Ísfirðingur


Ísfirðingur - 12.12.1990, Qupperneq 12

Ísfirðingur - 12.12.1990, Qupperneq 12
12 ÍSFIRÐINGUR Bíldudalur um það leyti sem Leikfélagið Baldur var stofnað. Leifar gamla Baldurshaga til vinstri á myndinni. Á gömlum merg. Það er nefnilega ekki svo að með stofnun Baldurs hafi leik- starf fyrst hafist á staðnum. Leiklistin stendur þar á gömlum merg. Fyrir síðustu aldamót var skemmtanalíf, sem og atvinnulíf með miklum blóma á Bíldudal. Fyrsti sjón- leikurinn sem sögur fara af þar var leikinn veturinn 1894-95 í svonefndu Bryggjuhúsi, en síðar, líklega 1897 var byggt þar samkomuhús sem hlaut nafnið „Baldurshagi". Stúkan Iðunn stóð fyrir þess- ari byggingu og þótti þetta hið veglegasta leikhús. Það var með leiksviði og yfir því var eins konar turnbygging, þannig að fortjaldið lyftist upp í stað þess að það væri dregið til beggja hliða eins og síðar varð. Var þetta í stíl við það sem þekktist þá í stærri leikhúsum og óperuhöllum erlendis og því síst með neinum kotungs- brag. Þarna var svo Skugga- Sveinn (eða Útilegumennirnir) settur á svið 1899 og fjölmörg verk önnur meðan Baldurs- haga naut við sem samkomu- húss. Eftir það var leikið í pakkhúsum á staðnum við mis- jafnar aðstæður, stundum milli þurrfiskstæðanna. Meðal þeirra sem héldu uppi leikstarfi framan af öldinni má nefna Ágúst Sigurðsson kaupmann, Guðmund Sigurðs- son bakara og Magnús Jónsson, „Manga í Smiðjunni“ og Guðmundu dóttur hans. Fjölmargir fleiri komu þar við sögu, þó þeirra verði ekki getið. hér. „Á reiðlaginu má sjá...“ Þá var og stundum leikið í „Gamla Ishúsinu“ og segir Valdimar B. Ottósson frá einni slíkri sýningu í 20 ára afmælis- riti Baldurs á þennan veg: „Mig minnir að leikritið hafi heitið „Ráðskona Bakkabræðra" og var ráðskonan leikin af Karó- línu Gestsdóttur og var hún hin röskasta í ráðskonuhlutverk- inu. Þarna kom einnig við sögu hreppstjóri, röskur maður og valdsmannslegur og var jafnvel gyrtur sverði. Valdsmann þennan lék Jón J. Maron, bróðir Guðmundar Kamban og Gísla Jónssonar, alþingis- manns og þótti hann fara vel með sitt hlutverk. Á frumsýn- ingu kom það óhapp fyrir, þegar hreppstjórinn geystist inn í stofu til ráðskonunnar, klæddur úníformi og gyrtur sverði sínu, að honum varð fótaskortur. Reyndi hann samt vel og lengi að halda jafnvæg- inu með því að baða út hand- leggjunum, en féll svo að lok- um á grúfu niður í armstól er var á miðju gólfi og ráðskonan stóð við. Sverð hreppstjórans lenti á armbrík stólsins og spenntist síðan upp á milli fóta ráðskonunnar það hátt, að daman sat föst. Stóð sverðs- oddurinn langt aftur fyrir skut, en sú gamla lét sér hvergi bregða, hún ýtti með báðum höndum niður á sverðið og klofaði yfir og sagði um leið með hárri raust: „Á reiðlaginu má sjá hvar fyrirmenn fara!“ Fagnaðarlálum áhorfenda ætlaði aldrei að linna og þótti þessi hluti verksins með af- brigðum vel leikinn.“ „Kemur inn meö bolla...“ Og áfram var haldið að leika á Bíldudal. Þar reis félags- heimili, líklega á fimmta ára- tugnum og á vegum ung- mennafélagsins og stúkunnar Geisla var leikið þar ár eftir ár. Mjög var misjafnt á þessum árum hversu mikið var Iagt upp úr æfingum og leikstjórn, oft leikið næstum því af fingrum fram og smærri hlutverk ekki æfð úr hófi fram ef tími var naumur og texti leikarans lítill eða enginn. Til er skemmtileg saga frá þessum tíma, sem lifað hefur síðan með leikstarfi á Bíldudal. Verið var að sýna leikrit, þar sem meðal leikenda var stofu- stúlka, sem ekki hafði neinn texta að flytja á sviðinu, en hlutverki hennar var greinilega lýst innan sviga, svo sem venja er. Eitthvað hafði þetta atriði verið lítið æft, en með hlut- verkið fór kona hreppsstjórans Pétur Ðja „Kemurinnmeð Af leikstarfi á Ðíldudal Leikfélagið Baldur á Bíldudal var stofnað 28. janúar árið 1965, varð því 25 ára snemma á þessu ári og hefur starfað af ótrúlegum krafti öll þessi ár. Það er því vel við hæfí að minnast þessarar starfsemi með nokkrum orðum hér í s jólablaði Isfírðings, ásamt nokkrum glefsum úr leikstarfí fyrr á árum. á staðnum, sköruleg kona og ákveðin í framgöngu. Þegar að hennar þætti kom í sýningunni birtist hún í svörtum kjól og með hvíta svuntu, svo sem vera bar; strunsar inn á svið með glasabakka í höndunum, fer fram á senubrún og segir hátt og skýrt til áhorfenda: „Kemur inn með bolla á bakka, hneigir sig og fer!“ Hvað og hún síðan gerði. Þetta þótti gott atriði. Aftur á móti var það seinna, og þá kona oddvitans, sem fór með hlutverk með nokkrum texta. Hún þjáðist af „sviðsskrekk" allan frumsýn- ingardaginn og var illa haldin. Á sýningunni gerðist það síðan að meðleikarar hennar klúðr- uðu texta sínum svo illa að nok- krum blaðsíðum úr verkinu var sleppt, þar á meðal hlutverk frúarinnar eins og það lagði sig svo hún fór ekki á sviðið í það skiptið. Baldur kemur til sögu. En félagsheimilið fékk tæp- ast nægilegt viðhald og var farið að hrörna verulega upp úr 1960, bæði hvað snerti aðstöðu til leikstarfs og dansleikja. Gólfið var til dæmis orðið þannig að farið var að tala um „Bíldudalsbrekkuna" og annað eftir því. Fyrsta verkefni leikfélagsins Baldurs var „Vængstýfðir englar“ eftir Albert Husson, leikstýrt af Kristjáni Jónssyni, sem vann mikið með Baldurs- félögum á fyrstu árum þess og reyndist félaginu vel, jafnt í leikstjórn sem leiktjaldasmíði og hverju öðru því sem gera þurfti. í formálsorðum fyrstu leik- skrárinnar stendur m.a.: „Til- gangurinn með stofnun félags- ins var tvíþættur. í fyrsta lagi að efla leiklistaráhuga og menningarlíf á staðnum og þar með heilbrigða og góða skemmtun. f öðru lagi að safna peningum til endurbyggingar á félagsheimili hreppsbúa, en það er orðið mjög aðkallandi, því að segja má að ekkert við- unandi samkomuhús sé til. Leikfélagið hlaut nafnið „Baldur“, en ástæðan fyrir þeirri nafngift er sú, að fyrir meir en hálfri öld hófst leikstarf hér á Bíldudal og var þá leikið í gömlu húsi sem hét Baldurs- hagi.“ Segja má að Baldri hafi tekist með sóma að ná þessum til- gangi sínum, því starfið hefur verið stöðugt og það tókst að endurbyggja félagsheimilið, þrátt fyrir að það brynni að miklu leyti tæpum þremur árum seinna og verður nánar greint frá því hér á eftir. Annað verkefnið var „Þrír skálkar“, viðamikið verk með yfir tuttugu leikurum og söng og dansi. Það gekk svo vel að ráðist var í viðbyggingu við félagsheimilið í samráði við stjórn þess. „Skálkarnir“ voru sýndir 16 sinnum víðs vegar um Vestfirði og í Reykjavík. Á Bíldudal voru sex sýningar fyrir fullu húsi. Félagsheimilið brennur. í desember 1967 kviknaði svo í félagsheimilinu í miðri bíósýningu. Hægt var að verja fokhelda nýbygginguna með harðfylgi, en að mestu brann innan úr gamla húsinu og þar með sviðsbúnaður sem nýlega hafði verið komið þar fyrir. Nú voru góð ráð dýr. Leik- félagið Baldur hafði þá sett mikla hátíð upp 1. desember, árshátíð félagsins og þar var ákveðið að enginn mátti leika sem hafði áður fengist við slíkt en margir nýliðar settir til þeirra hluta. Reyndir leikarar máttu hins vegar syngja eða dansa! Þetta mæltist vel fyrir og Feðgar: Ottó Valdimarsson, Valdimar E

x

Ísfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.