Skólablaðið - 01.04.1961, Síða 23
- 159 -
A
LL>T, sem lifir, á ser heim-
kynni. Fuglarnir fljúga um
loftið og gera sér hreiður í
trjákrónum eða á jörðu niðri.
Þau dýr, sem á landi lifa,
hreiðra um sig í skógunum og á sléttum
þurrlendisins. Maðurinn tekur sér ból-
festu, þar sem lífsskilyrðin eru hag-
kvæmust. Fiskarnir búa í djúpinu.
Upphaflega hafast mennirnir við í
hellum og hellisskútum og lifa frumstæðu
lífi við erfið skilyrði. Seinna taka þeir
að byggja kofa eða slá upp tjöldum.
Húsagerðarlist kemur til sögunnar. Þá
byggja þeir bæi og borgir og vanda meir
til híbýla sinna. Þeir stofnsetja þjóð-
félag.
Heimilið er mjög mikilvægur þáttur
í þjóðlífi nútímans. Heimilið er stoð og
stytta í þjóðfélaginu. Það hefur hvað
mest áhrif á líf og hugsun hvers þjóð-
félagsþegns. Heimilið þroskar einstakl-
inginn og mótar lífsskoðanir hans. Það
er undir því komið, hvort framtíð hans
verður heilladrjúg og hamingjusöm eða
hverful og gæfulítil. Hlutverk þess er
að búa hina ungu kynslóð undir framtíð-
ina og það ætlunarverk, sem hún á að
leysa af hendi í þágu þjóðar sinnar.
Það hvílir því mikil ábyrgð á foreldrum,
en góðir foreldrar eru betri en allt ann-
að. Starf þeirra er fólgið í uppeldi
æskunnar. Þeir eiga að temja henni
góða siðu og háttu strax í bernsku, miðla
henni af þjóðlegum fróðleik og vizku, þá
er hún hefur aldur og þroska til, brýna
fyrir henni góða framkomu og góðvild
til allra þjóða og manna. Unga kynslóð-
in á að elska heimili sitt, foreldra sína
og þjóðfélag, vera friðsöm, nægjusöm
og hjálpsöm. Hún á að virða land sitt
og sögu þess, vinna því heill.
Það er því augljóst, að markmið
heimilisins er og verður að búa æskuna
undir lífsstarf sitt. Það á að kenna æsk-
unni allar þær dyggðir, sem ungt fólk
mega prýða. Gott uppeldi x æsku veitir
unga fólkinu styrk og þrótt og hvetur það
til dáða. Það hefur þau áhrif, að unga
fólkið er hæfara til að mæta erfiðleikum
o|j hræðist ei hættur né gugnar við mót-
barur. Sú þjóð, sem elur börn sín vel
upp, mun eignast marga tápmikla menn
og konur, sem leysa störf sín vel og
dyggilega af hendi og sigrast á hverri
þraut, unz fullur sigur er unninn.
Sá einn, sem áfram sækir
á andans þyrnibraut
og stæltur störf sín rækir,
hann storkar hverri þraut.
Hann ber sitt manndómsmerki.
Hann markar öðrum slóð.
Hann vex með sínu verki.
Hann vitkar sína þjóð.
( Davíð Stefánsson )
Reykjavík, 23. október 1960.
Jon Ögmundur Þormóðsson
"Af langri reynslu lært ég þetta hef. "
Á miðsvetrarprófi í frönsku í 5.bekk
stærðfræðideildar máttu menn svara eftir-
farandi spurningu á frönsku, ef þeir vildu:
Est-ce que les jeunes filles de la V
classe sont belles ?
Svör manna vorumisjöfn, en einna bezt
þótti svar Ingimundar Sveinssonar :
Elles sont des animaux savages.