Ísfirðingur


Ísfirðingur - 11.12.1991, Blaðsíða 6

Ísfirðingur - 11.12.1991, Blaðsíða 6
6 ÍSFIRÐINGUR Jóhanna B. Magnúsdóttir: „Græn ferðamennska“ Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða var haldinn á Hólmavík hinn 19. októbers.l. Meðal margs sem þar kom fram var fróðlegt og athyglisvert erindi Jóhönnu B. Magnúsdóttur. Hún gerði þar grein fyrir störfum sínum fyrir Ferðamálaráð, en hún er umhverf- isfulltrúi þess, auk þess sem hún gat um helstu framkvæmdir í sumar. Megininntak í máli hennar og það sem hér verður um fjallað var þó hugtakið „græn ferða- mennska", hvað í því felst og hvernig beita má því umhverfinu til verndar. Jóhanna hefur góðfúslega leyft okkur að birta kafla úr erindi hennar og hefjum við það við fyrir- sögnina: HUGMYNDAFRÆÐI GRÆNNAR FERÐAMENNSKU A ferðamálaráðstefnunni sem haldin var í Hveragerði 10.-11. október var samþykkt að skora á stjórnvöld að móta skýra stefnu í umhverfismálum, er taki mið af samspili ferðaþjónustu og um- hverfisverndar. Þá ályktaði ráð- stefnan að hugmyndafræði svo- kallaðrar „grænnar ferða- mennsku" sé nátengd þróun ferða- mála á íslandi sökum þess að nátt- úra landsins sé sú auðlind sem ferðaþjónustan byggir á. Hver er hugmyndafræði grænn- ar ferðamennsku? í henni er yfirleitt vísað til lands- svæða utan þéttbýlis og ferðam- ennskunnar þar. Til þess að hægt sé að flokka ferðamennsku græna þarf hún að: - vera smá í sniðum og þróast hægt og með fullri virðingu fyrir náttúru og íbúum svæðisins. - leggja áherslu á og draga fram sérkenni svæðisins, (náttúrufyrir- brigði, hefðir í mat ogdrykk o.fl.) - vinna með viðkomandi hér- aðsstjórn og stuðla að efnahags- og atvinnuuppbyggingu svæðis- ins. - byggja upp og styrkja samfé- lagið á svæðinu (t.d. félagslega) - stuðla að notkun bygginga sem til staðar eru og landssvæða sem hefur verið umbylt,(nota gamlar byggingar fremur en byggja nýjar) - stuðla að notkun almenning- ssamgangna, (ferðamaðurinn hitt- ir þá heimamenn og heimamenn fá betri samgöngur) Markmið grænnar ferða- mennsku er að vernda og viðhalda náttúrlegu umhverfi áfangastaða, að íbúar beri virðingu fyrir gestum svæðisins og gestir endurgjaldi virðinguna. Mikilvægt er að tcngsl ferðamanns og umhverfis verði skipulögð þannig að umhverfið beri ekki skaða af samskiptunum. Og einnig cr mikilvægt að ferða- maðurinn geti notið ferðar sinnar án þess að lenda í mannþröng. Hafa verður í huga að ferða- mennska hefur alltaf áhrif á svæð- unum sem heimsótt eru. Þessi áhrif eru bæði jákvæð og neikvæð. Jákvæðu áhrifin geta t.d. verið fólgin í því að ferðaþjónustan að- stoði við að vernda og varðveita menningar- og náttúruverðmæti og að virðing gestsins fyrir náttúr- unni eykst. Þá geta gamlar eöa ónotaðar byggingar fengið nýtt hlutverk. Neikvæðu áhrifin eru helst: traðk og í versta falli eyðing gróðurs, truflun eða jafnvel útrým- ing dýralífs (t.d. kríuvarps), aukið sorp og breytt ásýnd svæðisins vegna þrýstings á að byggja ýmsa þjónustu fyrir ferðamenn, svo eitthvað sé nefnt. Samkvæmt hugmyndafræöi grænnar ferðamennsku bcra skipuleggjendur ferða mesta ábyrgð á að óæskileg áhrif á um- hverfið verði sem allra minnst og þeim ber að gera ferðamanninum grein fyrir ábyrgð sinni. Ferðaskipuleggjandinn vinnur í anda grænnar ferðamennsku ef hann hefur eftirfarandi þætti í huga við skipulagningu ferða sinna: - að styrkja og stuðla að nátt- úruvernd, - að hvetja ferðamanninn til að ferðast á umhverfisvænan hátt, - að nota umhverfisvæna fram- leiðslu, spara orku og endurnýta úrgang, - að nota vörur sem framleidd- ar eru á svæðinu og þjónustu sem heimamenn bjóða upp á. Ferðaskrifstofur skulu hafa samráð við heimamenn um skipu- lagningu ferða og nota þjónustu og vinnuafl þeirra eins og kostur er. STEFNUMÓTUN Um framangreint snýst svo- kölluð græn ferðamennska. Sumt af þessu er þegar innbyggt í ferða- þjónustu á íslandi, en heildar- stefnu vantar algjörlega. Við stefnumótum í ferðamálum á íslandi er eðlilegt að hugsa sér allt landið sem eitt stórt svæði og móta síðan stefnu i sama anda fyrir landshlutana. Síðan mætti hugsa sér að t.d. Hólmvíkingar mörkuðu sér slíka stefnu fyrir sitt leyti. Mín skoðun er sú að það sé algjör nauð- syn fyrir atvinnugreinina að móta stefnu sem miðar að því að vernda og viðhalda náttúrlegu umhverfi áfangastaða og að íbúar beri virð- ingu fyrir gestum svæðisins og gest- ir endurgjaldi virðinguna. Ferða- þjónustunni er nauðsynlegt að við- halda auðlegðinni sem hún byggir á og einnig að bera virðingu fyrir viðskiptavinum sínum hvort sem það eru heimamenn eða ferða- menn. Það er henni nauðsynlegt að ferðamennskan hafi jákvætt yfirbragð. Þið hér á Vestfjörðum eruð svo heppin að hafa tækifæri til að þróa ferðamennskuna ykkar samfara auknum ferðamannastraumi. Þið getið mótað ykkur stefnu og búið svæðin undir aukninguna. Víða á landinu er aukning ferðamanna komin langt fram úr viðbúnaðin- um til að taka á móti þeim. En hvernig á viðbúnaðurinn að vcra? Og hvenær er hæfilegt að grípa inn í þróunina? HVENÆR Á AÐ HEFJA STÍGAGERÐ? Hugsum okkur ósnortið svæði, náttúruperlu, sem erfitt hefur verið að komast til. Einn góðan veöurdag er lagður vegur nálægt svæðinu og einn og einn ferðamað- ur fer að skoða sig um. Fyrst í stað ganga ferðamennirnir vítt og breitt um svæðið og lítið sem ekkert sést á því. Síðan fara fleiri að koma og ákveðnir slóðar taka að myndast. Slóðarnir liggja hingað og þangað um svæðið og fleiri en einn að sama staðnum. En þeir eru ósköp vina- legir og það er gott að ganga á þeim. Nú skipuleggur ferðaskrif- stofa hópferð með viðkomu á svæðinu. Umferð eykst, nýir slóð- ar myndast enn og gróðurþekjan rofnar. Svæðið er ekki orðið svipur hjá sjón og nú byrjar vatns- og vindrof. Hverinn, árgljúfrið, foss- inn eða hvað það nú var sem hafði aðdráttarafl er þarna enn, en nú fær gesturinn neikvæða tilfinningu við heimsóknina. V.ið gætum líka hugsað okkur að á viðkomandi svæði hafi verið hraunmyndanir sem slóðarnir hafi myndast um, en þá væri staðurinn ónýtur og það er of sorglegt, svo við skulum bara sleppa því. En spyrjum okkur; á hvaða stigi átti að taka í taumana? Átti að sleppa því að leggja veg um svæðið? Átti að loka svæðinu fyrir umferð? Eða stýra umferðinni frá fyrstu byrjun og eiga þá á hættu að slóðar mynduðust fyrr, en bara á ákveðnum stöðum? Átti að bíða eftir að sjá hvar slóðar mynduðust og leggja malborna stíga þar? Þetta er alls ekki augljóst mál og svör verða ekki veitt hér. Við skulum hafa í huga að þegar er búið að leggja malborna göngustíga um svæði þá virkar það ekki eins ósnortið, hversu vel sem að verki er staðið, en hins vegar er svæði mjög óhrjálegt þegar mynd- ast hefur á því óskipulegt slóðanet. Einhvern veginn verður að koma í veg fyrir að slíkt slóðanet myndist. Kannske finnst ykkur að slíkar áhyggjur séu ekki tímabærar hér á Vestfjörðum, en ég vil hvetja ykk- ur til að hugleiða þetta og notfæra ykkur að þið hafið möguleika á að grípa í taumana áður en vandamál- in skapast. Eins og áður sagði verða ekki gefin nein ákveðin svör við þessu hér, heldur vildi ég benda ykkur á að hugleiða þetta, en mér finnst þið vera á réttri leið með því að leggja áherslu á að stika leiðir á ykkar svæði. HORNSTRANDIR En talandi um stikun. Ég tók þátt í stikuferðinni á Hornstrandir sem Ferðamálasamtök Vestfjarða stóðu fyrir í samvinnu við Sjálf- boðaliðasamtök um náttúrvernd og Náttúruverndarráð. Þetta var mjög ánægjuleg ferð og gagnlegt verk. Hornstrandir eru stórkostlegt landssvæði, ég þarf víst ekki að segja ykkur það. Þegar ég kom þangað hafði ég verið að ferðast um landið í einn og hálfan mánuð og var satt að segja að verða þung- Jóhanna B. Magnúsdóttir. lynd yfir því hvernig við um- gengjumst landið okkar. Líkast því sem það væri aðeins ætlað okk- ar kynslóð, væri einnota. En þessi ferð á Hornstrandir var mikil hvíld að þessu leyti. Það er stórkostlegt að enn skuli vera til svona stórt landssvæði sem ekki er sundur- skorið af bílvegum og slóðum. Sig- urborg Hannesdóttir tók þannig til orða á ferðamálaráðstefnunni þegar hún vildi leggja áherslu á að náttúruvernd væri ferðaþjónust- unni nauðsynleg, að við mættum ekki éta útsæðið okkar, en hún sagði líka að ekki væri nauðsynlegt að hafa kartöflugarða alls staðar. Mér finnst að þetta eigi við um Hornstrandir - þar ættum við ekki að hafa kartöflugarð. Við ættum að greiða götu þeirra sem vilja fara þangað og njóta svæðisins í kyrrð og ró en alls ekki auglýsa það upp. Þar ætti hugmyndafræði grænnar ferðamennsku sannarlega að vera höfð að leiðarljósi. Ég varð mjög hrifin af gömlu stígunum sem liggja á milli byggða. Sérstaklega með tilliti til þess að mannvirki skuli vera sem minnst áberandi í náttúrunni. Við getum sannarlega lært margt á því sviði ef við lítum til fortíðarinnar. Það er líka heillandi verkefni að halda þessum stígum við, tína grjót úr þeim og hlaða kantana þar sem þeir hafa hrunið. Einnig að endurhlaða vörður á þessum gömlu leiðum. Við þurfum öll að sameinast um að vernda þetta ómetanlega svæði. Sem betur fer er landið okkar það stórt og hefur upp á svo margt að bjóða að nóg er eftir til annars konar ferðamennsku en þar á við. Með öðrum orðum, við eigum nóg önnur landssvæði undir kartöflu- garða. Ferðamálaráð stóð að framkvæmdum á sjö stöðum á landinu í sumar: Göngustígar lagfærðir við Hraunfossa, stígalögn við Gullfoss, aðkoma að Dettifossi var lagfærð, afmarkað bílastæði við Jöku- Isárlón, breytt stígum við Dverghamra, viðhald stíga við Kerið og við Ófærufoss í Eldgjá voru lögð þrep í brekku. Að auki var unnið að upplýsingasöfnun um allt land og margt fleira. ^^ ^Breidafjarðarferjan BALDUR HF. óskar öllum Vestfirðingum og gestum þeirra gleðilegra jóla árs og friðar 1 Vetraráætlun okkar yfir Breiðafjörð 1991-1992 Frá Stykkishólmi Frá Brjánslæk Mánud., miðvikud., föstud.Mánud., miðvikud., föstud. kl. 10.00 kl. 14.00 Þriðjud., sunnud. Þriðjud., sunnud. kl. 13.00 kl. 17.00 Aukaferðir fyrir jól og áramót Fimmtud. 19. og 26. des. Fimmtud. 19. og 26. des. kl. 13.00 kl. 17.00 Laugard. 21. des, og fimmtud. 2. jan. kl. 10.00 kl. 14.00 Engar ferðir verða eftirtalda daga: Aðfangadag jóla 24. des., jóladag 25. des., gamlársdag 31. des., og nýársdag 1. jan.

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.