fyrstu frumgerðarinnar, varð honum að orði:
„Sembra una vespa!“ sem útleggst sem „hljómar eins
og vespa!“ á íslensku. Nafnið hefur loðað við tækið allar
götur síðan.
Álitlegur fararkostur fyrir vinnandi fólk
Vespan þótti fljótlega hinn álitlegasti farkostur fyrir
vinnandi fólk í stórborgum. Ekki einasta var hún
talsvert liprari í snúningum en bílarnir, heldur áttaði
fólk sig fljótlega á því að þar sem vélbúnaðurinn var
allur hulinn þurfti ekki að hafa áhyggjur af því að olía,
smurning og annar óþrifnaður slettist í föt þess sem
hjólið sat. Á rúmum sex áratugum hefur mikið vatn
runnið til sjávar og fleiri gerðir Vespunnar hafa litið
dagsins ljós, með ýmsum aukabúnaði og öflugri vélum.
Retrósjarminn heillar nú sem fyrr
Hönnuðir Vespunnar hafa alla tíð gætt þess að svipta
farskjótann ekki frumsjarma sínum og retró-svipurinn
heillar nú sem fyrr. Stjórnendur Piaggio hafa þess í stað
lagt áherslu á að minna almenning á að það sé aðeins
til ein „Vespa“ og varast beri eftirlíkingar. Meðal frægra
einstaklinga sem hafa átt Vespu má nefna Salvador Dalí,
Jean-Paul Belmondo, Bond-leikkonuna Ursulu Andress,
leikarann, kappakstursmanninn og ofurtöffarann Steve
McQueen og loks tískuhönnuðinn Stefano Gabbana.
Bíladellumenn á borð við Jay Kay í Jamiroquai og Jay
Leno eiga vitaskuld margar, þar á meðal sjaldgæfa
safngripi. Tiger Woods hefur tvær til taks á stórskútu
sinni til að skottast milli skuts og stafns.
Hin eina
sanna Vespa
Monitor ákvað að taka hús á nokkrum íslenskum
Vespueigendum og kanna nánar hvað það er sem
gerir Vespuna svona ómótstæðilega.
Hvers vegna Vespa frekar en bíll?
Ég á reyndar bæði Vespu og bíl en ég vel alltaf Vespuna fram yfir bílinn
nema aðstæður spili gegn því. Ég tók mig til og fékk mér mótorhjólapróf
vorið 2008 og stefndi upphaflega á að fá mér „racer“. Svo áttaði ég mig
reyndar á því að það væri mjög heilsuspillandi fyrir mig að eiga svo öflugt
hjól þar sem ég er frekar mikill spennufíkill og myndi oftar en ekki falla fyrir
því að láta reyna á hraðann. Í framhaldi af því byrjaði ég að kynna mér aðra
möguleika og sá að það var hægt að kaupa 250cc Vespu sem er fullkomið afl
fyrir löglegan akstur og vel það. Ég skellti mér því á fallega Vespu í staðinn
fyrir týpískt götuhjól og sé alls ekki eftir því. Hún hét upphaflega Rós en
svo umturnaðist hún eina nóttina í Rauða Drekann. Drekinn er fallegur,
sparneytinn og öflugur - draumur í dós.
Í hverju felst sjarminn við að aka um á Vespu?
Eins og með fornbílana þá er hönnunin svo falleg og litagleðin svo
heillandi að maður eiginlega vildi óska að sjötti og sjöundi áratugurinn hefði
aldrei liðið hjá. Það er eins og maður stígi svolítið inn í sinn eigin Rockabilly-
heim. Þú setur á þig hjálminn og sest á græjuna og skyndilega snýst lífið um
Elvis Presley, mjólkurhristing, bíó og bleik ský. Svo stígur maður reyndar af
hjólinu aftur og maður nær geðheilsunni á ný.
Ásta Bærings, dansari og danskennari
Falleg hönnun
og heillandi
litagleði
Andri Ólafsson, fréttamaður á Stöð 2
Eins og súpermódel
á móti Playboy-gellu
Margrét Erla Maack, útvarpskona:
Pils og kjólar nauðsynleg
fyrir dömurnar
Hvernig myndirðu lýsa hinum dæmigerða Vespueiganda?
Ég veit ekki hvort það séu einhverjar sértstakar týpur sem eiga
Vespur. En ég hef stundum sagt að munurinn á Harley Davidson-
mótorhjóli og Vespu sé svolítið eins og munurinn á Playboy-
fyrirsætu og súpermódeli. Það er aðeins meiri stíll yfir þeirri
síðarnefndu.
Hvað er það lengsta sem þú hefur farið á Vespunni?
Ég hef nokkrum sinnum farið á henni inn í Hafnarfjörð. En
aðallega nota ég Vespuna til og frá vinnu og í miðbæjarsnatt.
Er Vespan heilsárs-farartæki á Íslandi?
Jájá. Ef maður er í þannig stuði. Sjálfur nenni ég ekki að nota
hana yfir hörðustu vetrarmánuðina. En það er vel hægt.
MARGRÉT OG VESPAN
HENNAR Á AUSTURVELLI
ÁSTA BÆRINGS LÆTUR FARA
VEL UM SIG Á VESPUNNI
ANDRI ÓLAFSSON KANN
AÐ META GÓÐAN STÍL