Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1961, Síða 20

Skólablaðið - 01.04.1961, Síða 20
síðasta ári var gefin ut I Eng- landi mjög ýtarleg listaverkabok um nutíma myndlist, "Art since 1945". Eins og nafnið ber með sér er eingöngu fjallað um nú- tímamálara, og eru allir núlifandi listmál- arnir íslenzku ( og Ásgrímur jónsson) þar nefndir, þ. e. ekki þeir Sigurður Guðmunds- son, Þórarinn B. Þorlákssonog Muggur. En þetta eru aLlir listmálarar íslands ! Auk þessarar athyglisverðu staðreynd- ar skal þess getið, að ekki er birt nein ís- lenzk mynd í bókinni, en Noregur, Svíþjóð og Danmörk fá hver sína mynd. ( Finnland er talið í flokki með fslandi ). Er mór ekki kunnugt um, hvort útlendingur sá, sem skrifaði þarna um Norðurlönd, hafi séð myndir okkar og ekki talið þær birtingar- hæfar eða yfirvöld hér hafi útvegað mann- inum upplýsingar um málarana, en sum- ar þeirra eru mjög villandi. Víst er það, að ekki eru íslenzk málverk áber- andi í söfnum erlendis, en mörg eru þó í einkaeign á Norðurlöndum. Fyrir skömmu skeði það, að hið heimsfræga safn Museum of Modern Art í New York fékk í hendur eftirprentanir Helgafells á nokkrum malverkum. Mikla hrifningu vakti FjalLamjólk KjarvaLs, og falaði safnið myndina. En eigandi hennar lét sig ekki, þótt gull og grænir skógar væru í boði, og sagði, að óæskilegt væri að myndin færi úr landi ( sic ). En boð þetta var meistara Kjarval mikill heiður og hefðu hin fyrirhuguðu kaup farið fram væri hann nú heimsfrægur. Einnig gerð- ist það á síðasta ári, að Þorvaldur Skúlason var yfirlýstur einn fremsti abstraktmálari heims, og keypti franskt safn eina af non-fíguratívum myndum hans. Stóð hann sjálfur að sölu myndar sinnar, og voru engin þjóðleg bönd, sem komu í veg fyrir, að hann hlyti þennan verðskuldaða frama. Þorvaldur sneri yfir á þessa braut fyrir u.þ.b. tíu árum og hlaut fyrir það harða gagnrýni úr ymsum áttum. Ekki ætla ég að fjölyrða um afstöðu ríkisins, og því síður almennings, til listamanna þar eð í þeim viðskiptum hef- ur gengið á ýmsu og ekki með ölLu hættulausu. En Ásmundur Sveinsson myndhöggvari mun þó fá einna harðasta út- reið hjá þessum öflum. Þessi aldni lista- maður, sem taLinn er með fremstu mynd- höggvurum Norðurlanda, hefur sætt slíkri gagnrýni í landi sínu, að um hreinar of- sóknir hefur verið að ræða. "Gagnrýni" þessi hefur stundum verið svo mögnuð, að svo stór orð og hótanir hafa sjaldan sézt a prenti og til dæmis mætti nefna ummæli "Varðbergs", málgagns hins fyrrverandi Lýðræðisflokks, 5. sept. 1952. Harðasta dóma fékk höggmyndin Vatnsberinn, og virðast margir hafa verið á móti henni. Þegar Fegrunarfélagið gaf Reykjavíkurbæ höggmyndina var ákveðið að henni skyldi valinn staður við Bankastræti, þar sem síðasta opna vatnsból bæjarins var. En of- sóknir miklar og hamfarir hófust gegn verkinu, og féll bæjarstjórn frá ákvörðun sinni og kom höggmyndinni fyrir í garði listamannsins ! NÚ nálgast Ásmundur áttræðisaldur og ekki hefur rætzt sú ósk hans að sjá eitt- hvert hérlendra verka sinna steypt í kopar. ( Ég segi hérlendra, þar eð höggmyndir hans í Svíþjóð hafa verið steyptar þannig.) Hve löng biðin verður er erfitt að segja fyrir um.meðan ábyrgir aðilar sofa sínum andlega svefni. - Kannske dreymir þá um Kjarvalshúsið, sem alþingismenn fyrir u.þ.b. tuttugu árum samþykktu að reisa. Nú höfum við nemendur samþykkt frumvarp um listaverkasjóð skólans. Mun líklega verða mögulegt að kavipa eitt Frh. á bls. 152.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.