Ísfirðingur


Ísfirðingur - 11.12.1991, Side 9

Ísfirðingur - 11.12.1991, Side 9
ISFIRÐINGUR 9 RANGLÆTI HEIMSINS En það breyttist nú þegar við fórum í ferðalag norður í land eina helgina. Par var allt sem við höfðum ímyndað okkur um Afríku, hiti, skorkvikindi og dýr. Reyndar vorum við orðin örmagna eftir gistinguna á fyrsta tjaldstæð- inu. Við komum þangað um þrjú- leytið um daginn og fórum hin ánægðustu að tjalda. Sjáum við þá þessa risastóru maurahersingu um allt tjaldstæði Pað var ekki hægt að stíga niður fæti án þess að trampa á a.m.k. 1000 maurum. Þar sem við erum orðin vön litlum sak- ferðast á regntímanum. Ég hef aldrei á ævi minni lent í öðru eins. Tjaldið hristist til og frá vegna eldinga og þruma og rigningin var svipuð og við sætum undir fossi. Tjaldið þoldi þetta, en á tímabili fannst okkur við vera komin á sigl- ingu um tjaldstæðið. Um ntorgun- inn var kominn steikjandi hiti og allt þornaði á innan við klukku- tíma. Ferðalagið gekk áfallalaust eftir þetta og var mjög gaman. En það var áfall að sjá hvernig innfæddir búa og sömuleiðis alla fátæktina. Og eins og ég var búin að minnast á, er ekkert skrýtið að það skuli Risastór mauraþúfa. 50 gráður. Stundum fylgir sandrok og þá er eins gott að halda sig innan dyra og loka öllum gluggum. Fyrsta sinn sem austanvindarnir komu eftir að við komunt út var úm nótt og ég var með opna glugga. Um morguninn sást ekki í stofuna fyrir sandsköflum og við Kristín vorum heilan dag að þrífa bara stofuna. Austanvindarnir standa stutt yfir svo þctta er alveg þolanlegt, og að vissu leyti er þetta tilbreyting. Ég ætla að fara að hætta núna, þetta er orðið miklu lengra en ég ætlaði mér. Samt sleppti ég miklu, því það er svo margt að sjá og gera hérna í Namibíu. í júní-júlí ætlum við að fara í ferðalag upp alla Namibíu, og gegnum Zimbabwe og Botsvana hcim aftur. Viðætlum að skoða tvo þjóðgarða sem fólk segir að séu mjög fallegir og mikið dýralíf þar. Við ætlum einnig að fara til Victoríufossa. Ég skrifa kannske annað bréf eftir þá ferð. Við biðjum öll að heilsa heim. Kveðja, Birna Hauksdóttir. Svart og hvítt. Sonur vinnukonunnar og Stefán Haukur. Jóhann Haukur í Swakop (til hægri) og í félagsskap innfædds villisvíns (að ofan). leysislegum maurum heima í Swakop létum við þetta ekki á okkur fá og héldum áfram að tjalda. En allt í einu finn ég þennan rokna sting í stórutánni og lít niður. Er þá ekki þessi risastóri maur á kafi í tánni á mér og rétt að sást í afturendann á honum, sem hann dillaði til af ánægju yfir svona stórri bráð. Ég tók náttúr- lega algjört taugaveiklunarkast og dansaði trylltan stríðsdans um allt tjaldstæði. Börnin voru fljót að taka þetta eftir mér og áður en ég vissi af var öll fjölskyldan hopp- andi og skoppandi nema maðurinn ntinn. Hann stóð fastur á sínum jafnfljótum og tautaði eitthvað um taugaveiklun og skordýrahræðslu. Réttlæti heimsins er misskipt, því við vorum öll bitin nema hann. Um sexleytið hurfu allir maurarnir (hafa líklega dáið úr hræðslu) en þá tók ekki betra við. Þegar við vorum farin að sofa byrjaði að rigna og það var engin smárigning. Við vorum nefnilega svo vitlaus að vera mikið um þjófnaði, efvið ber- um saman hvernig við búum og hvernig langflestir innfæddir búa. SKÓLI OG JÓLIN í SÓLINNI íslensku börnin ganga í cnskan skóla og hafa þau öll staðið sig bara vel. Skólinn er mjög strangur og þau verða að nota skólabúninga. Það er gífurlega mikill heimalær- dómur hjá þeim, jafnvel þeim yngstu. Þetta var erfitt hjá þeim í byrjun, en núna eru þau öll farin að tala ensku og búin að ná betri tökum á náminu. Þau hafa eignast vini af öllum litarháttum og líkar vel að búa hérna. Þau eru fljót að aðlagast, til dæmis voru þau fljót að komast að því til hvers vinnu- kona væri. Nú gætu þau sveiflað sér í gluggatjöldunum, mulið niður brauð og fleygt dótinu sínu um allt án þess að þurfa að ganga frá eftir sig. Það tók mig þó nokkurn tíma að koma þeim í skilning um að þau þyrftu sjálf að taka til í sínum her- bergjum og ganga snyrtilega um. En það tókst aö lokum, svona að mestu leyti. Þeint fannst jólin skrýtin og voru ekki alveg sátt við að hafa sól og hita, en það er nefnilega hásumar í Namibíu um jólin. Á Þorláks- messu tók maðurinn minn þau með sér á úlfaldabak, svo ég gæti framkvæmt rnína alíslensku jóla- hreingerningu. Aðfangadagskvöld borðuðum við klukkan sex í steikjandi hita og þá var ekki laust við að sumir fengju hcimþrá. En það lagaðist á jóladag, því þá fóru allir íslend- ingarnir á ströndin og skemmtu sér vel. Uppeldið í Swakop er mjög strangt og t.d. eru ennþá leyfðar líkamlegar refsingar í skólanum. Þetta er allt öðruvísi en heima, hérna vinna mennirnir úti og kon- urnar eru heima. Það er mjög sjaldgæft að hvítar konur vinni úti. Það er talið fullt starf að segja vinnufólkinu fyrir verkum, sjá um börnin og annast félagslíf þeim viðkomandi. Sem það líka er. Eins og ég var búin að minnast á er ntjög gott að vera í Swakop, loftslagið er milt og lítið um skor- kvikindi. Það er mikið um það að fólk komi saman og grilli annað- hvort heima hjá einhverjum eða skreppi aðeins út í cyðimörkina og grilli. Það er ágætis baðströnd hérna og svo cr alltaf hægt að skreppa eitthvað um helgar og tjalda. Við fórum cina helgina í eyðimerkurferð og var það mjög skemmtilegt. Það eina sem skyggði aðeins á var að hitinn var svo mikill um miðjan daginn að allir lágu í móki. Svo er ekki nema 4 tíma akstur til Windhoek, og þar sem illviðri spilla ckki færðinni, er all- taf hægt að skrcppa þangað. „AUSTAN KALDINN Á OSS BLÉS“ Einu skiptin sem hitinn í Swakop er óþægilegur er þegar heitir austanvindar blása af eyði- mörkinni.Það gerist nokkrum sinnum á ári og þá fer hitinn yfir Messur á ísafírði: 15. desember: Aðventukvöld í Hnífsdalskapellu kl. 20:30 Aðfangadagur: Hnífsdalskapella kl. 18:00 ísafjarðarkapella kl. 23:30 Jóladagur ísafjarðarkapella kl. 14:00 Annar í jólum: Súðavíkurkirkja kl. 14:00 Gamlaárskvöld: ísafjarðarkapella kl. 18:00 Messur í Bolungarvík: 15. desember: kl. 14:00: Lesmessa í tilefni jólanna. Væntanlcg fermingarbörn sjá um upplestur og fleira. Engin predikun. Aðfangadagur: KI. 18:00: Aftansöngur jóla. Jóladagur: Kl. 14:00: Hátíðarmessa. Kl. 15:00: Helgistund á Sjúkrahúsi Bolungarvíkur. Annar í jólum: Kl. 14:00: Jólamessa barnanna. Gamlaársdagur: Kl. 18:00: Aftansöngur.

x

Ísfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.