Monitor - 05.08.2010, Blaðsíða 12
12 Monitor FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2010
stíllinn
„Við höfum fengið frábærar viðtökur,“ segir Telma
Tryggvadóttir hönnuður skartgripamerkisins Made by 3. Auk
Telmu skipa hönnunarteymið Hulda Rós Hákonardóttir og
Teresa Tryggvadóttir. Hafa þær ólíka reynslu í farteskinu,
ein sem vöruhönnuður, ein úr viðskiptaheiminum og ein úr
verslunargeiranum, en allar með brennandi áhuga á fallegum
skartgripum og hönnun. Eru þær náinn starfshópur en Telma
og Teresa eru systur og hafa verið vinkonur Huldu í fjöldamörg
ár.
Lærðu af Svíum
Teresa er vöruhönnuður að mennt og lærði skartgripagerð
hjá sænskum hönnuði. Lærði hún þá allt um hráefni
skartgripanna og helstu handbrögð. „Við Hulda urðum hrifnar
af þeim skartgripum sem Teresa hafði hannað
og vatt hugmyndin þannig upp á sig. Við fórum
út í þetta verkefni með því hugarfari að gera
það sem okkur þykir fallegt. Við bjóðum upp
á nokkrar línur því takmark okkar er að allar
konur geti keypt sér skartgripina okkar og
notað þá við öll tækifæri, hversdagsleg og fín,“
segir Telma.
Á erlendan markað
„Við erum með kúnna á öllum aldri, frá
tvítugu upp í 70 ára og eldri svo það má segja
að við hönnum fyrir konur á öllum aldri,“ segir
Telma. „Við viljum hafa skartgripina vandaða og
notum ekta hráefni í flest allt sem við gerum.
Verðlagið er mjög gott og ætti að höfða
til allra.“
Hafa þær stöllur nú framleitt
sjö skartgripalínur og munum
við eflaust sjá meira frá þeim.
„Við stefnum á að fara út fyrir
landsteinana og erum komnar
með ýmsa möguleika sem við
erum að skoða. Við ætlum að
halda áfram að stækka og styrkja
okkur sem vörumerki,“ segir
Telma.
FALLEG HÚÐ
Húðina, elsku húðina, stærsta líffærið okkar er
mikilvægt að annast vel. Öll erum við með ólíkar
húðgerðir og glímum við ólík vandamál varðandi
húðina. Stíllinn kynnti sér umhirðu húðar til
hins ýtrasta og deilir með þér, lesandi góður.
fegrunarráð
FEIT HÚÐ
Hvernig er feit húð? Feit húð er gjarnan
þykkari en þurr húð og glansar. Fitukirtlarnir
eru „ofvirkir” og svitaholur oft sýnilegar.
Húðin er mjög opin og því eru fílapenslar og
bólur algeng vandamál.
Hvernig skal hreinsa feita
húð? Mjög mikilvægt að
hreinsa húðina vel kvölds
og morgna, ekki sofa með
farðann! Notið farðahreinsi í
formi sápu eða gels. Toner er
góður fyrir feita húð.
Góð ráð fyrir feita húð:
• Gufubað er sérstaklega gott
fyrir feita húð. Heitt bað eða
liggja með heitan þvottapoka
yfir andlitinu virkar líka.
• Ekki gleyma að bera
rakakrem á feita húð. Húð
getur verið þurr um leið og hún
er olíukennd. Gott að nota létt krem
og bera þunnt lag á.
ÞURR HÚÐ
Hvernig er þurr húð?
Þurr húð er gjarnan þunn
og stíf. Svitaholurnar
lokaðar og því eru
fílapenslar yfirleitt ekki
vandamál. Eftir hreinsun á
húðinni verður hún strekkt
stíf. Meiri líkur á hrukkum ef
ekki er hugsað um þurra húð.
Hvernig skal hreinsa þurra
húð? Gott að nota mjólkur-
hreinsi eða kremhreinsi til
að þvo farðann af. Mikilvægt
að nota þykkt rakakrem
kvölds og morgna. Ekki nota of mikið
rakakrem, gott að bera létta umferð á andlit
og háls, bíða í nokkrar mínútur og bera þá
heldur aftur ef húðin er enn strekkt.
Góð ráð fyrir þurra húð:
• Bera þunnt lag af olíu á húðina fyrir svefn.
• Þurr húð er viðkvæm fyrir sól og kulda,
kaupið rakakrem með sólarvörn.
BLÖNDUÐ HÚÐ
Hvernig er blönduð húð? Blönduð
húð er algengasta húðgerðin.
Getur verið feitt svokallað T-svæði
og þurrar kinnar eða jafnvel fita í
kinnum og þurrt T-svæði.
Hvernig skal hreinsa blandaða
húð? Best er að hugsa um blandaða
húð eftir vandamálum þínum.
Séu bólur og fílapenslar þitt helsta
vandamál skaltu notast
við upplýsingar
um feita
húð. Séu
þín helstu
vandamál
þurrku-
blettir
og lokaðir
svitakirtlar
skaltu lesa
um þurra
húð.
Maski
1 eggjarauða
1 msk hunang
3-4 msk hafrar
Hræra eggjarauðu
og hunangi saman,
bæta höfrum við.
Láta liggja á andliti
í 15 mínútur. Þvo af
með heitu vatni.
Maski
1 avocado
3 tsk hunang
1 msk sítrónusafi
½ tsk mjólk
Blanda saman og
bera á andlit. Láta
liggja í 15 mínútur.
Þvo af með heitu
vatni.
HÚÐVÖRURNAR
FRÁ CLINIQUE ERU
MJÖG VINSÆLAR
FALLEG HÚÐ ER EKKI
KEYPT ÚTI Í BÚÐ
HULDA RÓS OG TELMA HANNA SKART-
GRIPI UNDIR MERKINU MADE BY 3
Mikill uppgangur hefur verið í íslenskri
hönnun upp á síðkastið og vakti nýtt skart-
gripamerki athygli Stílsins á dögunum.
Hönnuðir merkisins Made by 3 eru þrjár
tískuskvísur með ólíka reynslu í farteskinu.
MADE BY 3 VÖRURNAR
MÁ SKOÐA OG KAUPA
Á HEIMASÍÐUNNI
WWW.MADEBY3.IS
Nýir
straumar
í skarti
Mynd/Ómar