Monitor - 01.07.2010, Blaðsíða 10
10 Monitor FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010
ég er ekki eitthvað sem menn
mega prófa. Ég er með manni sem má
prófa mig. Ég hef verið notuð af strákum og það er
oft búið að fara illa með mig. Þetta er öðruvísi hjá mér
og Baldvin. Við urðum fyrst mjög góðir vinir og urðum
svo ástfangin.
Hvernig var að vera með strákum áður en þú fórst í
aðgerðina, þegar þú varst stelpa en með strákatól?
Það hljóta að hafa átt sér stað vandræðalegar
uppákomur.
Ég get alveg viðurkennt að þegar ég var krakki og
á unglingsárunum þá fékk ég standpínu. Það voru
móment sem ég var þvílíkt hrædd við. Ég var kannski
í geðveikt flottum kjól á balli og sá einhvern geðveikt
fallegan gaur og þá gerðist það og ég bara: „Nei!“
Heyrðu, veistu hvað mín gerði? Ég fór inn á klósett og
tók símann minn og byrjaði að lemja á þetta á fullu.
Ég var skíthrædd inni á klósetti og var bara: „Stelpur
hjálpiði mér, hvað á ég að gera?“ Svo vorum við allar
að slá í þetta.
Hvernig eru kynfærin á þér núna samanborin við
„náttúrulega“ píku?
Ég blotna, en ekki mikið. Það er ekki slímhúð í
leggöngunum því það eru ekki eggjastokkar. Munurinn
á handgerðum leggöngum og leggöngum sem stelpur
fæðast með er að í handgerðu leggöngunum er hægt
að fara alla leið upp. Þess vegna þarf ég að vera dugleg
að æfa mig.
Getur þú fengið fullnægingu eftir aðgerðina?
Ég er ekki alveg komin með hana. Snípurinn er
svo bólginn að ég er varla byrjuð að þora að snerta.
En ég mun geta það, snípurinn verður alveg eins og
venjulegur. Svo fer ég kannski í aðra aðgerð til að laga
snípinn og gera fallegri barma. Ef mér finnst pjallan
mín vera ljót get ég látið endurgera eða laga hana.
Hvenær máttu byrja að stunda kynlíf?
Bara þegar ég sjálf er tilbúin. Læknirinn sagði að
sumar væru byrjaðar að sofa hjá eftir fjórar vikur.
Verður það ekki skemmtilegra núna þegar þú ert
búin í aðgerðinni?
Bara nýtt líf. Ég þarf náttúrulega að prófa mig áfram,
ég kann ekkert á þetta. Vinkonur mínar voru að segja:
„Nú komum við í heimsókn og mætum allar með
leikföng og kennum þér.“ Ég á svo góðar vinkonur. En
ég var bara: „Nei, ég vil læra þetta sjálf!“
Hvernig kynntust þið Baldvin?
Það var á Gay Pride-ballinu á NASA fyrir tveimur
árum. Ég ætlaði ekki einu sinni að fara þarna inn og
ekki hann heldur. Ég sá hann þegar ég var uppi á sviði
að dansa með Páli Óskari. Við vorum búin að gefa
hvort öðru auga um kvöldið og svo labbaði ég bara
upp að honum og sagði: „Hey þú, kysstu mig.“ Mig
langaði bara eitthvað í hann. Þvílíkt sjálfstraust. Þetta
er kvöld sem ég mun aldrei gleyma.
Eruð þið í sjöunda himni saman?
Það er svona upp og niður. Hormónameðferðin
tók náttúrulega á. Ég elska Baldvin ótrúlega mikið,
en það er ekki fyrr en eftir svona tvö eða þrjú ár
sem sambandið byrjar fyrir alvöru. Allt hitt er bara
kynning.
Það var fjallað um það í fjölmiðlum að það hefði
verið kveikt í bílnum ykkar í mars. Það hlýtur að
hafa tekið svolítið á líka.
Já, þarna var ég akkúrat að hætta á hormónunum
og byrja að slappa af. Við vorum vakin klukkan fjögur
um nóttina og lögreglan stóð fyrir utan og spurði
hvort við ættum Chrysler-bíl. Þá hafði einhver brotið
gluggann og sett gaskút inn í bílinn og kveikt í honum.
Sem betur fer náðu þeir að slökkva eldinn áður en
gaskúturinn sprakk. Ég veit ekki hvort þetta var
hatursglæpur eða bara einhver fáviti sem sá flottan
bíl og ákvað að brenna hann. Hver sem gerði þetta,
ég vona að hann skammist sín ógeðslega mikið.
Hann skuldar mér að minnsta kosti fyrir viku hjá
sálfræðingi. Ég var í viku hjá sálfræðingi, ég var svo
hrædd. Ég hugsaði hvort maður þyrfti að fá sér lífvörð
eða flytja úr landi.
Þið Baldvin hafið bæði talað um það í fjölmiðlum að
fjölskyldan hans hafi ekki tekið sambandinu ykkar
vel í byrjun. Hvernig er staðan á þessu í dag?
Mamma hans og pabbi halda að ég sé alltaf að
hringja í fjölmiðla og láta þá vita af því hvað ég er
að gera. Ég móðgaðist og er svolítið reið núna. Þegar
Baldvin var svona mikið í fjölmiðlum á meðan ég
var uppi á sjúkrahúsi, héldu þau að ég væri að biðja
fjölmiðla um athygli. Það eina sem ég gerði var að
skrifa Facebook-status.
Þannig að sambandið er ennþá stirt?
Já, það er svolítið erfitt. Mér líður eins og ég sé ekki
ennþá velkomin. Ég held að þetta fólk sé bara þannig
að þau vilja ekki vera þekkt fyrir að eiga tengdadóttur
eins og mig. En þau bjóða mér alveg í matarboð og
svona, en mér finnst það bara vera eitthvað gervi.
Fjölskyldan hans er bara svolítið gamaldags og ég skil
þau kannski alveg. En spurningin er, nú er ég orðin
kona, hvað ætla þau að gera? Ætla þau að halda áfram
að ýta mér í burtu?
Ætlarðu að giftast Baldvin?
Vó! Við erum búin að tala um það. En ég er ekki
tilbúin að verða mamma. Það er eitthvað sem hann
vill samt.
Vill hann fara að eignast börn? Já. Ég skil að þetta sé
svolítið erfitt fyrir hann. Allir vinir hans eru að verða
pabbar og hann er að verða þrítugur.
Hvað gerir Baldvin?
Hann er blikksmiður og er nýbúinn að klára
meistarann. Hann má þakka hormónunum mínum
fyrir það, því ég var alltaf að skipa honum að vinna
og læra. Hann var einn af þessum strákum sem
var geðveikt latur en núna er hann orðinn geðveikt
duglegur. Svo ég hef gert margt fyrir karlinn minn.
Hvernig tekur hann allri athyglinni sem hann hefur
fengið fyrir að vera með þér?
Hann var ótrúlega lokaður og bældur strákur.
Athyglin sem hann hefur fengið fyrir að vera með mér
og fyrir að vera opinn með þetta allt hefur gert honum
mjög gott. Þetta er allt annar maður en ég kynntist,
þetta er alveg búið að bjarga egóinu hans.
Hvernig finnst þér sjálfri að vera orðin landsþekkt
manneskja? Mér finnst ég bara vera venjuleg.
Landsþekkt eða ekki, mér finnst ég bara vera elskuð.
Ég á fullt af vinum og það er fínt. Ég fer á hausinn við
að gefa fólki afmælisgjafir.
Þú virðist hafa góðan húmor fyrir sjálfri þér og
komst fram í eftirminnilegum skets hjá Steinda Jr.
Já, það var geðveikt. Ég var algjörlega að gera grín
að sjálfri mér. Hann talaði fyrst um að hann ætlaði að
passa að hafa þetta ekki of gróft, en ég sagði honum
að fyrst við værum á annað borð að gera þetta þá
ættum við bara að fara alla leið með þetta. Kossinn
fyrir framan alla þessa krakka tók margar tilraunir.
Svo sagði ég bara: „Ég ætla að ímynda mér að ég sé að
kyssa Baldvin og þú ímyndar þér að þú sért að kyssa
kerlinguna þína.“ Svo þurftu þeir náttúrulega að setja
þetta í „slow motion“. Þetta var mjög skemmtilegt. Ég
held að við ætlum að gera annan skets saman.
Hvað langar þig að gera í framtíðinni?
Ég veit það ekki. Egóið mitt er alveg að drepa mig
núna, mig langar bara að fá júllurnar mínar og fara að
pósa fyrir Playboy. Mig langar að vinna í fjölmiðlum,
ég væri til í það. Kannski ætti ég bara að skrifa bók
um lífið mitt. Ég veit ekki hvort Tyra Banks er ennþá
með sjónvarpsþáttinn sinn, en ég var að senda henni
e-mail um daginn. Ég er ekki ennþá búin að fá svar.
Það væri fínt að mæta í Tyra Banks Show og segja sögu
sína.
Ég get alveg viður-
kennt að þegar ég var
krakki og á unglingsárunum
þá fékk ég standpínu.