Ísfirðingur


Ísfirðingur - 12.12.1990, Síða 5

Ísfirðingur - 12.12.1990, Síða 5
ÍSFIRÐINGUR 5 Ragnar Guðmundsson, Brjánslæk: rrt • 7 1 • s • Til Ijóssins Láttu ekki dimmuna drepa þig niður né dýrka Bakkus um of. Því skammdegisrökkrinu er falinn í friður og frelsarans dýrasta hof, höndina réttir þér, reisir þig við, því raunhæft þú syngur lof. Þraukaðu veturinn, þiggðu og gefðu og þeyrinn til hjartans nær. Sem vorsólin hlýja gefur hann græðir og geignum á brottu slær. Það finnst ekkert fegra en frelsið og birtan þú fagnar því vinur kær. Farðu og leitaðu, finndu og njóttu frelsisins sem þú hlaust. Það gerir allt myrkrið að einni óttu alsældar sem þú kaust. Já, veturinn þarf ekki að vera svo vondur né váleg hans dimma raust. Hver dagur þá deginum fyrri er fegri sem finnurðu innri mann, vakna og spyrja, er vorið að koma, ég veturinn aldrei fann. Þá lífið hvers verður sem Ijúfur draumur í litlum og stórum rann. Lofsöngur Þeir grípa sem fingur um Grænlandshaf, þá gyllir oft breytilegt sólartraf, ei fegurra er nokkuð sem guð okkur gaf það geta vil um hér í Ijóði. Þér segja vil Guð minn góði. Og börnunum koma til bjargálna æ, hvort búa í dal eða úti við sæ, að bugast ei þekki, með birtunni ræ þér bænirnar sendi í hljóði. Þú hyggur að Guð minn góði Hér Vestfjörðum lýsa svo víst ég get og vel þeim í huganum efsta set, ég stórbrotna náttúru meira met en mangarans illa gróða. Ég trúi á Guð minn góða. Eg Mig dreymdi \ æsku að ávallt mitt líf sem óskrifað blað yrði samtíðar þjóð, að valdlitlum ætíð sem verja og hlíf og veraldar skiptu mig alls ekki Ijóð. Mín andlega festa af stálinu stíf og stiklað ég gæti á logandi glóð. Æ síðan ég reynt hef að færast í fang og framkvæma drauminn frá liðinni tíð, en daufheyrst þó gjarnan við dýrkun og mang og dálítið pirrað minn samtíma lýð. Ég valdi mér sjálfur hinn viðsjála gang, í völundarhúsinu rólegur bíð.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.