Monitor - 30.09.2010, Page 4

Monitor - 30.09.2010, Page 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2010 Monitor ræddi við Úlf Hansson, bassaleikara í þungarokkssveitinni Swords of Chaos Vala rígheldur í meydóminn Glamúrpían Vala Grand heldur leit sinni að hinum eina rétta áfram og skrifar hún á Facebook- síðu sína að hún hafi ekki stundað kynlíf síðan hún varð löggilt kona. „Mamma spurði mig hver væri tilgangurinn með því að kaupa öll þessi nýju undirföt ef ég ætlaði ekki að deila þeim með neinum,“ skrifar Vala. „Þá sagði ég við hana að sá eini sem fengi að sjá mig í nýju undirfötunum væri einhver heppinn þarna úti,“ skrifar hún enn fremur og heldur áfram: „Ég ætla að halda meydómnum sko. Ekkert stress mamma, ég mun finna nýjan tengdason sem getur borðað góða matinn þinn.“ Mynd/Kristinn Sverð óreiðunnar? Nafnið kom til rétt fyrir fyrstu tónleikana okkar. Við vorum ekki komnir með nafn og strákurinn sem var að setja upp plakatið fyrir tónleikana hringdi og spurði okkur að nafni. Við fórum þá á Wikipedia og smelltum þar á „random article“. Upp kom grein um tölvu- leikinn Swords Of Chaos sem við höfðum einmitt allir spilað svo þar var nafnið komið. Þið tjáið ykkur alfarið á ensku á Myspace-síðu ykkar. Hvað þýðir eiginlega „subliminal aural contradictions leave the masses perplexed“? Þetta er setning sem ég setti saman því mér fannst standa of mikið á síðunni. Þýðingin er eitthvað á borð við: Mótsagnir undirmeðvitund- arinnar skilja við mannfjöldann ráðalausan. Segir allt sem segja þarf. Er þungarokkið að deyja út? Nei, það lifir enn. Eruð þið svona harðir í alvörunni? Alls ekki. Við eru allir ljúfir sem lömb inn við beinið þó við spilum þungarokk. Ég myndi líka segja að okkar tónlist sé meira að segja fyrir þá sem hlusta ekki á þungarokk vanalega. Er rokkið bara partí og grúppíur? Langt því frá. Það er blóð, sviti og tár. Er gítarleikarinn ykkar, Albert Finnboga, eitthvað skyldur Alfreð Finnboga knattspyrnu- manni? Já, það hlýtur eiginlega að vera. Ég er samt ekki viss. Þið hafið verið þekktir fyrir óútreiknanlega sviðsframkomu. Söngvarinn okkar, nafni minn hann Úlfur, breytist í lítið óargadýr þegar við byrjum að spila, sem er mjög skemmtilegt. Aldrei að vita hverju hann tekur upp á næst. Nýja platan er virkilega flott. Takk fyrir það. Við erum búnir að vera að vinna að henni alveg síðan sveitin var stofnuð. Það var mjög skemmtilegt að taka upp plötuna en við tókum hana upp á fimm dögum í hljóðveri sem var rétt fokhelt. Fínt að klára þessi lög til að geta byrjað á nýju efni. Hvað tekur við? Við erum allir með mörg járn í eldinum svo stundum er erfitt að finna tíma til að æfa og svoleiðis. Núna erum við að einbeita okkur að æfingum fyrir útgáfutónleikana okkar en við verðum með alls konar skemmtilegar uppákomur þar. Verðum með 20 manna brassband og eldgleypi svo eitthvað sé nefnt. Svo erum við að spila á Airwaves núna í október en eftir það erum við allir að fara að vinna í öðrum verkefnum. Næsta mál á dagskrá er svo bara að byrja á nýrri plötu. Ætla Swords of Chaos að reyna að meika það? Innst inni í hjörtum okkar erum við nú þegar búnir að meika það. „Þetta er ferlega skemmtilegt og spennandi. Hluturinn verður kynntur á föstudaginn og þá hefst keppnin,“ segir Stefán Þór Helgason, verkefnisstjóri keppninnar Snilldarlausnir Marels sem er haldin í annað sinn í ár. Hugmyndasamkeppnin snýst um að taka venjulegan hlut og gera sem mest virði úr honum. Keppendur taka hugdettuna upp á myndband og sýna fram á nýtt notagildi hlutarins. „Framhaldsskólanemar á öllu landinu mega taka þátt og við viljum fá sem flesta til að senda inn myndbönd,“ segir Stefán en veitt eru peningaverðlaun í keppninni Hugsa út fyrir kassann Þeir sem vilja taka þátt ættu því strax að leggja höfuðið í bleyti því keppnin hefst föstudaginn 1. október. Þá verður hinn hversdagslegi hlutur kynntur og uppfinningamenn geta hafist handa við að finna ferskustu hugmyndina. „Það er svo einfalt og skemmtilegt að taka þátt. Eina sem þarf að gera er að hugsa út fyrir kassann og horfa á hversdagslegan hlut frá öðru sjónarhorni en venjulega,“ segir Stefán. Möguleikarnir endalausir Í fyrra var hluturinn sem vinna átti með herðatré og komu fjölmargar lausnir til greina sem sigurvegari en besta hugmyndin þótti svokallað gítartré. „Flestir sjá fyrir sér að einungis sé hægt að nota herðatré til að hengja upp föt en við komumst að því í fyrra að hægt er að gera ýmislegt annað við þau eins og til dæmis að hengja upp gítara og safna saman dósum,“ segir Stefán. Hægt er að sjá myndböndin frá keppni síðasta árs á YouTube og á vefsíðu Snilldarlausna, snilldarlausnir.is. „Úrslitin ráðast í nóvember í Alþjóðlegri athafnaviku og verðlaunaafhendingin fyrir Snilldarlausnir 2010 verður í vikunni,“ segir Stefán spenntur en Jón Gnarr verður einn af talsmönnum vikunnar þetta árið. Ljúfir sem lömb Græn og gítarvæn herðatré Hversdagslegir hlutir fá nýtt notagildi í Snilldarlausnum Marel, hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna. STEFÁN ÞÓR ER MEÐ LAUSNINA EKKI MISSA AF ÚTGÁFUTÓNLEIKUM SWORDS OF CHAOS Á FAKTORÝ FÖSTUDAGINN 1. OKTÓBER SWORDS OF CHAOS Stofnuð: Árið 2007 Uppruni: Borgarbörn Meðlimir: Albert Finnbogason (rafmagnsgítar), Ragnar Jón Hrólfsson (trommur), Úlfur A. Einarsson (söngur) og Úlfur Hansson (bassagítar). Plötur: The End Is As Near As Your Teeth (2010). Mynd/Ernir Borgaði Frikka fyrir lagið Ungi Hafnfirðingurinn Bjarki Lár setti í vikunni inn lagið Bara þú á YouTube og hefur fengið yfir 6 þús- und heimsóknir á tveimur dögum sem verður að teljast nokkuð gott. Glöggir hlustendur hafa tekið eftir því að laginu svipar ískyggilega til smella tónlistarmannsins Friðriks Dórs sem hafa notið mikilla vinsælda á undanförnu ári. Ekki er þar um neina tilviljun að ræða því Bjarki borgaði Friðriki Dór fyrir að semja lagið en söngvarinn ungi fékk einnig sömu upptökumenn og hafa unnið fyrir Friðrik Dór til að útsetja lagið sem virðist ætla að slá rækilega í gegn.

x

Monitor

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.