Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.04.1961, Side 8

Skólablaðið - 01.04.1961, Side 8
144 - fullkominni kröm, vöðvarnir verða sinum og beinum ofviða og valda tognun, gigt og liðhlaupi, hjartað lamast af stöSugri ofreynslu og bilar á fimmtugsaldri, óeðlileg kynþrá kemur í Ijós og nær yfirhöndinni á flestum gerðum. Og ekki má gleyma hinni blindu hlýðni við þjálf- arann, sem verður þess valdandi, aO einstaklingurinn er opinn fyrir allri múgsefjun og hættir að hugsa sjálfstætt, eða m. ö. o. hið áðurnefnda tóma heilabú. t boöorði nr.4 er rætt um ástina, sem hin stríðandi kempa skal bera til andstæðingsins. Ég ætla ekki að fara að skýrgreina hugtökin ást og kærleikur, en brýtur það ekki nokkuð í bága við þær hugmyndir, er menn gera ser um slíka hluti, að slá andstæðing sinn niður án þess að hirða um, hvort hann einung- is rotast, eða hreinlega deyr? Og að baki þess lconar sigurs og sigurs í há- stökki, hlaupi eða handbolta liggur sami grundvöllur, þ.e.a.s., að sigra and- stæðing sinn með líkamlegum yfirburðum. 5. þú skalt ekki láta ófarir felaga þinna hafa nein áhrif á þig. Gamalt ís- lenzkt máltælci segir : Til þess eru vít- in að varast þau. Það er hryggileg staðreynd, að margir efnismenn hafa farizt, eða stórslasazt við iðkun þessar- ar kórvillu, og samt hlaupa unglingar æpandi 1 lyktina af íþróttaiskunum, sem oftast einkennist af svitaeimýrju ognær- klæðapest, eða m. ö. o. heilbrigðri skyn- semi er útrýmt gjörsamlega. Nú kunna einhverjir að álíta, að ég sé algjör afneitandi hinnar gömlu speki "Heilbrigð sál í hraustum líkama". Því fer fjarri. Líkamleg hreyfing er bæði holl og nauðsynleg, og fyrir okkur, sem sitjum á skutnum vikuna út, er leik- fimi og gangur sú bezta heilsubót. En þegar út í keppnina er komið, glatast hin heilbrigða skynsemi gjörsamlega. Til að sanna mál mitt vil óg geta þess, að ég hef athugað hátterni ýmissa okkar fyrri utanfara í landsliði, og hefur það að miklu leyti rennt stoðum undir þessa grein mína. Einnig hef óg eignazt nokkra kunningja innan þess hrings, er nú eru keppnisfulltrúar íslands á erlendri grund, og það merkilega hefur komið í Ijós hjá þeim flestum, að leikurinn sjálfur er ekki þa5, sem þeir muna bezt, heldur hvar gleðikonur voru vænstar og bjór beztur. Það er og, aS innan þess hóps nemenda Menntaskólans í Reykjavík, er stritar mest í kappleikjum, eru margir þeir, er afla skólanum drjúgt álit á stöðum eins og Vetrargarðinum og Þórs- kaffi. ( Af eðlilegum ástæðum nefni óg engin nöfn. ) Á Grikklandi hinu forna voru íþrótt- ir í hvað mestum heiðri hafðar. Er það ekki einkennilegt, að sá löstur, sem all- ar menningarþjóðir hafa fordæmt og fyr- irlitiS, skyldi vera þar í hávegum hafð- ur, og jafnvel merkir spekingar skrifuðu stórar bækur honum til varnar og upp- hefðar? Og eins og ég hef áður bent á, er tuttugasta öldin einmitt það tímabil, er Olympíuléi'kir eru á ný gerðir að heims- viðburði. En ekki veldur sá er varar. Böðvar Guðmundsson. | EVEG er það einkennandi fyrir þann anda, sem nú ríkir í skólablaði M. R. , að í fyrsta | sinn, sem minnzt er á íþrótt- • ir í blaðinu á þessum vetri, skuli það vera greinin "íþróttaspjöll" eftir B.G., sem birtist. Ætla mætti þó, að af nógu væri að taka úr íþróttalífi skólans í vetur, sem serhverju öðru skólablaði myndi þykja sómi í að birta. Þessi ofannefnda grein, "Iþrótta- spjöll" er meira að segja bæði lúaLeg og svívirðileg árás á einstaka menn u.tan sem innan skólans, svo og á íþrótéahreyf- inguna í heild og tilgang hennar. Reyndar er greinin það fjarstæðu- kennd, að hún er varla svaraverð,, en þar sem ýmiss konar "andleg séní" víiða nu uppi með alls konar fullyrðingar og sví- virðingar um málefni, sem þau (" s eníin" )

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.