Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.04.1961, Page 13

Skólablaðið - 01.04.1961, Page 13
-149 - -reg Kef an moral. v ÍÐUSTU geislar kvöldsólarinn- ar stöfuðu rauðleitum bjarma á ryku^ stræti Reykjavíkur, þej*ar eg barði að dyrum hja Þráni Eggertssyni. Úti var fremur kalt og eg varð því feginn að komast inn í hlýj- una. Þráinn kom sjálfur til dyra, hann .var klæddur í slopp og mér virtist hann nokkuð fölleitur í daufri birtu anddyrisins. "Hefur þú verið veik- ur, Þráinn, 11 spurði ég. "Ne, - er það?" sagði hann um leið og hann vís- aði mér til herbergis síns. Þegar við vorum setzt- ir, bar ég upp erindi mitt og sagðist vera kominn á vegum Skólablaðsins til að hafa viðtal við hann. "Æ, ég er orðinn leiður á þessum skolablaðspesisma," sagði Þráinn, um leið og hann tók "American Humour" af náttborðinu og laumaði henni í bókaskápinn, "viltu ekki heldur láta Guðjón Albertsson skrifa Dandimenn um mig? " "Nei, það er ekki hægt, Nu er Guð- jón að skrifa verðlaunasmásögu og má ekki vera að svona snatti. " Og Þráinn varð að láta undan, og ég spurði : "Hver eru aðaláhugamál þín? " Með tignarlegri handahreyfingu benti hann mér á bókaskápinn og sagði : "Aðaláhu^amál mín eru bókmennta- legs eðlis, serstaklega þykir mér gaman að skáldsögum og smásögum, einkum smásögum. Ég held að það sé miklu meiri kúnst að semja smásögur heldur en skáldsögur. Hins vegar hef ég aldrei skilið Vjóð. - Svo hef ég líka mikinn áhuga a leynilögreglusögum dg lögreglu- malum. Þetta er víst einhver veikleiki. Serstaklega hef ég gaman af sögum Chestertons. Ég hef lesið þær allar," og Þráinn veifar þykkri bók framan í mig. "En, segðu mér, hver er uppáhalds- höfundur þinn. Er það Chester- ton? " "Ne, - er það? Ég held, að það sé frekar Oscar Wilde. Ég hef lengi haft mikið dá- læti á honum - Annars seg- ist Þorsteinn Gylfason hafa fundið skyringu á því, en hann vill ekki segja mér það fyrr en eftir stúdents- próf. - Ætli það sé ekki af því, að mér finnist Oscar Wilde skemmtilegur eins og ég sjálfur. " Og Þráinn bendir út í loftið og hlær. "Sverrir Tómasson kallaði þig einu sinni sálfræðing í Skolablaðinu, " sagði ég. "Hefurðu eitthvað kynnt þér þau fræði? " "Ég hef verið furðanlega iðinn við að glugga í þetta. Komplexar þeir, sem ég geng með, hafa sennilega vakið a- huga minn á jpessum hlutum, enda eru þeir hvorki fair né smáir. " "En hvaða komplexar heldur þú, að hrjái menntlinga mest? " "Það hefur auðvitað hver sína einkakomplexa, en sé eitthvað sameigin- legt, er það sjálfsagt hræðslan við að vera álitinn heimskur. " "Telur þú, að sálfræðikennsla ætti að vera í Menntaskólanum? " "Nei, en aftur á móti mætti kenna sumum mannasiði. " Mér var skyndilega litið út um gluggann Það var talsvert tekið að skyggja, en sólin speglaðist enn í glugg- um húsanna handan dalsins. Ég sagði: "Það er ákaflega fallegt útsýni hér." Þráinn hló og sagði: "Þo héldist ég alls ekki við hér, ef ég sæi ekki heim

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.