Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1961, Síða 9

Skólablaðið - 01.04.1961, Síða 9
- 145 - hafa ekkert kynnzt að ráði, og þott ein- kennilegt megi virðast, eru þó nokkrir í þessum skóla, sem þykjast hátt yfir það hafnir að reyna nokkuð á sig líkamlega. Af þessum ástæðum fannst mer rett að svara þessari vanhugsuðu árás að nokkru. Til marks ums hve grein B. G. er fáránleg, er það, að hann heldur því fram, að menn verði að villidýrum, and- lega tómum, og að stríð og fár og jafn- vel kynvilla stafi a.f íþróttum. Fyrr má nií rota en dauðrota. Fremur finnst mér villimennska á hæsta stigi koma fram meðal hinna svo- kölluðu "listamanna", sem halda, að þeir verði listamenn á því einu að ganga með öskorið skegg og hár sem villimenn, til þess að láta bera sem mest á sér. Barnalegt er og að halda því fram, að sá löstur, sem ávallt hefur þótt loða við listamenn ( sumum þykir hann víst ómiss- andi ) sé afleiðing íþrótta. Af grein B. G. má reyndar sjá, að hann hefur aldrei komist að ráði í kynni við íþróttir, því að annars hefði hann skilið hvílíkt félagslegt gildi þær hafa. Innan íþróttahreyfingarinnar kynnist fólk af öllum stéttum, aldri og fólk með mis- munandi hugsunarhátt. Menn kynnast bet- ur og menn kynnast fleirum í íþróttum en ella. Því miður hefur B.G. alvegfar- ið á mis við þetta. Enda virðist maður- inn argur út í íþróttir og líkamlega mennt yfirleitt. í íþróttum læra menn að meta and- stæðinginn án þess að leggja árar í bát, og í keppni kynnast menn fleirum skap- gerðareiginleikum í fari andstæðings eða meðkeppenda en þótt menn hangi tímum saman í óheilbrigðu andrúmslofti kaffi- húsa. Varðandi hin 5 "boðorð" íþróttahreyf- ingarinnar að dómi B. G. vildi ég svara þessu : 1. t íþróttum skipta Líkamlegir yfir- burðir ekki mestu máli heldur heilbrigð skynsemi ásamt skjótri hugsun, ákveðni og keppnisskapi. Gaman væri t. d. að sjá B. G. æfa líkamlega velbyggða fávita af fávitahæli og koma þar upp góðu handknattleiksliði ! Árangur yrði vafalaust athyglisverður, þar sem B. G. á í hlut. 2. Auðvitað geta menn aldrei neitt í neinu, ef menn æfa sig ekki. Það er enginn fæddur fullkominn, enda þótt sum- ir virðist halda það. Ef menn vilja leggja eitthvað á sig til þess að ná á - rangri, ættu menn að kunna að meta slíkt, en eigi lasta. 3. Til eru þeir menn meðal fslend- inga, sem halda að þeir séu fæddir með þeim ósköpum að vita allt betur en aðr- ir allt frá fæðingu. Þessir menn hafa auðvitað engin not fyrir kennara eða þjálfara af skiljanlegum ástæðum. íþróttaþjálfari er kennari og leið- beinandi, hann sér betur, hvað nemandinn gerir vel eða illa en nemandinn sjálfur. Þess vegna er þjálfari nauðsynlegur ráð- gefandi, og að halda því fram, að 'íþrótta- menn séu háðir vilja þjálfarans í einu og öllu, er svo fjarstæðukennt og van- hugsað, að ekki tekur að svara þess háttar fáráðlingshætti. 4. Menn eiga að virða andstæðing sinn.en ekki reyna að meiða hann og þess vegna samræmist það varla réttum íþróttaanda að slá andstæðinginn niður eins og gert er í hnefaleikum, enda hafa þeir verið bannaðir með lögum hérlendis. 5. "Láttu ekki ófarir félaga þinna hafa áhrif á þig". Þ. e. þú skalt hætta. að ganga , hætta að fara í bíl, hætta að vinna og helzt af öllu hætta að sofa og jafnvel lifa. Eru menn ekki alltaf að deyja og lemstrast í bílslysum, detta og brjóta sig á götum úti og í vinnu, og hafa ekki margir dáið í svefni ? Þetta væri ekki úr vegi, að menn athug- uðu áður en þeir halda því fram, að menn séu alltaf að slasast í íþróttum. fþróttir gera menn einmitt hæfari til þess að forðast slys í daglegu lífi. Varðandi þá fullyrðingu B.G. , að þeir menn, sem keppt hafa erlendis fyrir íslands hönd, muni bezt hvar bjór var beztur og gleðikonur vænstar, vil ég benda á, að sjálfsagt svara þeir því, sem mest er að spurt og spyrjandi hefur mestan áhuga á, enda fara svör þeirra örugglega eftir því á hvaða andlegri "bylgjulengd" spyrjandi er. Allir hafa gagn af íþróttum, sérstak- lega þeir, sem á skólabekk sitja og naumast hafa aðra hreyfingu en að lalla úr og í strætisvagn. Að vísu er mis- munandi, hve mikið menn mega Leggja á sig í fyrstu, en enginn er svo veik- Frh. á bLs. 148.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.