Monitor - 01.07.2010, Blaðsíða 15
fílófaxið
15FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 Monitor
DREKKTU BETUR
Gallerý Bar 46, Hverfisgötu 46
17:00 Þetta langlífasta Pub Quizlandsins hefur verið haldið á
hverjum föstudegi í á áttunda ár.
FUNK Í REYKJAVÍK,
2. KVÖLD
Nasa
20:00 Það eru Dj Honky and LynneK. sem hefja leikinn klukkan
20 á öðru kvöldi tónlistarhátíðarinnar Funk
í Reykjavík. Klukkan 21 er það svo Tómas
R. Einarsson sem stígur á svið og í kjölfar
hans, klukkan 22, er það Ojba-rasta. Funk-
meistararnir í Jagúar taka svo við klukkan
23:15 og klukkan eitt koma svo Hjálmar, sem
loka kvöldinu að þessu sinni.
BESTA ÚTIHÁTÍÐIN
Galtalækur
20:00 Tónlistarhátíðin Bestaútihátíðin hefst í Galtalæk
á föstudag og munu mörg af stærstu
nöfnunum í íslenskri tónlist koma fram. Dj
Danni Deluxx byrjar kvöldið klukkan 20 þar
til xxx Rottweiler stíga á stokk. Í kjölfarið
fylgja Haffi Haff, Dalton, Dikta, Í svörtum
fötum og Skímó lokar svo kvöldinu. Miðaverð
í forsölu, sem lýkur á miðnætti 1. júlí, er
5.500 krónur og fer fram á N1 Ártúnshöfða,
Hringbraut, Lækjargötu og Selfossi. 2. júlí
hækkar verðið í 6.500 krónur og við hliðið
kostar miðinn 7.500 krónur.
HERA
Oddakirkja, Rangárvöllum
21:00 Söngkonan HeraHjartardóttir heldur tónleika
undir yfirskriftinni Frá Aotearoa til Íslands, í
hinni fallegu Oddakirkju
á Rangárvöllum.
Miðaverð er 1.500 krónur
og húsið opnar klukkan 20:30. Miðasala fer
fram við inngang.
ROCKY HORROR –
KABARETT
Barbara
21:00 Viggó og Víóletta standafyrir kabarettsýningu þar
sem tekin verða fyrir atriði úr Rocky Horror
Picture Show. Kabarettinn hefst klukkan 23
en á undan honum, eða klukkan 21, verður
kvikmyndin sjálf sýnd í fullri lengd. Miðaverð
er 1.000 krónur.
LJÓTU HÁLFVITARNIR
Græni hatturinn, Akureyri
22:00 Viðbótartónleikar Ljótuhálvitanna vegna mikillar
eftirspurnar. Bæði gömul og ný lög leikin.
SUMARFÖGNUÐUR
HJALTALÍN
Krúsin, Ísafirði
23:00 Nú fagnar Hjaltalín sumrinumeð Ísfirðingum. Lára
Rúnarsdóttir hitar
upp. Miðaverð er
2.000 krónur.
föstudagur
fimmtudagur
1
júlí
ALÞJÓÐLEGT
ORGELSUMAR
Hallgrímskirkja
12:00 Friðrik Vignir Stefánssonorganisti Seltjarnarneskirkju
og Eygló Rúnarsdóttir mezzosópran flytja
orgelverk og kirkjuleg sönglög frá ýmsum
tímum. Miðaverð er 1.000 krónur.
FUNK Í REYKJAVÍK,
1. KVÖLD
Nasa
20:00 Tónlistarhátíðin Funk íReykjavík er haldin í fyrsta
sinn þessa helgi og þar kennir ýmissa
grasa. Á þessu fyrsta kvöldi hátíðarinnar
byrjar gamanið með dj-lucky klukkan 20 en
klukkan 21 tekur Samúel Jóns Samúelsson
Big Band við. Jimi Tenor stígur svo á svið
klukkan 22:30 og lokar kvöldinu.
ELÍZA NEWMAN
Café Rosenberg
20:00 Elíza Newman, sembúsett er í London, heldur
tónleika á Rosenberg en auk hennar mun
tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Gísli
Kristjánsson spila efni af væntanlegri plötu
sinni. Þá mun hljómsveitin Of Monsters
and Men einnig stíga á stokk. Miðaverð er
einungis 500 krónur og tónleikarnir standa
til 23:30.
TÓNLEIKAR Á BABALÚ
Babalú, Skólavörðustíg
20:00 Tónlistarmennirnir JóhannKristinsson og Jón Þór
Ólafsson (Lada Sport, Isidor, Dynamo Fog)
spila á hinu vinalega kaffihúsi Babalú.
Jóhann mun leika lög af nýrri plötu sinni,
Tropical Sunday, í bland við nokkur eldri
og Jón Þór mun flytja nýtt, íslenskt efni
sem líklega verður að finna á væntanlegri
sólóplötu hans.
SUMARFÖGNUÐUR
HJALTALÍN
Hótel Flatey, Flatey
20:00 Hljómsveitin Hjaltalínfagnar komu sumars með
tónleikum víðsvegar um land. Að þessu sinni
eru þau í Flatey og spila á Hótel Flatey og
Snorri Helgason hitar upp.
CELLOPHANE
Iðnó
20:00 Einleikurinn vinsæli eftirBjörk Jakobsdóttur hefur nú
verið þýddur yfir á ensku og er það leikkonan
Þórunn Lárusdóttir sem fer með hlutverk
hinnar langt leiddu húsmóður sem lendir
í ógöngum þegar hún reynir að standast
kröfur nútímasamfélags til kvenna.
ÓKEYPIS SALSA-
KENNSLA
Thorvaldsen
20:30 Það verður salsa-stemningá Thorvaldsen allt kvöldið
en til að koma fólki í gírinn er boðið upp á
ókeypis kennslu í salsa frá klukkan hálf níu
til hálf tíu.
HERA
Draugasetrið, Stokkseyri
21:00 Söngkonan HeraHjartardóttir er í stuttu
stoppi á Íslandi þar sem hún heldur
nokkra tónleika undir
yfirskriftinni Frá
Aotearoa til Íslands. Á
fimmtudagskvöld verður
hún í Draugasetrinu á
Stokkseyri. Miðaverð er
1.500 krónur og húsið
opnar klukkan 20:30.
LJÓTU HÁLFVITARNIR
Græni hatturinn, Akureyri
21:00 Ljótu hálfvitarnir haldauppi stemningu í höfuðstað
Norðurlands.
INGÓ VEÐURGUÐ
Café Oliver
22:00 Veðurguðinn Ingó helduruppi stuðinu á Café Oliver.
DÚNDURFRÉTTIR
Höllin, Vestmannaeyjum
22:00 Hljómsveitin Dúndurfréttirheldur tónleika þar sem
efnisskráin verður að mestu helguð Led
Zeppelin í tilefni þess að nú um mundir eru
liðin 40 ár frá því sú fornfræga hljómsveit
steig á svið í Laugardalshöll. Miðaverð er
2.500 krónur.
PÖBBASTEMNING Á
HUMARHÁTÍÐ
Víkin, Höfn í Hornafirði
23:00 Hitað verður upp fyrirHumarhátíðina sem fer
fram á Höfn í Hornafirði þessa helgina. Það
eru stuðboltarnir Frikkli Jóns og Sjáni Hauks
sem halda uppi stemningunni. Aðgangur er
ókeypis.
2
júlí
laugardagur
3
júlí sunnudagur
4
júlí
ALÞJÓÐLEGT
ORGELSUMAR
Hallgrímskirkja
12:00 Danski orgelleikarinnChristian Præstholm leikur
verk eftir Alain, J.S. Bach, Messiaen og hinn
danska J.P.E. Hartmann.
JAZZ UNDIR FJÖLLUM
Byggðasafnið í Skógum
13:00 Hátíðin Jazz undir fjöllumer nú haldin í Skógum undir
Eyjafjöllum í sjöunda sinn. Dagskráin byrjar
klukkan 13 þegar Tríó Sigurðar Flosasonar
kemur fram. Klukkan 14 er komið að Kvartett
Andrésar Þórs og klukkan 15 er það Dúó
Sigurðar og Kjartans sem stígur á stokk.
Síðastur á svið er svo Kvartett Kjartans
Valdemarssonar sem spilar klukkan 16.
Aðgangur er 1.500 en aðrir tónleikar verða
svo í félagsheimilinu Fossbúð klukkan 21.
GUITAR ISLANDICO
Jómfrúin, Lækjargötu
15:00 Sumardjassinn helduráfram á Jómfrúnni og að
þessu sinni er það hljómsveitin Guitar
Islandico sem leikur fyrir gesti. Hana skipa
Björn Thorodssen, Hjörtur Steinsson og Jón
Rafnsson. Aðgangur er ókeypis.
FUNK Í REYKJAVÍK,
3. KVÖLD
Nasa
20:00 Það kennir ýmissa grasa áFunk í Reykjavík á þessu
þriðja og síðasta kvöldi hátíðarinnar. Fyrstur
er það Dj Magic sem spilar frá 20 til 21 en
þá tekur Boba við. Söngkonan Kristín stígur
á stokk klukkan 22 og því næst Africa Lole
klukkan 23. Á miðnætti er það hljómsveitin
Moses Hightower sem tekur við keflinu og að
lokum, klukkan eitt, verður Fela Kuti tribute.
BESTA ÚTIHÁTÍÐIN
Galtalækur
20:00 Á seinna kvöldi Bestuútihátíðarinnar er það Dj
Stinsson sem hefur leikinn en í kjölfarið
fylgja Didd fel ásamt Dj Intro, xxx Rottweiler,
Sykur, Kristmundur Axel, Í svörtum fötum,
Steindi Jr., Love guru Allstars og síðast en
ekki síst, Scooter sjálfur. Miðaverð í forsölu,
sem lýkur á miðnætti 1. júlí, er 5.500 krónur
og fer fram á N1 Ártúnshöfða, Hringbraut,
Lækjargötu og Selfossi. 2. júlí hækkar verðið
í 6.500 krónur og við hliðið kostar miðinn
7.500 krónur.
HERA
Café Rosenberg
21:00 Hera Hjartardóttir leikurfyrir Reykvíkinga á Café
Rosenberg. Miðaverð er 1.500 krónur og fer
miðasala fram á staðnum.
JAZZ UNDIR FJÖLLUM
– KVÖLDTÓNLEIKAR
Félagsheimilið Fossbúð
21:00 Tónleikar á vegum Jazzundir fjöllum þar sem
Egill Ólafsson, Ragnheiður Gröndal og Tríó
Sigurðar Flosasonar kemur fram. Miðaverð
er 1.500 krónur.
LJÓTU HÁLFVITARNIR
Græni hatturinn, Akureyri
22:00 Viðbótartónleikar Ljótuhálvitanna vegna mikillar
eftirspurnar. Leikin verða lög af nýrri plötu
þeirra í bland við gamla slagara.
BUFF
Félagsheimilið í Bolungarvík
23:00 Markaðsdagar standa yfirþessa helgina í Bolungarvík
og er búist við mikilli gleði. Hljómsveitin Buff
heldur tónleika af því tilefni og hefjast þeir
klukkan 23. Miðaverð er 2.500 krónur.
BALL Á HUMARHÁTÍÐ
Víkin, Höfn í Hornafirði
23:30 Humarhátíð á Höfn íHornafirði fer fram þessa
helgina. Á laugardagskvöld verður ball með
áhöfninni á Halastjörnunni, þeim Hemma
Gunn, Ara og Finnboga.
HJALTALÍN Á
DÝRAFJARÐARDÖGUM
Félagsheimilið á Þingeyri
00:00 Hljómsveitin Hjaltalínferðast um landið til að
fagna sumrinu með Íslendingum. Nú kemur
sveitin fram á Dýrafjarðardögum.
STOFUTÓNLEIKAR
Gljúfrasteinn
16:00 Stofutónleikar verða íGljúfrasteini alla sunnudaga
í sumar og að þessu sinni eru þeir í höndum
Kristins H. Árnasonar, gítarleikara. Allir
eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og
aðgangseyrir er 1.000 krónur.
ALÞJÓÐLEGT
ORGELSUMAR
Hallgrímskirkja
17:00 Tónleikar í tónleikaröðinniAlþjóðlegt orgelsumar 2010
þar sem danski orgelleikarinn Christian
Præstholm flytur sálmforleiki eftir sjálfan
sig ásamt verkum eftir Dupré og J.S. Bach.
Miðaverð er 1.500 krónur og tónleikarnir
standa í um eina klukkustund.
CELLOPHANE
Iðnó
20:00 Einleikurinn vinsæli eftirBjörk Jakobsdóttur hefur nú
verið þýddur yfir á ensku og er það leikkonan
Þórunn Lárusdóttir sem fer með hlutverk
hinnar langt leiddu húsmóður sem lendir
í ógöngum þegar hún reynir að standast
kröfur nútímasamfélags til kvenna. Miðaverð
er 3.400 krónur en stúdentar fá miðann á
2.500 krónur.
SUMARFAGNAÐUR
HJALTALÍN
Sjóræningjahúsið, Patreksfirði
20:00 Hjaltalín fagna sumrinumeð Patreksfirðingum og
opnar húsið klukkan 20:00. Miðaverð er 1.500
krónur.
ICELAND INSPIRES
Hljómskálagarðurinn
20:00
Færðir í Hljóm-
skálagarðinn
„Ég hef engar áhyggjur af veðrinu. Ég held það
sé bara betra að hafa íslenskt rok og eitthvað
gúmmelaði,“ sagði Katrína Mogensen, söngkona
hljómsveitarinnar Mammút, þegar Monitor náði
tali af henni. Sveitin er ein fjölmargra sem koma
fram á Iceland Inspires-tónleikunum sem áttu
að fara fram að Hamragörðum við Seljalandsfoss
á fimmtudagskvöld. Andartaki eftir að Katrína
hafði sleppt orðinu voru þeir færðir til, einmitt
vegna spádóma um lægð við suðurströndina.
Þess í stað verða þeir í Hljómskálagarðinum.
Hvað sem veðrinu líður hlakkar Katrínu mikið
til að spila á þessum sérstöku tónleikum og er
ánægð með að látið sé á það reyna að leiðrétta
þann misskilning margra að hér sé allt í volli
vegna eldgoss og ösku. Hún segist þó ekki hafa
orðið vör við þann misskilning á eigin skinni. „En
við förum til Noregs á föstudaginn og spilum þar
um helgina. Þá kannski heyrum við hvort fólk
er skíthrætt við að koma hingað,“ segir hún en
Mammút mun eflaust bera Íslandi vel söguna
í ferðinni, sem og í þriggja vikna túr sínum um
Þýskaland, Austurríki, Sviss og Slóvakíu, sem
hefst í lok júlí.
Auk Mammút koma fram á tónleikunum
þekktir listamenn á borð við Damien Rice,
Amiinu, Dikta, LayLow og Seabear. Aðgangur
er ókeypis, en á InspiredbyIceland.com verður
hægt að fylgjast með beinni útsendingu frá
tónleikunum.
Mynd/Eggert
ALEXANDRA, KATRÍNA OG ÁSA
SKIPA KVENARM MAMMÚT