Skólablaðið - 01.04.1961, Síða 3
IN MEMORIAM
KARL KRISTJANSSON húsvörður
Fæddur 2. jan. 1898 Dáinn 23. marz 1961
Fyrir skömmu hvarf af sjónarsviðinu Karl Kristjánsson húsvörður, einn
af trúverðugustu starfsmönnum Menntaskólans í Reykjavík. Er nú skammt
stórra högga á milli, þá er skólinn hefur x vetur orðið að sjá á bak tveim af
ágætustu starfskröftum sínum.
Þótt Karl Kristjánsson hafi aðeins gegnt stöðu húsvarðar við Mennta-
skólarui í Reykjavík síðastliðin fjögur ár,hefur hann að verðleikum hlotið traust
og vináttu allra, sem hann hefur haft samskipti við.
Sem nefndarmaður félagsheimilisins hef ég haft nokkur kynni af Karli
Kristjánssyni. Ég minnist þess meðal annars, að eitt kvöld í vetur kom fyrir
smá óhapp í íþöku, og leituðum við þá til Karls. Hann brá skjótt við, þótt
mjög væri áliðið kvölds og leysti vandann. Þannig var hann ávallt reiðubúinn
til hjálpar, ef með þurfti. Ég vil leyfa mér að þakka honum þau störf, sem
hann hefur innt af hendi fyrir félagsheimilið okkar í íþöku.
I hugum okkar mun ^eymast minningin um hæglátan og dagfarsprúðan
mann, sem annaðist störf sin af festu og skyldurækni.
Garðar Halldórsson.