Monitor - 01.07.2010, Síða 12

Monitor - 01.07.2010, Síða 12
12 Monitor FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 Myndir/Árni Sæberg Skvísulegt lúkk sem virkar allan ársins hring Anna Guðrún kíkti með Moni- tor í Sautján og Body Shop, klæddi sig upp og farðaði. Reykjavík Spraykiavík! Áður en hreinsunardeild Reykjavíkurborgar hefur tekst að mála yfir umdeild listaverk á húsveggjum hefur ljósmyndarinn Sally Megyessi oft náð að fanga snilldina, sem sumir kalla veggja- krot, á filmu. Nú ætlar hún að deila með áhugsaömum nokkrum af sínum uppáhalds myndum sem hún segir að sýni því miður flestar verk sem ekki séu til ennþá. Sally minnir þó á að enn séu margir veggir eftir í borginni sem hafa ekki verið skreyttir en býst við að það muni ekki vara of lengi. Sýningin, sem ber nafnið Spraykiavík, opnar á Babalú á Skólavörðustíg á sunnudaginn klukkan 11 og stendur út mánuðinn. JAKKI Sportlegur jakki sem hægt er að nota allan ársins hring. Sígilt snið sem gengur aldrei úr tísku. 11.990 kr. Sautján Má ekki lita á sér hárið Dóttir poppdrollunnar Madonnu, Lourdes Leon, er aðeins 13 ára gömul en er strax farin að gera sig líklega til stórræða. Hún hefur tekið við að blogga á síðunni MaterialGirlCollection.com en samkvæmt fyrstu færslu hennar þá virðist Madonna, þrátt fyrir vafasöm bernskubrek, vera ósköp venjuleg móðir. „Ég er 13 og verð 14 í október og ég get ekki beðið vegna þess að þá má ég LOKSINS lita á mér hárið. TAKK MAMMA!“ segir Lourdes á blogginu en áður hefur einnig verið haft eftir Madonnu að henni finnist dóttir sín hafa fulldjarfan fatasmekk. Nú verður fróðlegt að sjá hvort Lola, eins og Lourdes er gjarnarn kölluð, mun þurfa að rasa eins mikið út og móðir sín forðum áður en hún fullorðnast. ANNA GUÐRÚN EINARSDÓTTIR 28.02.92 Nemi í Verzló Hvað fílar þú helst við lúkkið? Skórnir eru mjög flottir. Hvað fílar þú helst í tísku um þessar mundir? Mér finnst röndótt og blúndur koma sterkt inn. Hvaða litum gengur þú helst í? Ég geng mest í svörtu en einnig finnst mér ferskjulitaður mjög flottur. Uppáhaldsflík? Hvítur blómakjóll úr Topshop. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Ég keypti mér fyllta hæla, ekki ósvipaða þessum úr GS skóm. Er eitthvað sem þú myndir aldrei klæðast? Sennilega ekki hvítum gallabuxum. Uppáhaldsfylgihlutur? Það eru gylltir eyrnalokkar sem systir mín gaf mér. Hvað ertu að hlusta á? Undanfarið hef ég hlustað mikið á Florence and The Machine. Uppáhaldsbíómynd? Anger Management var góð. Ertu að fylgjast með einhverjum sjónvarpsþáttum? Þættirnir Chuck eru mjög skemmtilegir og Desperate Housewives. Hvað ertu að gera í sumar? Ég er að vinna í bæjarvinnunni og ferðast til Vestmannaeyja og Tenerife. BUXUR Ljósar gallabuxur eru sjóðheitar í sumar og eru þessar sérstaklega flottar með lituðum skálmum. 21.990 kr. Sautján SKÓR Fylltu hælarnir rjúka út úr tísku- búðum landsins. Þessir eru alveg tilvaldir í íslenska veðurfarið þar sem sólin skín ekki út allt sumarið. 39.990 kr. GS-skór BELTI Gaddabeltin hafa verið í tísku í nokkurn tíma og haldast inni fram á haustið. Ekki seinna vænna að tryggja sér eitt stykki. 3.990 kr. Sautján BOLUR Klassískur síður bolur sem virkar alltaf. 5.990 kr. Sautján TASKA Poppuð stór taska á frábæru verði. 12.990 kr. Sautján ARMBAND Lífgar alltaf upp á svartan klæðnað að nota keðjuarmbönd. Þetta armband gengur vel eitt og sér en einnig er flott að setja nokkur saman. 1.990 kr. Sautján SUPER VOLUME MASKARI Svartur maskari sem þykkir áferð augnháranna. 1.790 kr. Body Shop BRONZE SHADE Ljóst sólarpúður sem gefur húðinni mjög fallegan, léttan gljáa. 2.790 kr. Body Shop LUN LUSTRE BRUSH Mjúkur og góður bursti í sólarpúðrið. 1.990 kr. Body Shop „Við vildum hafa sem flesta rauðhærða í bandinu. Við þurftum að láta bassaleikarann fara því hann var ekki með rétta háralitinn,“ segir Kristófer Eðvarðsson, söngvari hljómsveitarinnar Nögl. Kristófer er rauðhærður rétt eins og trommuleikari sveitarinnar, Þorsteinn Ólafsson, og á dögunum skiptu þeir um bassaleikara og réðu inn þriðja rauðhausinn, Jón Anton Stefánsson. „Minnihlutanum í bandinu verður mikið strítt,“ segir Kristófer og á við gítarleikarann Jóhannes, sem er sá eini sem er ekki rauðhærður. „Hann verður að fara að gera eitthvað í sínum málum. Spurning hvort hann liti ekki bara á sér hárið,“ grínast Kristófer. Nögl er rokkhljómsveit sem rekur uppruna sinn til Grundarfjarðar og byrjaði upphaflega sem Blink182-tökulagaband. Sveitin gaf í fyrra út sína fyrstu plötu, I Proudly Present, og er um þessar mundir að senda frá sér nýtt lag sem ber heitið I Will Be Blamed „Við erum einmitt að byrja að skjóta myndband við lagið. Ætlunin er að taka hluta af því upp við byggingarsvæðið hjá Hörpunni,“ segir Kristófer. Nögl stefnir á útgáfu nýrrar plötu í byrjun næsta árs og verður I Will Be Blamed að finna á henni. Hljómsveitin Nögl er orðin 75% rauðhærð Rauðhærðasta band landsins KRISTÓFER, ÞORSTEINN OG JÓN ANTON ERU RAUÐARI EN SJÁLFUR LENÍN

x

Monitor

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.