Ísfirðingur


Ísfirðingur - 12.12.1990, Blaðsíða 14

Ísfirðingur - 12.12.1990, Blaðsíða 14
14 ISFIRÐINGUR Pétur Ðjarnason: Ein af fegurstu perlum Vestfjarða Vindmyllan í Vigur. Baldur Bjarnason ásamt svissneskum fuglaskoðara. Tvær stærstu eyjarnar í ísafjarðardjúpi, Æðey og Vigur eru hrein paradís fyrir þá sem unna ósnortinni náttúru og hafa yndi af fuglaskoðun. Báðar eiga eyjarnar langa og merka sögu, enda hafa eyjabændur jafnan búið af rausn og náttúrleg landgæði eyjanna tryggt búi þeirra góðan kost. Ferðamenn hafa í vaxandi mæli sótt eyjarnar heim og á liðnu sumri voru ferðir skipulagðar þangað með báti Djúpferða, Eyjalín. Hér að neðan verður stiklað á nokkrum atriðum um Vigur ásamt fáeinum myndum, en Æðey verður vonandi gerð nokkur skil síðar hér í blaðinu. Lundi. Ljósm. Wilhelm Woodtli. í bókinni „Landið þitt“, eftir Þorstein Jósepsson, segir svo um Vigur: „Næststærsta eyjan á ísafjarðardjúpi, fyrir mynni Skötufjarðar og Hestfjarðar um tveir km á lengd og tæpir 400 m á breidd. í Vigur er eitt býli og lifir bóndinn jafnt á sjó- fangi, fugla- og eggjatekju og landbúnaði. Sauðfé er aðeins haft í eyjunni á vetrum. Er það flutt á bátum til meginlandsins á vorin og út í eyjuna aftur á haustin. I Vigur er vindmyllu haldið við ásamt myllusteinum og öðru tilheyrandi, þótt löngu sé hætt að nota hana. Er það eina vindmyllan sem enn er við lýði á íslandi. Hlunnindi hafa verið um aldir af fugli í Vigur. Æðar- varpið er þar meira en en víðast hvar á landinu og kríuvarp mikið. Sérlega mikið er af lunda og hefur hann verið veiddur þar öldum saman.“ Hér er knappt orðað, en geta má sér þess til af lýsingunni að það kynni að vera ómaksins vert að koma í Vigur og svipast um og á það ekki síst við nátt- úruunnendur og fuglaskoðara. Vigur er hæst norðantil, þar sem heitir Borg og er þar útsýni gott yfir Djúpið, en henni hall- ar síðan að suðurhlutanum, þar sem standa bæjarhúsin, enda heitir þar Bæjarvík. Fyrr á árum var útræði jafn- an stundað úr eyjunum og gott til fiskifangs í Djúpi á þeim tíma. Nú eru sjóróðrar aflagðir úr Vigur, en æðarvarp er þar mikið og fuglatekja á vorin, einkum lundaveiðar, en lund- inn er veiddur í háf. í Árbók Ferðafélagsins 1949 er að finna ágæta lýsingu á lundanum í kafla þeim sem fjallar um Vigur: „Enn er þó sá íuglinn ótal- inn, sem mest er af, en það er lundinn eða „prófasturinn“. Vigur er sennilega ein mesta lundaey landsins. Lundinn hefur þann háttinn á, þar sem hann ekki verpir í urðum, að hann grefur sig langt inn í jörð- ina í hólum og bökkum og eru þessar holur hans stundum ótrúlega langar og krókóttar og ekki greiðar inngöngu öðrum en „heimamönnum“. Eins og flestum mun kunnugt, er lund- inn farfugl að því leyti, að hann hverfur burt frá landinu á haustin - eins og aðrir svartfugl- ar, þó að eigi sé með vissu vitað hversu langt hann fer. Snemma á vorin leggur hann svo „land undir fót“ og vitjar síns „Beru- rjóðurs“. Er þá stundum köld aðkoman, frost í jörðu og hí- býli hans full með klaka. En þessi fremur smái og harðgeri fugl lætur það ekki á sig fá.

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.