Skólablaðið - 01.04.1961, Page 14
150 -
til hans Þorleifs Haukssonar," og hann
benti mer á snoturt rauðmálað huss sem
var þar spölkorn frá.
"já, það ætti ekki að vera erfitt fyr-
ir hann að fá sér smásprett yfir til þín á
kvöldin og fá lánaðar glósur, " sagSi ég,
"en, segðu mér Þráinn, hvert er álit þitt
á félagslífi nemenda? "
"Mér hlýtur að þykja það gott, " sagði
Þráinn, "því að ég hef verið á flestum
samkomum nemenda í vetur, - nema. auð-
vitað ymsum tonlistarkynningum. Mér
finnst heldur lítið í það varið að sitja í
myrkri og hlusta á plötur. Það geta menn
gert heima hjá sér. "
"Já, þar finnst ef til vill ýmsum góðu
myrkri sóað, en segðu mér, hvað finnst
þer um félagslífið, eins og það hefur verið
I vetur ? "
"Ég held, að það hafi sjaldan verið
meira a seyði en í vetur, en það hefur
sjaldan verið andlausara. Menn láta sér
nægja að sitja og láta aðra skemmta sér. "
"Jæja, það eru þó til heiðarlegar und-
antekningar, til dæmis á ólafsvökunni í
desember. - En hvað finnst þér um þá
stefnu ýmissa að reyna að slá öll met í
félagslífi? "
"Ég er algerlega mótfallinn þeirri
stefnu, enda sýndi ég það í mínum embætt-
isferli, "sagði Þráinn og hló.
"Heldur þu að busar boli 6. bekkingum
ur íþöku? "
"Ne, - er það? 6. bekkingar koma nið-
ur í íþöku, sjá, að þar er enginn annar
6. bekkingur og fara.. "
"Hvað álítur þu um busana og þennan
svokallaða busakomplex? "
" f sjálfu sér hef ég samiíð með bus-
um. Þeir eru afskiptir, og það er ein-
kenni á góðum og þróttmiklum busum, að
þeir eru uppreisnargjarnir, gefa út blöð
og gera uppsteit á málfundum og skóla-
fundum. - Margir framámenn skólans nú
hafa líka verið ódælir í 3. bekk. "
"En hvað finnst þér um 6. bekkinga?"
"Æ, mér finnst þeir yfirleitt fremur
leiðinlegir, " sagði Þráinn og hallaði sér
aftur í stólnum, "en þetta máttu ómögu-
lega birta. "
"Nei, nei, auðvitað ekki, " sagði ég,
"en hvað álítur þú um málfar menntlinga?'
"Það er gefið mál, að það er sér-
stakt málfar tíðkað í Menntaskóla'num.
Ég veit ekki, hvort þetta er sérstakt
menntamannamálfar, en ég hef rekið
mig á, að maður þarf að útskýra það
fyrir öðrum. ÞÓ eru það ekki allir,
sem viðhafa þetta. Sérstaklega eru það
þessir svokölluðu "inteligensaV!1 ,eða
Littererir menn skóLans, sem gera það. "
"já, veL á. minnst, hvað álítur þú
um þessa svoköiiuðu "inteLigensa" ? "
Þráinn hugsaði sig dáiítið um og
sagði svo s
"Það eru tvenns konar menn í skói-
anum: menn, sem heLzt iðka í tómstund-
um sínum biLLiard og rosaieg húsa-
sundafyLLirí og ræða um það, ef þeim
gefst tóm tiL, og svo menn, sem hafa
iitterer áhugamál, eða önnur siík.
Undanfarið hefur verið gerð hríð að
þessum mönnum, taiað uin tiigerðar-
áhuga og jafnvei reynt að koma niðr-
andi merkingu í orðið "inteiigens, " en
sjáifur heid ég, að þetta þuríi ekki
endiiega að vera verra en áhugamál
fyrri hópsins. Sjáifsagt er þó hvort
tveggja ávani. - Aðathættan með "inteii-
gensana" heid ég sé sú, að þeir verði
of ósjátfbjarga, flýi í bækur, ef eitthvað
ber á móti. Það er oft karaktereinkenni
a menntamönnum, að þeir eru eins og
háffgerð börn á vettvangi Lífsins. "
"Heldurðu það? Er þetta ekki róm-
antískt fyrirbæri, þessi viðutan mennta-
mannatýpa ? "
"Ég veit ekki. - Annars hef ég orð-
ið var við það nú á síðustu tímum, að
það eru margir, sem hafa mikia samúð
með rómantísku stefnunni. "
"En þú? "
"Mér finnst rómantíkin mikiu betri
en grár hversdagsieikinn, og ég hef
mikia samúð með þeirri stefnu. "
"Líka sentimentatitetinu? "
"já, ég hef giettiiega gaman af því
tíka. "
"Hvað heidur þú um Listir? "
Þráinn hnussaði og sagði : "Ég nýt
tista, en eyði ekki tíma mínum í að
fjasa um þær. "
"En hetdurðu .að listir séu nú, að
úrkynjast? "
"Sumir segja, að standardinn í
tistum komist niður á nútt, þegar ný
stefna er að ryðja sér tit rúms. Ég get
vet trúað þessu, að minnsta kosti er
standardinn tágur nú. - Hins vegar hef
ég engar áhyggjur af menningunni. "