Ísfirðingur


Ísfirðingur - 11.12.1991, Síða 17

Ísfirðingur - 11.12.1991, Síða 17
ÍSFIRÐINGUR 17 Siggi Sveins sjötugur Pann 11. nóvembers.l. varð Sig- urður Sveinsson jarðýtustjóri, frístundabóndi og fyrrum útgerð- armaður, sjötugur. Sigurður er fæddur á Góustöðum árið 1921 og ólst þar upp í stórum hópi bræðra. Foreldrar þeirra voru Guðríður Magnúsdóttir frá Aðalvík og Sveinn Guðmundsson frá Hafra- felli. Sigurður fór fljótlega að vinna við bifreiðaakstur. Petta var á þeim árum sem bílinn var að vinna sér sess sem hið nýja samgöngu- tæki. Seinna hóf Sigurður rekstur vinnuvéla og hefur það verið hans aðalatvinna fram á þennan dag. 1960 stofnaði Sigurður ásamt nokkrum félögum sínum útgerðar- félagið Búðanes h.f. og gerði það félag út mb Guðnýju fram á s.l. vor að sú happafleyta var seld til Bolungarvíkur. Eiginkona Sigurður er Gerður Pétursdóttir, Pálssonar frá Hafn- ardal. Þau eignuðust þrjú börn en fyrir átti Sigurður eina dóttur. A afmælisdeginum samfögnuðu fjölskylda og vinir Sigurðar honum í veglegu hófi sem haldið var í húsnæði Netagerðar Vestfjarða. Þar var fjölmennt sem vænta mátti, því vinahópurinn er stór og samferðamennirnir margir. Með- fylgjandi myndir tók Pétur Bjarna- son í hófinu. Sigurður Sveinsson ásamt frænda sínum Heiðari Sigurðssyni. Það er ekki frítt við að ættarmótið sjáist! Einar Hreinsson þenur nikkuna og afmælisbarnið stjórnar al- mennum söng af mikilli röggsemi. Yngsta kynslóðin virðir mann- fjöldann fyrir sér. Afmælisbarnið, Sigurður Sveinsson ásamt Guðriöi dóttur sinni og Magna Guðmundssyni, bróðursyni sínum. Húsakynni Netagerðar Vestfjarða eru bæði rúmgóð og hin vistlegustu og voru glæsileg umgjörð um þessa ágætu afmælisveislu Sigurðar Sveinssonar. Sigrún Jóhannsdóttir á Höfða hefur greinilega sagt eitthvað áhuga- vert við Sigurð. Guðríður dóttir hans til vinstri. Það getur verið handhægt að halda veislu í netagerð, þar sem mjúk hvíla er rétt við hendina. Þessi taldi rétt að nota aðstöðuna og fá sér kríu. Veislugestir voru á ýmsum aldri.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.