Ísfirðingur


Ísfirðingur - 11.12.1991, Síða 15

Ísfirðingur - 11.12.1991, Síða 15
ÍSFIRÐINGUR 15 Dæmigert franskt landslag. reyndust þar vera á ferð íslenskir frönskukennarar sem voru á nám- skeiði í tvær vikur í Montpellier, sem er ekki ýkja langt frá vatns- leiðslunni. Nú var ekið til borgarinnar Nimes, sem erfornfræg, frá dögum Rómverja eins og vatnsleiðslan. í borginni er hringleikahús eða leik- vangur og ferhyrnt súlnahús frá 1. öld fyrir Krists burð. Þetta er all- stór borg, ríflega á stærð við Reykjavík. Óaðlaðandi baðströnd. Við komuin að Miðjarðarhafinu því rétt vestan við ósa Rhöne- fljótsins, og var þá komið kvöld. Þorpið sem við gistum í nefnist Grau-du-Roi. Þarna eru mjög stór hótel sem vita út að ströndinni og hýsa sóldýrkendur yfir hásumarið. Ferðamannatíminn var hins vegar ekki almennilega byrjaður og her- bergin á tiltölulega viðráðanlegu verði. Við fj'öruna framan við hótelið voru uppi skilti sem bönn- uðu stranglega alla umferð hunda á svæðinu, en ekkert var farið eftir þessu, enda var mikið um hunda- skít í sandinum og af þeim sökum ekki fýsilegt að leggjast í hann. Að morgni 17. júní, á þjóðhá- tíðardag íslendinga, var talsverð gola og ekki hlýtt. Við ókum nú um hrísgrjónalendur Frakka í ós- hólmunum, en manni skilst að til- tölulega lítið svæði þar fullnægi hrísgrjónaþörf frönsku þjóðarinn- ar. Þarna er einnig mjög stór þjóð- garður, frægur fyrir fuglalíf. Við sáum hjörð flamingóa í ætisleit á vöðlum, sem þarna eru, og var það einkar tilkomumikið. Þessir fuglar eru um hálfur annar metri á hæð þegar þeir rétta úr sér, að miklu leyti ljósrauðir að lit. Páfahöllin í Avignon. Á eystri bakka Rhöne-fljótsins, ekki mjög langt frá Miðjarðarhaf- inu, stendur borgin Avignon. Þangað var nú förinni heitið, enda um að ræða eina sögufrægustu borg Frakklands. Við ókum að innri borginni, miðaldaborginni, sem er umlukin múr með nokkrum hliðum á, og gengum síðan um hin- ar þröngu götur allt að páfahöll- inni. Það var upp úr 1300, nánar til- tekið árið 1309, sem Klemens V. páfi í Róm, franskur maður sem hafði lent á hálfgerðum hrakningi vegna ósamlyndis í Rómaborg, settist tímabundið að í Avignon, sem var biskupssetur. Eftir andlát hans var árið 1316 kjörinn páfi annar franskur maður, Jóhannes XXII., sem einmitt hafði fyrir kjör sitt verið biskup í Avignon. Hann hætti við að flytja til Rómaborgar en hreiðraði í þess stað um sigí sinni eigin biskupshöll. Þessi páfi var uppi um það leyti, sem skáld- sagan Nafn rósarinnar eftir Umberto Eco á að hafa gerst, og einmitt á sama tíma kveiktu munk- arnir á Möðruvöllum í Hörgárdal í klaustrinu þar, samanber leikrit um þann atburð eftir Davíð Ste- fánsson. Næstu fimm páfar, allir franskir, sátu einnig í Avignon, og ríktu átta eða tíu ár hver. Þar kom þó, um 1378, að hið postullega sæti var á nýjan leik flutt til Rómaborgar, og þar hefur það verið síðan. Eg fór ásamt mági mínum í skoðunarferð um páfahöllina, og nutum við leiðsagnar frönskumæl- andi leiðsögukonu. Höllin var mjög grátt leikin á árum stjórnar- byltingarinnar miklu, laust fyrir 1800, enda báru hinir guðlausu byltingarmenn enga virðingu fyrir páfadóminum. Alla 19. öld var höllin notuð sem hermannaskáli. Nú er unnið að því að laga hana og færa að nokkru í það horf sem hún hafði á dögum páfanna. Síðdegis þcnnan dag yfirgáfum við Avignon, ókum yfir Rhóne á ný og til norðvesturs. Þar komum við enn að mjög tilkomumiklum gljúfrum, kenndum við Ardéche, og fórum eftir þeim meðal annars framhjá afar nafntoguðum stein- boga yfir ána, hann heitir Pont d‘Arc eða Bogabrú. Við gistum á ódýru, litlu hóteli í afskekktu þorpi. Madonnumynd og knipplingar. Sjötta og síðasta dag ferðarinnar fengum við rigningardembur á okkuröðru hvoru. Ekið var í norð- vestur til bæjarins Le Puy, sem er höfuðstaður í einu fámennasta fylki Frakklands. Þetta er ríflega 20 þús. manna bær, í eldfjallaland- inu í Miðhálendinu, því að við höfðum nærri ekið í hring frá fyrsta deginum. Inni í borginni eru tvær sérkennilegar klettastrýtur, sem eru fornir gígtappar. Uppi á þeim hærri er gífurlega stór rauðbrún standmynd af Maríu með Jesú- barnið. Þetta er bronsstytta, tæp- lega 23 metrar á hæð og vegur 835 tonn, gerð úr fallbyssum frá Krím- stríðinu, sem háð var 1854-56. Styttan er hol innan, og við systir mín og mágur klifruðum alla leið upp í höfuð hennar. Þessi Ma- donnumynd er auðvitað löngu orð- in að táknmynd bæjarins, sem ann- ars er frægur fyrir handunna knipplinga, sem við keyptum okk- ur eðlilega talsvert af. Við ókum nú um fjalllendi til norðausturs að Rhöne-dalnum á ný. í borginni Vienne skoðuðum við mágur minn hof Ágústusar og Lívíu, þ.e. rómverskar minjar frá Getur þú lagt lið? Heimildirumsögu vestfirskra skóla Hafin er söfnun hcimilda um vestfirska skólasögu. Um nokkurra ára skeið hefur fræðslustjóri Vestfjarða, Pétur Bjarnason haldið til haga og safnað saman brotum úr sögu skólahalds á Vestfjörðum. Nú eftir áramót mun hann fara í þriggja mánaða starfsleyfi til að sinna þessum þætti og kanna heimildir um skólahald í fjórð- ungnum. Ekki er mjög Ijóst hvar þeirra er helst að leita, þar sem skjöl og önnur gögn varðandi skólahald er vafalaust að finna vítt og breitt um allt svæðið, auk þess sem komið er á söfn. Nú eru það tilmæli til lesenda blaðsins að þeir aðstoði við þessa upplýsingaöflun með ábendingum eða upplýsingum sem að gagni mætti koma. Helst er beðið um eftirfarandi: ★ Abendingar um skjöl eða fundargerðabækur frá fyrri tíð. ★ Ljósmyndir eða vísbendingar um hvar þær væri að finna. ★ Benda á skráðar heimildir sem fjalla um þetta efni. ★ Abendingar um fróða menn (og konur) um þessi mál. ★ Minningar frá eigin skólaveru á Vestfjörðum. ★ Hvaðeina annað sem tengst getur þessu verki. Þeir sem vilja leggja þessu máli lið eru beðnir að hafa samband við Pétur Bjarnason, fræðslustjóra, Árholti 5, 400 ísafjörður, sími 94- 4684, vinnusími 94-3855 og fax 94-3508. Við óskum Vestfirðingum gleðilegra jóla, árs og friðar og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða VÁTRYGGINGAFÉLAG NrlBr íslands hf Óskum Vestfirðingum og lands- mönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Sæplast hf. Dalvík því um Krists burð. Síðan komum við okkur á hraðbraut, og fórum beint í gegnum stórborgina Lyon og svo áleiðis til Parísar skemmstu leið. Ferðinni lauk við Orly- flugvöll, þegar bílnum var skilað um kl. 23 að kvöldi. Þessi sex daga ferð hafði á allan hátt heppnast mjög vel. Við höfðum komið á ýmsa mjög sögu- fræga staði og víða litið augum ák- aflega tilkomumikið Iandslag. Engin óhöpp höfðu hrjáð okkur. Niðurstaðan var að þetta væri rétti árstíminn fyrir íslendinga til að skoða Evrópulönd. Reyndar má minna á, að um þetta leyti voru aðeins liðnir rúmlega þrír mánuðir frá lokum Persaflóastríðsins, en á meðan það stóð datt ferðamanna- straumur til Frakklands að mestu niður og hafði ekki enn náð sér upp til fulls á ný þegar hér var kom- ið sögu.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.