Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.04.1961, Side 17

Skólablaðið - 01.04.1961, Side 17
Ingibjörg Haraldsdóttir : - 153 - IÐ ungu konur íslands, skelfi- legt er þetta meö ykkur. Ég steyti pínulítinn hnefa gegn flóðöldunni miklu, en þaö dug- ir víst skammt. Bylgjan skelV ur yfir mig og vesalings karlmennina af ógnarþunga, færandi með sér böl og and- legt myrkur, - hvar lendir þetta ? opnar munninn eða mundar penna til annars en að glósa latínu. Ég lái þeim þetta alls ekki. Við höfum nefnilega hegðað okkur þannig, kæru kynsystur mínar, að full ástæða er til að hrista hausinn. Frá upphafi vega höfum við þjáðst af þeim ægilega komplex, að karl- menn sóu okkur fremri. Við höfum að- Erum við öll á hraðri leið til helvítis? Ekki veit ég það, en hitt er víst, að brýn þörf er á uppvakningu meðal kven- þjóðarinnar. ó, konur, lítið upp og sjá- ið ykkar eigin andlegu eymd, takið kipp í rétta átt, veitið ofurlítilli birtu inn í sálarkytrurnar ykkar dimmu. Hafið þið veitt því athygli, að þið hafið dásamlegt líffæri innan í fallega höfðinu, líffæri, sem gerir ykkur kleift að hugsa? Ekki það, nei? Mér datt það í hug. En þetta líffæri heitir heili. Hvernig væri að gera smátilraun með hann? Ef til vill fæddist bara snotur hugsun innan undir puðrinu, ef þið legð- uð reglulega mikið á ykkur. Ég veit, að til mikils er ætlazt, en þið eruð nu í menntaskóla og ættuð að vera svolítið digrari til andans en meðalmennin á götunni. Mikið þætti mér fróðlegt að sjá þá breytingu, sem yrði á daglegu lífi í skólanum, ef þið færuð að hugsa. Aumingja strákarnir yrðu auðvitað dálít- ið undrandi fyrst í stað, en smám sam- an hlytu þeir að venjast þessu og hætta að hlæja. Ef þið farið að hugsa fer ekki hjá því, að þið sjáið í hvert óefni komið er. Nuverandi ástand er aljxjörlega óviðun- andi. Karlpeningur skolans lítur á kven- þjóðina sem lítil og snotur dýr, afskap- lega æskileg að vísu, en gersneydd öll- um hæfileikum til að hugsa sjálfstætt. Þeir gapa af undrun, hrista hausinn eða brosa góðlátlega þegar einhver stulkan eins gegnt hlutverki ambáttarinnar og hins þögla aðdáanda, ekkert hefur verið okkur fjær skapi en að tileinka okkur eitthvað af forréttindum "æðri stéttar- innar". Mannkynssagan segir okkur að vísu frá örfáum undantekninj*um, en þær konur hafa venjulega verið alitnar skrýtn- ar og óeðlilegar, að minnsta kosti af konum samtíðarinnar. Minnimáttarkennd- in hefur legið á okkur eins og mara, þó við höfum nátturulega aldrei viljað við- urkenna það. NÚ kann einhver að segja : Er þetta ekki löngu urelt? Er ekki konan í dag komin langt áleiðis til jafnréttis við karlmanninn? Maður skyldi ætla það. En það furðulega er, að við notum okkur alls ekki það jafnrétti, sem við gætum haft. Við hjökkum ennþá í sama plóg- farinu og ömmur okkar á öldinni sem leið. Kvenþjóðin í þessum skóla er mjög gott dæmi um þennan gamaldags hugs- unarhátt. Líf skólastúlkunnar 1961 miðast ein- göngu við það að ganga í augun á skóla- piltinum 1961. Það er þess vegna, sem hún kemur brunandi í skólann kl. 8 að morgni í fullum herklæðum og rækilega stríðsmáluð. Það er þess vegna, sem hún eyðir frímínútunum frammi fyrir spegli, greiðandi hár sitt og þekjandi litla snotra andlitið stórkostlegri máln- ingu. Það er þess vegna, sem hún forð- ast að tala gáfulega, hvað þá hugsa, því að slíkt telst ekki kvenlegt og þar af Frh. á bls. 155.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.