Skólablaðið - 01.04.1961, Síða 6
-142 -
Heimsókn NorSlinga.
M miðjan marzmánuð komu
hingað í nemendaskipt-
um nokkrir nemendur
frá MenntaskóLanum á
Akureyri. Dvöldust þeir
hér í vikutíma í dýrlegum fögnuði.
Voru þeir m.a. viðstaddir aðaldans-
leik skólans, sem haldinn var í Lídó
15. marz. og skemmtu þeir sór vel.
Flestir sunnanmenn skemmtu sór
einnig vel það kvöld, einkum þeir,
sem fengu sér smásprett eftir dans-
gólfinu. Norðlingar héldu að Laug-
arvatni í fylgd með embættismönnum
hins lærða skóla. Dvöldust þrír
Norðlinga í Menntaskólanum á Laug-
arvatni um helgi. För embættis-
manna og Norðlinga austur var mjög
söguleg. Einkum þótti matur Laug-
vetninga girnilegur til fróðleiks.
Ungur athafnamaður.
Þriðjudaginn 28. marz kl. 5
f. h. kom Sverrir Hólmarsson fljúg-
andi til landsins. Um níuleytið var
Sverrir kominn á Skalla, og skömmu
síðar drakk hann kaffi á Mokka.
Kl. 10 mætti Sverrir á skólafundi
og var honum fagnað með lófataki.
Þó tók Sverrir ekki til máls.
Almennur fögnuður ríkir vegna heim-
komu hins glataða sonar. Strax og
Sverrir kom, gekk Einar ritstjóri
Már á hann og skipaði honum að
skrifa í Skólablaðið en liggja dauð-
ur ella.
Var það furða ?
Auglýsingasamkeppni félaga skól-
ans harðnar enn. Er nu svo komið,
að 20 hræður mega varla koma sam-
an, án þess að einhver teiknari geri
flennistóra, marglita og herfilega
ljóta auglýsingu. Oft eru gerðar
margar auglýsingar um eina og sömu
samkomuna. Er kominn tími til, að
settar verði reglur um hámarks-
stærð auglýsinga. Ættu þær helzt
ekki að vera stærri en 20 x 30 cm.
Til samanburðar má geta þess, að
auglýsingar Listafélagsins eru 30 x
60 cm, en auglýsingar Framtíðar-
innar 45 x 60 cm og 20 x 30 cm.
Sömuleiðis eiga auglýsingar að vera
teiknaðar með einlitu bleki eða vél-
ritaðar, og engar myndir eiga að
vera á þeim.
Nýjasta auglýsingabrella Þorleifs
er að hengja auglýsingar á eitt af
brettum þeim, sem notuð voru á
myndlistarsýningu nemenda. Ólafur
H. Grímsson sá brettið með þremur
auglýsingum frá Listafélaginu, leit á
töflu Framtíðarinnar, aftur á bretti
Þorleifs, pírði augunum og mælti :
" Imitation is the sincerest form of
flattery. "
Ljótur leikur.
ólafur R.Grímsson var mjög
ábuðarfullur, þegar hann hringdi í
ýmsa mer kismenn innan skólans og
stefndi þeim til fundar við sig í íþöku.
Fyrst boðaði hann stjórnarfund í Fram-
tíðinni, næst sagði hann nokkrum
fimmtabekkingum að ræða ætti væntan-
legar embættismannakosningar, Steina
robot sagðist hann vilja tala við vegna
Raunvísindadeildarinnar, inspector
scholae sagði hann að ræða ætti fjár-
mál Framtíðarinnar. Þegar mannskap-
urinn kom í Iþöku, tjáði ólafur R.þeim.
að þeir ættu bréf undir símaskránni.
Undir henni var miði, sem á stóð : í
dag er 1.4.1961. Menn brugðust mis-
jafnlega við. Steini robot reiddist, en
Garðar Halldórsson skildi ekki áletr-
unina á miðanum, en sagði bara; "Ha?"
Skíðaferðir.
Valdimar tók þátt I skíðamóti ís-
lands á ísafirði um páskana og gekk
sæmilega. Stóð hann sig aðeins skár en
Hákon Olafsson, inspector scholae á
Akureyri, en hann er mikill skíðagarp-
ur. Er hann dvaldist hér syðra, fór
hann á skíði og hitti Tryggva Karlsson
uppi á fjöllum. Tryggvi fagnaði honum
mjög vel og sagði norðanmanninn af-
reksmann mikinn, það væri einhver
munur heldur en "væskilmennið hér
syðra". Annars tognaði Tryggvi á skíð-
um nýlega, var í skyndi fluttur í Hotel
Tryggvaskála, og varð það honum til lífs.
- b-