Ísfirðingur - 12.12.1990, Qupperneq 13
ÍSFIRÐINGUR
13
rnason:
bollaá bakka...“
Frá Bíldudal. Gamla samkomuhúsið sést til hægri.
gekk svo vel, að ákveðið hafði
verið að endursýna þetta um
jólin. Það var svo gert í barn-
askólanum og einnig sett upp á
Tálknafirði.
Áramótafagnaður og Þorra-
blót var svo haldið í vinnslusal
Matvælaiðjunnar og bar ekki á
öðru en allir skemmtu sér.
En Félagsheimilið varð að
endurbyggja. Félagar í Baldri
með dyggilegri hjálp annarra
Bílddælinga og undir öruggri
stjórn Fleimis Ingimarssonar,
fyrsta formanns Baldurs, hófu
svo endurbyggingu Félags-
heimilisins, að mestu í sjálf-
boðavinnu og var unnið að
heita mátti dag og nótt og allar
helgar. Samhliða þessari vinnu
var svo æft leikritið „Maður og
kona,“ og var það jafnt, að
Félagsheimilið var opnað á ný
og leikurinn frumsýndur í apríl
1968. Þessi vetur verður mér
sem þetta rita lengi minnisstæð-
ur, því aldrei, hvorki fyrr né
síðar hef ég séð jafn glöggt
birtast samtakamátt og sam-
heldni eins samfélags eins og
gerðist í þessari vinnu. Nóttina
fyrir frumsýningu var til dæmis
verið að teppaleggja anddyri og
stiga og því lokið undir hádegi.
„Desið.“
Þess má geta, að árshátíð
Baldurs, sem fyrr er getið hefur
allt frá þessum tíma verið ár-
3. Ottósson og Jens Valdimarsson.
legur viðburður í félagslífi
Bílddælinga oft nefnd „Desið“
og er þá jafnan haft í fyrirrúmi
heimasamið efni, revíur og
kabarettar. Þar hefur verið
drýgstur höfunda Hafliði
Magnússon, sem einnig hefur
samið fjölmarga söngleiki í
fullri lengd, sem fluttir hafa
verið af Baldri. Meðal verka
Hafliða má nefna söngleikinn
„Gestrisni“, sem hann samdi
ásamt Pétri Bjarnasyni og
Ástvaldi Jónssyni, „Paradísar-
bæ,“ „Sæluvík,“ „Hrynjandi,“
„Sólarlandaferðin,“ „Áslákur
Gunnarsson, söngvamynd," og
fleiri og fleiri, auk smærri þátta
á „Desinu,“ og aragrúa af
gamanvísum, flutt af ýmsum,
en þó oftast og best af Erni
Gíslasyni.
Meðal verka sem sýnd hafa
verið á tuttugu og fimm ára ferli
Baldurs má nefna auk framan-
talinna: „Þjófar lík og falar
konur,“ „Mýs og menn,“
„Skjaldhamrar," „Tobacco
Road,“ „Skuggasveinn,"
„Sjóleiðin til Bagdad,“ og fjöl-
mörg önnur verk.
Ógerlegt er að telja upp alla
þá sem leikið hafa í sýningun-
um en hér verða þó nefnd
nokkur nöfn. Heimir Ingimars-
son var fyrsti formaður félags-
ins og lék mörg hlutverk, eftir-
minnilegast er líklega hlutverk
hans sem séra Sigvalda í
„Manni og konu,“ en fyrir
stofnun félagsins hafði hann
farið á kostum í hlutverki Börs
Börssonar í samnefndu leikriti.
Hannes Friðriksson, sem lengst
allra hefur verið formaður fé-
lagsins á langan og glæstan feril
að baki, hefur leikið eitthvert
af aðalhlutverkum flest árin,
m.a. ógleymanlegur sem nakti
maðurinn í „Þjófunum," og
ekki síður sem Egill í „Manni
og konu“ eða Georg í „Mýs og
menn.“
Bræðurnir Ágúst og Örn
Gíslasynir, Svandís Ásmunda-
dóttir, Þuríður Sigurmunds-
dóttir og eiginmaður hennar
Ástvaldur Jónsson, sem hefur
verið hjálparhella á músiksvið-
inu, Ottó og Jens Valdimars-
synir, Kristjana Benediktsdótt-
ir... Hér væri hægt að halda
lengi áfram. En fleiri koma við
sögu en leikarar. Ingimar
Júlíusson vann gott starf við
leikskrárútgáfu á fyrstu árun-
um og hefur með því m.a. séð
fyrir efni í þessa grein að
Frá 20 ára afmæli Baldurs. Hluti leikara.
nokkru leyti. Hann teiknaði og
merki félagsins. Leiktjalda-
smiðir, málarar, saumakonur,
ljósamenn, þarna var mikið
starf unnið.
í Félagsheimilinu, sem hlotið
hefur nafnið Baldurshagi eftir
hinu fyrra, er mikið safn minja
frá sögu Baldurs, plaköt,
myndir og sitthvað fleira sem
er sögu þess ómetanlegt. Heið-
urinn af því að hafa haldið
þessu til haga og veitt hæfilegan
umbúnað á Jón Kr. Ólafsson,
söngvari, sem auk þessa verks
hefur unnið margt með Baldri,
bæði sungið á hátíðum og leikið
stöku sinnum.
Leikfélög auðga mannlíf.
Hér verður nú farið að slá
botn í þessa sundurlausu
punkta úr sögu leiklistar á
Bíldudal og sögu Leikfélagsins
Baldurs, en þetta tvennt verður
því samofnara sem lengra
líður.
Fátt er jafn dýrmætt til að
treysta byggðir landsins eins og
samstaða fólks um verkefni á
borð við starf Baldursfélaga.
Starf sem auk þess að stytta
mönnum stundir auðga menn-
ingu og auka félagsþroska á
margvíslegan hátt.
Eg óska Leikfélaginu Baldri
til hamingju mcð afmælið og
Bílddælingum til hamingju
með það að eiga Baldur að.
Megi honum hlotnast mörg
stórafmæli í framtíðinni.
Úr þremur skálkum. Örn Gíslason (Ýstru-Morten) og Þuríður
Sigurmundsdóttir (dóttir malarans).